Þessi grein birtist fyrir meira en ári.

Bensínlítrinn ekki verið ódýrari síðan í apríl 2022 en gæti farið að hækka á ný

Við­mið­un­ar­verð á bens­ín­lítra var um 304 krón­ur um miðj­an mán­uð­inn og hafði þá lækk­að um 38,2 krón­ur á einu ári. Fyr­ir ári síð­an tóku olíu­fé­lög­in um tíu pró­sent af hverj­um seld­um lítra. Nú taka þau tæp­lega 20 pró­sent.


Viðmiðunarverð á bensínlítra á Íslandi lækkaði um 4,2 krónur milli júní og júlímánaðar og hefur ekki verið lægra síðan í apríl í fyrra. Þá var verðið síðast undir 300 krónum á lítra en hefur haldist yfir því marki síðan þá og var 303,7 krónur um miðjan þennan mánuð. 

Frá því að viðmiðunarverð á bensínlítra náði sinni hæstu krónutölu í Íslandssögunni, fyrir nákvæmlega ári síðan, hefur verði lækkað um 38,2 krónur, eða rúmlega ellefu prósent. 

Þetta má lesa út úr nýrri bensínvakt Heimildarinnar.

Hinn hái verðmiði sumarið 2022 átti rætur sínar að rekja til óvissu á mörkuðum eftir að stríð skall á í Úkraínu í febrúar í fyrra.  

Viðmiðunarverðið miðar við næstlægstu verðtölu hverju sinni til að forðast áhrif tíma­bund­innar verð­sam­keppni á allra lægsta verð. Við­mið­un­ar­verðið er þó með lægstu verðum og sýnir þar með lægri hlut olíu­fé­lags­ins en reikna má með að raunin sé með­al­talið af öllu seldu bens­íni á land­inu.

Á sama tíma hefur heimsmarkaðsverð á tunnu af hráolíu lækkað um fjórðung en inni í þeirri lækkun er skörp hækkun síðustu vikur. Verðið hefur hækkað um tæplega tíu prósent síðan í lok júní. Vaninn er að það taki nokkurn tíma fyrir verðbreytingar á heimsmarkaði að koma fram í verðinu á bensínlítranum við dæluna hérlendis, þar sem birgðir þurfi að klárast áður en nýjar eru keyptar inn sem taka mið af gildandi verði. Því bendir margt til þess að bensínlítrinn muni hækka á ný í nánustu framtíð eftir að hafa lækkað stöðugt síðastliðið ár. 

Hlutur olíufélaga tvöfaldast á einu ári

Íslensku olíufélögin kaupa alla sína olíu af sama aðilum, Equinor í Noregi. Álagning olíufélaga á Íslandi nú 19,3 prósent af hverjum seldum lítra. Samkvæmt bensínvaktinni taka þau til sín 58,7 krónur af hverjum seldum lítra. Fyrir ári síðan, í júlí 2022, tóku þau til sínu 48,02 krónur af lítra, eða tíu prósent af hverjum seldum lítra. Inni í þessari álagningu er áætlaður kostnaður á borð við flutninga og tryggingar.

Að hluta til mátti skýra þá lágu álagningu sem var í fyrrasumar með því að olíu­­­­­­­fé­lögin voru ekki, tímabundið, að velta hækk­­­­­­unum á heims­­­­­­mark­aðs­verði að fullu út í verð­lag­ið. Það hafa þau hins vegar verið að gera síðastliðið ár og þar með aukið hagnað sinn af eldsneytissölunni. 

Innkaupverð íslenskra olíufélaga á eldsneyti, sem ákvarðast einkum af heimsmarkaðsverði og gengi krónunnar gagnvart Bandaríkjadal, hefur nefnilega lækkað um 35 prósent á einu ári. Það var, samkvæmt útreikningum bensínvaktarinnar, 138,1 krónur í júlí í fyrra en tæplega 90 krónur í sama mánuði í ár. Ef horft er 13 mánuði aftur í tímann, til júnímánaðar í fyrra þegar áætlað innkaupaverð náði hámarki í 148,5 krónum á lítra, hefur það lækkað um 40 prósent. 

Ef horft er lengra aftur í tímann, til júlí 2020, þá kostar bensínlítrinn nú 52 prósent fleiri krónur en hann gerði þá. Að teknu tilliti til verðbólgu er hann tæplega 59 krónum dýrari, eða 24 prósent, en hann var fyrir þremur árum síðan.

Ríkið tekur rúmlega helming

Hlutur rík­­­­­­­is­ins í hverjum seldum bens­ín­lítra sam­anstendur af virð­is­auka­skatti, almennu og sér­­­­­­­­­­­­­stöku bens­ín­gjaldi og kolefn­is­gjaldi. Alls er virðisaukahlutfallið sem leggst á bensínlítrann 19,35 prósent, almenna bensíngjaldið hækkaði úr 30,2 krónum í 32,5 krónur um síðustu áramót og sérstaka bensíngjaldið fór úr 48,7 krónum í 52,45 krónur. Þá hækkaði kolefnisgjaldið úr 10,5 krónum í 11,3 krónur. 

Alls tekur íslenska ríkið nú um 155,08 krónur af hverjum seldum lítra af bensíni, eða um 51 prósent. 

Von er á fleiri hækkunum á þá sem keyra um á bílum á næstu árum. Ráðamenn hafa lengi boðað veggjöld víða til að standa undir nauðsynlegum samgönguframkvæmdum og á höfuðborgarsvæðinu styttist í að svokölluð flýti- og umferðargjöld leggist á. Þau eiga að að fjármagna helming kostnaðar vegna samgöngusáttmála fyrir höfuðborgarsvæðið, þar sem stærsti einstaki kostnaðarliðurinn er hin svokallaða Borgarlína. 

Til stóð að leggja fram frumvarp um þau í nóvember í fyrra og áætlanir gerðu ráð fyrir að þau yrðu lögð á í ár. Því var þó frestað og nú stendur til að frumvarpið líti dagsins ljós á þessu ári, og gjöldin raunar boðuð í fimm ára fjármálaáætlun sem kynnt var í mars. Gangi það eftir eiga gjöldin að leggjast á frá byrjun næsta árs. Nú er reiknað með, að teknu tilliti til verðlagsbreytinga, að gjöldin skili 74,6 milljörðum króna inn í verkefnið á tíu árum.

Gögn og aðferðafræði

Hér að ofan er birt niðurstaða útreikninga og áætlunar á því hvernig verð á lítra af bensíni skiptist milli aðila.

  • Viðmiðunarverð er fengið frá hugbúnaðarfyrirtækinu Seið ehf. sem meðal annars heldur úti síðunni Bensínverð.is og fylgst hefur með bensínverði á flestum bensínstöðum landsins daglega síðan 2007. Miðað er við næstlægstu verðtölu í yfirlitinu til að forðast að einhverju leyti áhrif tímabundinnar verðsamkeppni á allra lægsta verð. Viðmiðunarverðið er þó með lægstu verðum og sýnir þar með lægri hlut olíufélagsins en reikna má með að raunin sé meðaltalið af öllu seldu bensíni á landinu.

  • Hlutur ríkisins liggur ljós fyrir út frá sköttum sem eru ýmist fastir og hlutfallslegir. Upplýsingar um breytingar á skattalögum eru fengnar frá Viðskiptaráði sem fylgst hefur með slíkum breytingum um árabil.

  • Líklegt innkaupaverð er reiknað útfrá verði á bensíni til afhendingar í New York-höfn í upphafi mánaðar frá bandarísku orkustofnuninni EIA og miðgengi dollars gagnvart íslenskri krónu í yfirstandandi mánuði frá Seðlabanka Íslands. Í þessum útreikningum kann að skeika nokkru á hverjum tímapunkti vegna lagerstöðu, skammtímasveiflna á markaði o.s.frv. Nákvæmara væri að miða við verð á bensíni til afhendingar í Rotterdam, en verðupplýsingar þaðan liggja ekki fyrir á opnum gagnaveitum. Mismunur á verði í New York og Rotterdam er þó yfirleitt mjög lítill.

  • Hlutur olíufélags er loks reiknaður sem afgangsstærð enda haldgóðar upplýsingar um einstaka kostnaðarliði olíufélaganna ekki opinberar. Hafa ber í huga að þar sem viðmiðunarverð er með lægstu verðum á hverjum tíma er þessi liður ef til vill einhverju hærri sé litið til heildarviðskipta með bensín á Íslandi.

Verðupplýsingar miðast við verðlag hvers tíma. Gögnin eru uppfærð mánaðarlega í kringum 15. hvers mánaðar. Fyrirvari er gerður um skekkjumörk sem þó ættu í mesta lagi að nema fáeinum krónum á útreiknaða liði.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JA
    Jón Arnarson skrifaði
    Ótrúlegt hve stór hlutur fer til „samfélagsins“ – hvað verður um þessa ótrúlegu fjármuni?
    Og enn vekur það furðu með Metan væðingu farartækja – sem dó í fæðingu og getur ekki einu sinni annað lágmarks almennings samgöngum.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár