Landamæraverðir tóku Nicholas Woods afsíðis frá þremur börnum sínum og Ólöfu Helgu Pálsdóttur Woods, eiginkonu hans, við komuna á Keflavíkurflugvöll í morgun. „Það á að vísa honum úr landi,“ segir Ólöf að landamæravörður hafi tjáð henni.
Nicholas, sem er upprunalega frá Kaliforníu í Bandaríkjunum, hefur búið hér í átta ár. Ári áður en þau fluttu til Íslands giftu þau Ólöf sig. Þau eiga þrjú börn sem eru öll fædd á Íslandi.
Fjölskyldan hafði verið í fríi í Kaliforníu og lagði af stað aftur til Íslands á sunnudag. Þau millilentu í Kanada og lentu svo á Íslandi snemma í morgun.
Nicholas er með varanlegt dvalarleyfi hér á landi en það virðist ekki hafa fundist í tölvukerfi landamæravarðanna. Það varð til þess að Nicholas var í haldi í fjórar klukkustundir. Hann var leystur úr haldi um hádegisbil, eftir að hægt var að sýna fram á að hann væri með dvalarleyfi.
Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, þekkir til málsins og segir að það sýni mikilvægi þess að starfsmaður Útlendingastofnunar sé við vinnu í Leifsstöð svo hann geti aflað nauðsynlegra gagna.
„Þrátt fyrir að við séum búin að búa þannig um persónuverndarlögin að það megi vera upplýsingagjöf á milli þá hefur lögreglan enga möguleika utan skrifstofutíma til þess að kanna leyfisstöðu fólks,“ segir Helga Vala og ítrekar að lögreglunni beri alltaf að gæta meðalhófs.
Hélt fast í bekkinn og vildi ekki skilja föður sinn eftir
Ólöf segir það hafa verið mikið áfall að heyra að vísa ætti eiginmanni hennar úr landi. Hún var með 18 mánaða gamla dóttur sína í fanginu og sex og átta ára gamla syni sína sér við hlið.
„Við fengum bara áfall, það voru allir hágrátandi,“ segir Ólöf. „Við þurfum örugglega að fara með þau í áfallahjálp, þau eru í algjöru áfalli og losti. Eldri sonur minn hélt fast í bekk og vildi helst ekki skilja pabba sinn eftir.“
Nicholas á fyrirtæki í Grindavíkurbæ sem býður upp á þjálfun í amerískum fótbolta.
„Hann er búinn að borga skatta hérna í átta ár. Hann er búinn að byggja upp amerískan fótbolta hérna og er að vinna mikið með börnum sem hafa ekki passað alveg inn í samfélagið,“ segir Ólöf. „Hann nær ótrúlega vel til þeirra og er búinn að byggja þetta þvílíkt upp og er að stofna hérna fyrirtæki og íþróttafélag á Íslandi og þeir ætluðu bara að vísa honum úr landi með hágrátandi börn og konu sem var að fá taugaáfall.“
Það eru einungis nokkrar klukkustundir síðan atvikið átti sér stað en Ólöf segir aðspurð líklegt að fjölskyldan muni leita réttar síns vegna málsins.
„Þetta er eitthvað sem þarf að bæta upp fyrir börnin okkar.“
RASMISTI a Islandi er gömul saga og ny. 1951 Gerði Island Herstöðvasamning við BNA
og Herstöð Amrikana var her til 2006. Fyrir 1970 saust ekki Þeldökkir Hermen a Velinum.
Þa foru Islendingar að lata að ser kveða hja Sameinuðu Þjoðunm og fordæmdu Aðskilnaðarstefnu i Suður Afriku,, Blöð i USA sögðu þessa stefnu Islands að Banna veru Þeldökra Hermana i herstöð BNA a Islandi, en deyla a Suður Afriku og Kyntatta misretti þar. Það hafði lekið ut að til var Leynisamningur við hlið Herstöðvarsamnings LÖG NO 110 fra 1951 sem Alþingi samþikti sem lög. Islendingar þrættu og sögðu að Þeldökkum Hermönnum væri velkomin vera a Vellinum, Þa foru að koma Þeldökkir Hermen en með Fjölskyldur sinar. Þetta tokum við eftir þa 1975. Eg vann a Vellinum i 30 ar.
Það sama er að gerast nu. Bara i annari mind RASISMI . Boðskapur Hitlers er i fullu gildi
Hja Sjalfstæðis flokknum. Kvenar kemur her NOTT HINA LÖNGU HNIFA eins og i Þiskalandi 1935.
Og ef tölvukerfið liggur niðri ætti nú að vera hægt að láta eiginkonuna ábygjast hann - eða finna annan ábyrgðarmann, t.d. skyldmenni.
Það er ómannúðlegt að halda heilli fjölskyldu með lítil börn í gíslingu.
P.S: birtir.