Ríkisstörfum fjölgaði um nær 5.000 í tíð síðustu ríkisstjórnar

Stöðu­gildi á vegum rík­is­ins voru rúm­lega 29 þús­und í lok síð­asta árs en rúm­lega 24 þús­und í lok árs 2017 þegar rík­is­stjórn Vinstri grænna, Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks tók við. „Minna ríki“ var slag­orð þess síð­ast­nefnda í fyrra.

Ríkisstörfum fjölgaði um nær 5.000 í tíð síðustu ríkisstjórnar
Rík­is­stjórn­ar­sam­starf 2017 til 2024 Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fór með fjár­mála­ráðu­neytið frá 2013 til 2024 en á tíma­bil­inu fjölg­aði stöðu­gildum hjá rík­inu um tæp 30 pró­sent. Mynd: Heiða Helgadóttir

Stöðu­gildi á vegum rík­is­ins voru 29.054 þann 31. des­em­ber 2024 og fjölg­aði um 538 á lands­vísu á árinu eða um 1,9 pró­sent.

Þetta kemur fram í nýrri töl­fræði Byggða­stofn­unar. Samkvæmt mæla­borði stofn­un­ar­innar voru 24.343 stöðu­gildi á vegum rík­is­ins í lok árs 2017 þegar rík­is­stjórn Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­fólks hafði nýtekið við völdum. Fjölgaði því rík­is­störfum um 4.711 á þeim tæpu tveimur kjör­tíma­bilum sem rík­is­stjórnin var við völd, eða um rúm­lega 19 pró­sent.

Á sama tíma­bili fjölg­aði íbúum Íslands um tæp 14 pró­sent og því ljóst að rík­is­störfum fjölg­aði vel umfram fólks­fjölgun.

„Báknið“ stækkaði

Þessi fjölgun starfa á vegum rík­is­ins vekur athygli í ljósi þess að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fór með fjár­mála­ráðu­neytið allan þann tíma sem þetta rík­is­stjórn­ar­sam­starf átti sér stað fyrir utan rúma tvo síð­ustu mán­uði þess. Var Bjarni Bene­dikts­son, þá for­maður flokks­ins, fjár­mála­ráð­herra megnið af tím­anum og ábyrgur fyrir fram­lagn­ingu fjár­laga­frum­varps rík­is­stjórn­ar­innar.

Á síð­unni „Sjálf­stæð­is­stefnan í hnot­skurn“ á vef flokks­ins segir að kjör­orð flokks­ins séu meðal ann­ars: „Báknið burt.” Flokk­ur­inn hafði þetta í fyr­ir­rúmi í kosn­inga­bar­áttu sinni fyrir Alþing­is­kosn­ingar í fyrra og bar fyrsti kafli kosn­inga­á­herslum hans tit­il­inn „Minna ríki“. Í honum voru til­lögur á borð við „Fækkum rík­is­stofn­unum úr 160 í 100“ og „Bjóðum út verk­efni - ríkið þarf ekki að vinna öll verk“.

Flokk­ur­inn hefur þannig lengi talað fyrir minni rík­is­af­skiptum en fjöldi starfa á vegum rík­is­ins hefur hins vegar blásið út á meðan hann hefur verið við stjórn­völin. Í raun er hægt að líta lengra aftur í töl­fræði Byggða­stofn­unar, til loka árs 2014 þegar flokk­ur­inn hafði þá árið áður myndað rík­is­stjórn með Fram­sókn­ar­flokki undir for­sæti þáver­andi for­manns Fram­sóknar, Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar.

Voru stöðu­gildi á vegum rík­is­ins 22.751 í lok árs 2014. Það kjör­tíma­bil var Bjarni Bene­dikts­son einnig fjár­mála­ráð­herra. Hefur þeim þannig fjölgað um 6.303 á þessum ára­tug eða 27,7 pró­sent.

Fjölgunin vegna heilbrigðismála og Háskóla Íslands

Flest stöðu­gildi á vegum rík­is­ins eru á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, að því fram kemur í grein­ingu Byggða­stofn­unar, enda er meiri­hluti lands­manna búsettur þar. Hins vegar er hlut­fall stöðu­gilda á höf­uð­borg­ar­svæð­inu 70% en hlut­fall lands­manna sem þar býr aðeins 64%.

„Mesta hlut­falls­lega fjölg­unin var erlendis“

Stöðu­gildum fjölg­aði mest á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í fyrra eða um 491 milli ára, mest vegna Land­spít­ala, Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og Háskóla Íslands. „Mesta hlut­falls­lega fjölg­unin var erlendis, fyrst og fremst vegna stöðu­gilda við alþjóð­lega þró­un­ar­sam­vinnu,“ segir í grein­ingu Byggða­stofn­unar en stöðu­gildi erlendis voru 75 í fyrra, aðal­lega í erlendum sendi­ráðum, og hafði fjölgað um ell­efu á milli ára. „Þar fyrir utan fjölg­aði stöðu­gildum hlut­falls­lega mest á Vest­fjörðum eða um 6,5% en sú fjölgun er aðal­lega á Ísafirði. Mesta fækkun stöðu­gilda var á Suð­ur­landi, 36 stöðu­gildi eða 2,0%.“

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Má ekki fækka þeim aftur? Voru þetta ekki einhver Covid aðgerðir? Ekki hefur verið fjölgað í lögreglunni og eftirliti hverskonar. Ekki á sjúkrahúsunum, þar er alltaf verið að fækka. Í hvaða störfum eru þessar þúsundir manna?
    0
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Það er víst ekki nóg að segja það, það er að gera það. Fyrirheitin alltaf falleg en gjörðir engar.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár