Skemmdarverk á söfnum myndu hafa ráðstafanir í för með sér

Íslensk lista­söfn hafa sloppið við aðgerðir hópa sem berj­ast fyrir lofts­lags­málum en erlendis hafa heims­fræg mál­verk fengið yfir sig máln­ingu og súpu svo eitt­hvað sé nefnt. Safn­stjórar hér­lendis segj­ast sýna mál­staðnum ákveð­inn skiln­ing en benda jafn­framt á að þeirra helsta hlut­verk er að standa vörð um lista­verkin. Ekki hefur verið gripið til sér­stakra ráð­staf­ana á íslenskum lista­söfnum vegna mót­mæla­gjörn­inga erlendis.

Skemmdarverk á söfnum myndu hafa ráðstafanir í för með sér
Sólblóm í súpu­baði Þær Phoebe Plummer og Anna Holland límdu sig fasta við hlið eins þekktasta mál­verks Vincents van Goghs í National Gallery í London eftir að hafa skvett yfir það tómat­súpu. Þessi mót­mæla­gjörn­ingur aðgerða­hóps­ins Just Stop Oil er einn af mörgum þar sem mik­ils­virt lista­safn er nýtt sem svið til þess að koma skila­boðum á fram­færi. Mynd: Just Stop Oil

Við horfum aftan á tvo gesti National Gallery í London sem standa frammi fyrir einu þekktasta mál­verki Vincents van Goghs, mynd af sól­blómum í vasa sem hann mál­aði árið 1888 til að skreyta heim­ili sitt í aðdrag­anda komu vinar síns, Paul Gauguin, til Arles. Ungu kon­urnar tvær eru klæddar hvítum stutt­erma­bolum með mynd af haus­kúpum. Áður en við vitum af hafa þær skvett úr tveimur dósum af tómat­súpu yfir sól­blómin. Þessi sýn vekur vafa­laust upp ónota­til­finn­ingu hjá mörgum sem horfa á. Í mynd­band­inu heyr­ist líka í gestum lýsa undrun sinni, einn þeirra hrópar af skelf­ingu yfir athæf­inu og loks er kallað á örygg­is­verði. Allt tekur þetta innan við tíu sek­úndur. 

Konurnar tvær, sem eru aðgerða­sinnar og til­heyra hreyf­ing­unni Just Stop Oil, hópi sem berst aðal­lega gegn áfram­hald­andi olíu­vinnslu, líma sig fasta við vegg­inn. „Hvort er meira virði, listin eða lífið? Er hún meira virði en matur? Meira virði en …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár