Fann loks skjól fyrir sig og börnin í Mosfellsbæ

„Ég þakka guði fyrir að hafa kom­ist til Íslands og fundið skjólið sem við leit­uðum að,“ segir Joy, þriggja barna móðir frá Nígeríu, sem býr nú í Mos­fellsbæ og á vart orð yfir þá hjálp­semi og góð­mennsku sem hún hefur fundið fyrir. Joy er í hópi flótta­manna sem yfir­völd í Mos­fellsbæ hafa boð­ist til að taka á móti.

Fann loks skjól fyrir sig og börnin í Mosfellsbæ
Þakklát „Fólkið hér er mjög almenni­legt og hjálp­samt,“ segir Joy um Mos­fell­inga. Sér­stak­lega er hún þakk­lát leigu­sölum sínum sem hún segir ein­stak­lega gott fólk.

Í júní flutti þriggja barna móð­irin Joy í Mos­fellsbæ þar sem hún leigir nú íbúð. Hún er hingað komin eftir hættu­legan flótta frá heima­land­inu, Nígeríu. „Ég þakka guði fyrir að hafa kom­ist til Íslands og fundið skjólið sem við leit­uðum að,“ segir hún við Heim­ild­ina.

Bæj­ar­yf­ir­völd í Mos­fellsbæ skrif­uðu í mars undir samn­inga við félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neytið um mót­töku á allt að 80 flótta­mönnum. Síðan þá hafa um 30 ein­stak­lingar, sem áður voru á flótta, þar af fjögur börn, flutt í Mos­fellsbæ. Einhver hreyf­ing hefur verið á hópnum, þ.e. sumir hafa flutt í önnur sveit­ar­fé­lög og aðrir komið í stað­inn. Flestir eru komnir með hús­næði.

Fólkið á sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Mos­fellsbæ ekki rétt á félags­legu hús­næði umfram aðra innan sveit­ar­fé­lags­ins og leigir það því íbúðir sínar beint af leigu­sala. Hulda Rúts­dóttir, verk­efn­is­stjóri á vel­ferð­ar­sviði bæj­ar­ins, styður fólkið í hús­næð­is­leit og hefur Mos­fells­bær aug­lýst sér­stak­lega eftir hús­næði í bæj­ar­fé­lag­inu …

Kjósa
35
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flóttamenn

FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu