Ahmed Samsam er 33 ára Dani, af sýrlenskum uppruna. Hann ólst upp í Vollsmose-hverfinu í Óðinsvéum og síðar í Bellahøj-hverfinu í Kaupmannahöfn, hjá foreldrum sínum og sex systkinum. Faðir hans, Jihad Samsam, hafði flúið frá Sýrlandi 1982 eftir að hafa tekið þátt í misheppnaðri uppreisnartilraun, en hann var þá félagi í múslímska bræðrabandalaginu. Jihad Samsam fékk danskan ríkisborgararétt árið 1996.
Ungur að árum leiddist Ahmed Samsam út á braut afbrota og glæpa, fyrst í Óðinsvéum og síðar í Kaupmannahöfn. Hann hefur margoft hlotið dóma fyrir brot á umferðarlögum, rán, ofbeldi, vopnaburð og fyrir að hafa eiturlyf í fórum sínum.
Fór fyrst til Sýrlands árið 2012
Skömmu eftir að Samsam (eins og hann er ætíð kallaður) var laus úr fangelsi árið 2012 fór hann til Sýrlands. Þar gekk hann til liðs við samtök uppreisnarmanna sem börðust gegn herjum Assads forseta. Puk Damsgård, fréttamaður danska útvarpsins, hitti Samsam við tyrknesku landamærin. Í viðtalinu sem sýnt var í danska sjónvarpinu sagði Samsam að hann hefði tekið þátt í margs konar afbrotum heima í Danmörku um átta eða níu ára skeið.
Í desember 2012 fór Samsam aftur heim til Danmerkur, og fór þá beint í fangelsi til að afplána 30 daga dóm sem hann hafði hlotið.
Leyniþjónustan og Sýrlandsferðir
Meðan Samsam sat í fangelsinu í árslok 2012 hafði danska leyniþjónustan, PET, samband við hann og eftir að fangelsisvistinni lauk gerði hann, að eigin sögn, samkomulag við PET. Samkomulagið fól í sér að hann myndi afla upplýsinga um danska ríkisborgara sem berðust í Sýrlandi og gætu hugsanlega ógnað öryggi Danmerkur þegar þeir yrðu aftur komnir heim. Og í samkomulaginu fólst að allt sem hann aðhefðist í Sýrlandi eftir þetta yrði gert í nánu samráði við PET og leyniþjónustu hersins, FE. Í febrúar 2013 fór hann til Sýrlands, PET kostaði þá ferð. Í nóvember það ár skipti hann um vinnuveitanda, ef svo má að orði komast, og færðist yfir til FE. Ástæðan var sú að FE var í nánari tengslum við starfsmenn utan danskra landamæra. Vorið 2014 fór hann eina ferð til Sýrlands á vegum FE. Í október árið 2015 vildi FE senda hann enn á ný til Sýrlands í þeim tilgangi að ganga til liðs við samtökin sem kenna sig við íslamskt ríki. Samsam neitaði að verða við þessari beiðni og fór hvergi. Hann áleit beiðni FE alltof áhættusama og þar með lauk samstarfi Samsam við dönsku leyniþjónusturnar.
Bróðirinn drepinn
Í maí árið 2015 dó yngri bróðir Samsam af völdum hnífstungu á Norðurbrú í Kaupmannahöfn. Morðið var talið tengjast átökum glæpagengja. Daginn eftir morðið voru Samsam og þrír vinir hans handteknir og Samsam kærður fyrir óeirðir. Lögregla taldi að Samsam og bróðirinn sem lést væru tengdir glæpasamtökunum Black Army í Vollsmose.
Samsam vann um skeið sem yfirmaður í ísbúð á Friðriksbergi við Kaupmannahöfn. Í maí 2017 var skotið á ísbúðina og ungur afgreiðslumaður særðist. Stuttu síðar fór Samsam til Spánar þar sem eldri bróðir hans var búsettur. Samsam sagði síðar í viðtali að hann hefði farið til Spánar til að slíta tengslin við glæpaheiminn.
„Samsam vann um skeið sem yfirmaður í ísbúð á Friðriksbergi við Kaupmannahöfn. Í maí 2017 var skotið á ísbúðina og ungur afgreiðslumaður særðist.“
Handtaka og fangelsisdómur
Skömmu eftir komuna til Spánar var Samsam handtekinn. Honum var gefið að sök að hafa tekið þátt í starfsemi samtakanna sem kenna sig við íslamskt ríki. Auk þess sagði lögreglan að hann hefði reynt að fá keypt vopn á Spáni og einnig skotheld vesti. Tveimur dögum fyrir handtökuna hafði lögreglan stöðvað Samsam vegna gruns um að hann hefði keypt hass. Lögreglan sagðist hafa fengið ábendingu frá dönsku lögreglunni um að rétt væri að fylgjast með stóra bróður Samsam. Að sögn lögreglu var hegðan þeirra bræðra ekki eins og hjá dæmigerðum ferðamönnum, þeir skiptu til dæmis oft um hótel. Árið 2018 var Samsam, í bæjarrétti Madrid (sem er lægsta dómstig af þrem), dæmdur í átta ára fangelsi fyrir ætlaða aðild að hryðjuverkasamtökum. Samsam áfrýjaði til næsta dómstigs, sem staðfesti dóm bæjarréttar. Samsam sótti um áfrýjun til Hæstaréttar Spánar en fékk synjun. Samsam sat í spænsku fangelsi í þrjú og hálft ár en var síðan fluttur til Danmerkur og dómurinn styttur í sex ár. Samsam lýkur afplánun sinni í nóvember næstkomandi.
Sakar leyniþjónusturnar um svik
Eins og getið var um í upphafi þessarar greinar standa nú yfir í Kaupmannahöfn réttarhöld í máli Samsam gegn dönsku leyniþjónustunni, PET, og leyniþjónustu hersins, FE. Tilgangur Samsam er að fá viðurkenningu og staðfestingu PET og FE á því að hann hafi verið starfsmaður þeirra og sendur á þeirra vegum til Sýrlands. Hann hafi aldrei verið félagi í hryðjuverkasamtökunum sem kenna sig við íslamskt ríki. Samsam heldur því fram að hefðu PET og FE tilkynnt spænskum yfirvöldum að hann hefði farið á þeirra vegum til Sýrlands hefði meginatriði ákærunnar fallið um sjálft sig. Komið hefur fram að starfsmönnum PET og FE hefði gramist að yfirvöldin skyldu ekki beita sér og tilkynnt spænskum yfirvöldum hvernig allt var í pottinn búið. Leyniþjónusturnar, PET og FE, hafa ekki svarað neinu um það, þegar eftir hefur verið leitað, hvort þær hafi verið í samstarfi við Samsam, hvorki játað né neitað.
Forstjóri leyniþjónustu hersins kom í heimsókn
Meðal vitna sem kvödd hafa verið fyrir réttinn er Simon Andersen, fyrrverandi fréttastjóri Berlingske. Hann kom fyrir réttinn sl. miðvikudag, 30. ágúst. Frásögn hans vakti undrun og athygli viðstaddra. Hann greindi frá því að árið 2020, um vorið eða snemmsumars, hefði maður komið heim til sín, án þess að gera boð á undan sér. „Hann vildi ræða við mig um Samsam-málið.“ „Hver var þessi maður?“ spurði dómarinn. Það fór kliður um salinn þegar fréttastjórinn svaraði: „Þetta var Lars Findsen.“ Á þessum tíma var Lars Findsen yfirmaður FE. Erindi hans var að kanna hvort fréttastjórinn gæti komið því til leiðar að Lars Findsen og Thomas Brædder, þáverandi lögmaður Samsam, gætu hist og rætt saman í trúnaði.
„Ég skynjaði, þótt Lars Findsen segði það ekki berum orðum, að sitthvað hefði farið öðruvísi en til stóð í máli Samsam og vilji væri til þess að bæta þar úr,“ sagði fréttastjórinn fyrrverandi. Í kjölfar þessa fundar áttu starfsmenn FE 13 fundi með Thomas Brædder, þar sem rætt var um hugsanlegar bætur til Samsam. Þessar viðræður leiddu ekki til neinnar niðurstöðu. Samsam og Erbil Kaya, núverandi lögmaður hans, vildu fá að kalla Lars Findsen fyrir réttinn en það samþykkti dómstjórinn ekki. Thomas Brædder, fyrrverandi lögmaður Samsam, á að mæta fyrir réttinn föstudaginn 1. september, sama dag og þessi pistill birtist á prenti.
Forsíðugrein Berlingske kom öllu af stað
Sunnudaginn 12. janúar 2020 birtist á forsíðu dagblaðsins Berlingske löng grein um Samsam-málið eins og það var kallað. Blaðamenn Berlingske höfðu vikum saman unnið að rannsókn á máli Samsam, talað við fjölmarga sem þekktu vel til málsins, fjölskyldu Samsam, lögfræðinga í stjórnkerfinu og farið í gegnum dómskjölin frá Spáni, svo fátt eitt sé nefnt. Næstu daga og vikur birti Berlingske fjölmargar greinar um málið og blaðið komst yfir gögn sem sýndu greiðslur til Samsam, greiðslur sem blaðið fullyrti að væru laun. Enn fremur komst Berlingske yfir gögn sem sýna fram á að Samsam hitti, oftar en einu sinni, tengiliði sína hjá dönsku leyniþjónustunni, þeir fundir fóru fram í Tyrklandi. Þar voru sömuleiðis keypt skothelt vesti, fullkominn sjónauki og fleira sem Samsam tók með sér til Sýrlands. Dönsku leyniþjónusturnar borguðu brúsann.
Vitnaleiðslur í málinu halda áfram í næstu viku, þá koma meðal annars fyrir réttinn starfsmenn dönsku leyniþjónustunnar, PET, og leyniþjónustu hersins, FE.
Gert er ráð fyrir að dómur í máli Samsam gegn dönsku leyniþjónustunum verði kveðinn upp í september. Verði það niðurstaða dómsins að Samsam hafi verið „starfsmaður“ dönsku leyniþjónustanna mun hann fara fram á endurupptöku málsins á Spáni.
Athugasemdir