Leik­völlur Biðin eftir leik­skóla­plássi getur reynst for­eldrum erfið. Myndin teng­ist grein­inni ekki með beinum hætti. Mynd: Heiða Helgadóttir

Fluttu úr landi og fengu fyrr pláss á leikskóla

Á öllum Norð­ur­lönd­unum nema Íslandi er börnum tryggður réttur til leik­skóla­göngu þegar fæð­ing­ar­or­lofi for­eldra lýkur. Hér­lendis bíða for­eldrar gjarnan upp á von og óvon eftir leik­skóla­plássi í marga mán­uði eftir fæð­ing­ar­or­lof og eru dæmi um að þeir hafi flutt til Norð­ur­land­anna til þess að börnin þeirra fái fyrr pláss á leik­skóla. „Millj­óna­þjóðir sinna þessu miklu betur en við,“ segir Anna Magnea Hreins­dóttir, aðjúnkt við Mennta­vís­inda­svið Háskóla Íslands.

Ein af ástæðum þess að Ragn­hildur Hólm­geirs­dóttir og Þor­steinn Vil­hjálms­son létu síð­asta haust verða af því að flytja til Dan­merkur fyrir skipti­nám Þor­steins var sú að þar fékk yngri sonur þeirra fyrr pláss á leik­skóla en ella.

Þau bjuggu áður í Vest­ur­bænum, þar sem dag­mömmur eru ekki á hverju strái, og gerðu ekki ráð fyrir að fá pláss á leik­skóla hér­lendis fyrr en haustið 2023, þegar yngri sonur þeirra yrði tveggja ára gam­all. Í Danmörku komst hann aftur á móti inn á leik­skóla skömmu eftir að þau fluttu út, rétt rúm­lega árs gam­all. 

Úti að leikaSynir Ragn­hildar Hólm­geirs­dóttur og Þor­steins Vil­hjálms­sonar.

Heim­ildin ræddi við íslenska for­eldra sem hafa reynslu af íslenska leik­skóla­kerf­inu og því á öðrum Norð­ur­löndum. Þó að hvert for­eldri hafi ein­ungis reynslu af tveimur eða þremur leik­skólum þá var ákveð­inn sam­hljómur í svörum þeirra. Umönn­un­ar­bilið, bilið á milli fæð­ing­ar­or­lofs og leik­skóla­pláss, var mun styttra á hinum Norð­ur­lönd­unum …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár