Bar­ben­heimer Barbie á vegg­spjaldi Opp­en­heimer. Mynd: Rahal Nejraoui

Barbie og Oppenheimer: „Ég held að það sé pláss fyrir báðar myndir“

Tvær stærstu kvik­myndir sum­ars­ins, Barbie og Opp­en­heimer, eru frum­sýndar 19. júlí hér á landi. Sam­fé­lags­miðla­not­endur, kvik­mynda­á­huga­fólk og stjörnur Hollywood rök­ræða hvora mynd­ina eigi að sjá fyrst.

„Svo stytt­ist í Bar­ben­heimer,“ segir Thelma Rún Sveins­dóttir kvik­mynda­á­huga­kona bros­andi þegar við ræðum bíósum­arið framundan. Við vin­kon­urnar förum gjarnan saman í bíó og höfum við mikið dálæti af því að gagn­rýna og greina sögu­þræði enda nýút­skrif­aðir félags­fræð­ingar. Í fyrstu átt­aði ég mig ekki á því hvað hún átti við en svo kom útskýr­ingin. Bar­ben­heimer er orða­til­tæki notað af kvik­mynda­á­huga­fólki og sam­fé­lags­miðla­not­endum sem ætla sér að sjá Barbie og Opp­en­heimer sam­dæg­urs eða með stuttu milli­bili. 

Ólíkar myndir

Kvik­mynd­irnar tvær eru eins ólíkar og þær ger­ast. Opp­en­heimer er sann­sögu­leg mynd sem fjallar um aðkomu banda­rísks efna­fræð­ings að fyrstu kjarn­orku­sprengj­unni á tímum seinni heim­styrj­aldar. Cillian Murphy, best þekktur fyrir leik sinn í þátta­röð­inni Peaky Blinders, fer með aðal­hlut­verk ásamt stór­leik­ur­unum Emily Blunt, Matt Damon og Robert Downey Jr. Aðal stiklan fyrir mynd­ina birt­ist á Youtube fyrir tveimur mán­uðum og búið er að horfa 36 milljón sinnum á hana. Leik­stjóri Opp­en­heimer er ósk­arsverð­launa­haf­inn Christopher Nolan sem er þekktur fyrir afar spennu­þrungnar og vel gerðar myndir.

Barbie er hins vegar björt, fyndin og gleði­leg. Henni er leik­stýrt af öðrum ósk­arsverð­launa­hafa, Gretu Gerwig. Kvik­myndir hennar njóta mik­illa vin­sælda meðal ungs fólks, sér­stak­lega kvenna. Margot Robbie leikur Barbie en hún er sjálf ósk­arsverð­launa­hafi. Allt frá því að Robbie lék í Wolf of Wallstreet fyrir ára­tug síðan hefur hún verið ein af eft­ir­sótt­ustu leikkonum heims. Ryan Gosling fer með hlut­verk dúkk­unar Ken en hann hefur einnig fengið ósk­arsverð­laun og gert garð­inn frægan með myndum eins og The Notebook, La La Land og Blade Runner. Popp­stjarnan Dua Lipa syngur aðal­lag mynd­ar­innar sem situr í 29. sæti Bill­bo­ard Hot 100 list­ans um þessar mundir. Búið er að horfa 38 milljón sinnum á stiklu Barbie á aðeins einum mán­uði. 

Og hvað er málið?

Bar­ben­heimer gengur út á að hver og einn skipu­leggi bíó­dag, helst yfir frum­sýn­ing­ar­helg­ina, þar sem keyptir eru miðar á báðar mynd­irnar. Milli sýn­inga eru mat­ar­hlé og jafn­vel drykkj­ar­hlé. Tom Cruise sagði nýverið á rauða dregl­inum: „Mér finnst gaman að sjá myndir opn­un­ar­helg­ina. Ég byrja lík­lega á Opp­en­heimer á föstu­dags­kvöld­inu og tek svo Barbie á eftir.“

Haf­steinn Sæmunds­son sér um hlað­varpið Bíó­blaður þar sem hann ræðir kvik­myndir við helstu sér­fræð­inga og áhuga­fólk. „Mér finnst þetta skemmti­legt og svo­lítið öðru­vísi,“ segir hann um Bar­ben­heimer. „Það er gaman að sjá hvernig þetta hefur tek­ist á flug og fólk hefur verið að búa til allskyns efni á sam­fé­lags­miðlum í kringum mynd­irnar. Svo vatt þetta aðeins upp á sig eftir að Tom Cruise sagði sjálfur að hann ætl­aði að horfa á þær sama dag.“ 

Haf­steinn Sæmunds­sonÆtlar fyrst á Opp­en­heimer.

Nýjasta mynd Tom Cruise, Mission: Impossi­ble - Dead Reckoning Part One, er í bíó um þessar mundir. Sömu­leiðis er fimmta Indiana Jones myndin sem Harrison Ford fer með aðal­hlut­verkið í. Það eru því fjórar stórar myndir á svip­uðum tíma í bíó. Í kjöl­far umræð­unnar um hvaða mynd næði mestum árangri tísti Tom Cruise mynd af sér ásamt leik­stjóra Mission: Impossi­ble með miða á allar mynd­irnar og sýndi þannig stuðn­ing í stað þess að reyna að ein­oka mark­að­inn.

Mark­aðs­deild Barbie deild­ar­innar var ekki lengi að átta sig á vin­sældum tísts­ins og birti í kjöl­farið mynd af Gretu Garwig og Margot Robbie með miða á Opp­en­heimer, Mission: Impossi­ble og Indiana Jones.

Nú bíður aðdá­enda­hópur Barbie og Opp­en­heimer eftir að Christopher Nolan og Cillian Murphy svari kall­inu með mynd af sér fyrir framan Barbie skilti. 

Ekki stressandi

Kvik­mynd­irnar koma í bíó mið­viku­dag­inn 19. júlí næst­kom­andi. Veð­ur­spáin fyrir þann dag er ekki með Sam­bíó­unum og Smárabíó í liði en þau kvik­mynda­hús sýna bæði Opp­en­heimer og Barbie. Vefsíðan yr.no spáir 13 gráðum ásamt sól. Gott veður stoppar hins vegar ekki alla, fréttir að utan herma að yfir 20.000 Banda­ríkja­menn hafi tryggt sér miða á mynd­irnar tvær yfir frum­sýn­ing­ar­helg­ina. 

Fram­kvæmda­stjóri Sam­bíó­ana, Þor­valdur Árnason, segir for­sölu á Barbie ganga vel og að búið sé að bæta við auka­sýn­ingum. Samfilm sér um dreif­ingu Barbie en Myndform sér um Opp­en­heimer. Aðspurður út í áhrif veð­urs­ins seg­ist Þor­valdur „alveg viss um að Barbie er góð hvort sem það er sól eða ekki.“ 

Sjálfur er Þor­valdur búinn að horfa á Barbie og hafði gaman af. „Hún er virki­lega vel gerð og leik­ar­arnir standa sig vel í henni. Þetta er klár­lega sum­ar­skemmtun.“ Þor­valdur á eftir að sjá Opp­en­heimer en þegar Heim­ildin náði tali af honum var minna en sól­ar­hringur í að hann flygi til Stokk­hólms að heim­sækja dóttur sína og tengda­son. „Ætli maður fari ekki bara í bíó í Svíþjóð,“ segir hann og brosir.

Geir Gunn­ars­son fram­kvæmda­stjóri Myndform segir Opp­en­heimer eina af stærri myndum árs­ins. „Þetta er svona sum­ar­stór­mynd sem nær í mjög breiðan hóp. Allar mynd­irnar frá Christopher Nolan eru stór­kost­leg upp­lifun í bíó.“ Honum finnst ekki stressandi að Barbie sé frum­sýnd á sama tíma. „Ég held að það sé pláss fyrir báðar myndir,“ segir Geir en for­sala á Opp­en­heimer hefur gengið vel.

„Þetta er klár­lega sum­ar­skemmtun.“

Barbenheimer í lúxussal

Haf­steinn hjá Bíó­blaðri seg­ist ætla að sjá Opp­en­heimer fyrst í lúx­us­sal Sam­bíó­ana. „Það er ein­fald­lega vegna þess að hún er nær mínum smekk. En ég ætla líka að sjá Barbie.“ Haf­steinn ætlar ekki að fara á mynd­irnar sama dag vegna anna en hefði ann­ars „100 pró­sent farið sama dag.“

Thelma Rún fer mikið í bíó og hefur mest gaman af drama- og gam­an­myndum. „Nei, ég held ég geri það nú ekki,“ svarar Thelma Rún þegar hún er spurð hvort að hún ætli á Barbie og Opp­en­heimer sama dag. „Það er nú kannski aðeins of mikið. Ég held ég fari fyrst á Barbie af því að ég er spennt­ari fyrir henni.“ Hún hefur tekið eftir því á sam­fé­lags­miðlum að mark­aðs­setn­ingin í kringum Barbie er meiri en af Opp­en­heimer. „Kannski er það minn algrímur en ég sé fleiri myndir og mynd­bönd tengd Barbie sem peppa mann. Svo er líka að koma út alls­konar varn­ingur í Banda­ríkj­unum tengdur þessu.“

Thelma RúnÆtlar fyrst á Barbie.

„Opp­en­heimer og Barbie eru báðar með skemmti­lega leik­stjóra og sögu­þráð­ur­inn lítur út fyrir að vera áhuga­verður.“ Aðspurð hvað spenna yfir svona and­stæðum myndum segir okkur um sam­fé­lagið í dag segir félags­fræð­ing­ur­inn: „Mér finnst það sýna að kvik­mynda­flóran er fjöl­breytt. Núna eru rosa­lega ólíkar myndir að koma út á sama tíma og mikið umtal í kringum þær. Þær eru líka með kven­leik­stjóra og karl­leik­stjóra sem sýnir að kvik­myndir geta verið ólíkar en mjög skemmti­legar og áhuga­verðar á sinn hátt.“

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár