Kári Stefánsson: „Menn í minni stöðu borga of lítið í opinber gjöld“

For­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar er hluti af eina pró­sent­inu á Íslandi enda með 8.575.708 krónur í mán­að­ar­laun. Hann leggur áherslu á að meira eigi að fara í sam­neyslu. Sjálfur telur Kári sig ekki hafa lagt mikið af mörkum til sam­fé­lags­ins og seg­ist alla tíð hafa verið eig­in­gjarn og sjálf­mið­aður ein­stak­lingur.

Kári Stefánsson: „Menn í minni stöðu borga of lítið í opinber gjöld“
Kári Stef­áns­son For­stjóri og stofn­andi Íslenskrar erfða­grein­ingar segir okkur búa í sam­fé­lagi þar sem skiptir máli að styðja við hvort annað. Mynd: Kristinn Magnússon

Kári Stef­áns­son, stofn­andi Íslenskrar erfða­grein­ingar, situr í 184. sæti yfir tekju­hæstu Íslend­inga síð­asta árs. Hann er í 12. sæti yfir tekju­hæstu for­stjór­ana með 8.540.659 krónur á mán­uði og heild­ar­árs­tekjur upp á 150.499.939 krónur. Kári segir það erfitt fyrir gamlan sós­í­alista að vera á hátekju­list­anum þó að hann viti ekki hvað hann ætti að gera ef hann hefði enga byrði að bera. „Góður gam­all sós­í­alisti á að vera að lepja dauð­ann úr skel. Mér hefur gjör­sam­lega mis­tek­ist að stýra lífi mínu þannig að það passi við hug­mynd mína um heim­inn. Þannig að þetta er býsna mikil byrði að bera.“ 

Aðspurður hvort hann hafi þurft að yfir­stíga ein­hverjar sér­stakar áskor­anir til þess að kom­ast á þann stað að vera á tekju­list­anum seg­ist Kári ekki vita hvað hann eigi að segja um þetta allt saman. Fyrst og fremst er Kári vís­inda­maður sem lifir í núinu og er ekki mikið fyrir fram­tíð­ar­draum­óra. „Það …

Kjósa
48
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MGÁ
    Marteinn Gísli Árnason skrifaði
    Þu hefur bersynilega fengið mikið af genum fra föður þinum.
    BLESSUÐ SE MINNING HANS.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn 2023

SagaHátekjulistinn 2023

Ójöfn­uður ósann­gjarn en samt nauð­syn­legur

Nið­ur­stöður nýlegrar rann­sóknar á við­horfum íslensks almenn­ings til ójafn­aðar og félags­legs rétt­lætis sýna að stærstur hluti almenn­ings er óánægður með tekju­ó­jöfnuð og telur ójöfnuð við­hald­ast vegna þess að hinir ríku og valda­miklu hagn­ast á honum. Sami almenn­ingur vill hins vegar ekki útrýma ójöfn­uði með öllu vegna trúar á opin tæki­færi og verð­leika.

Mest lesið undanfarið ár