Í vaskinn Þær stofn­anir sem sjá eiga til þess að vel­ferð dýra sé í fyr­ir­rúmi og að mögu­leg brot á dýra­vel­ferð­ar­lögum séu rann­sökuð og leidd til lykta, MAST og lög­reglan, hafa bæði endað með að skila auðu í blóð­mera­mál­inu svo­kall­aða. Bæði emb­ætti benda á þýsku dýra­vernd­un­ar­sam­tökin, en gögn sýna að sam­tökin voru fús til sam­starfs. Lög­reglan virð­ist hins vegar hafa gef­ist upp eftir margra mán­aða óskýrðar tafir. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Lögregla segi ósatt um blóðmerarannsókn

Dýra­vernd­un­ar­sam­tök neit­uðu aldrei að afhenda lög­reglu á Íslandi mynd­bönd af meintu dýra­níði í blóð­mer­ar­haldi á Íslandi. Stað­hæf­ingar lög­reglu um að þess vegna hafi rann­sókn á blóð­mera­haldi verið hætt, eru rangar. Þetta segir tals­maður þýskra dýra­vernd­ar­sam­taka og gögn um sam­skipti sam­tak­anna við íslensk yfir­völd styðja sög­una. Samtökun íhuga að kvarta undan sleif­ar­lagi lög­reglu í mál­inu.

Tals­maður og lög­maður þýskra dýra­vernd­un­ar­sam­taka sem mynd­uðu meint dýra­níð blóð­mera­bænda á Íslandi og sýndu í heim­ild­ar­mynd árið 2021, segja lög­reglu á Íslandi fara með rangt mál þegar stað­hæft sé að lög­reglu­rann­sókn hafi strandað á sam­tök­unum, sem hafi neitað að afhenda upp­tökur.

Bréfa­skipti lög­manns sam­tak­anna og yfir­valda hér á landi sýna þvert á móti að sam­tökin buð­ust til að afhenda mynd­bands­upp­tökur, en báðu um að þýsk lög­reglu­yf­ir­völd hefðu milli­göngu um að afla þeirra. Níu mán­uðum síðar hafði slík beiðni ekki enn verið send og rann­sókn máls­ins felld niður.

Ekki fást svör frá lög­reglu um hvort beiðnin hafi yfir­leitt verið send.

„Það lítur út fyrir að íslensk yfir­völd séu að nota þetta sem afsökun til að halda and­liti í mál­inu,“ segir tals­maður sam­tak­anna, sem hafa nú til skoð­unar að leggja fram kvörtun til yfir­valda vegna fram­göngu lög­reglu í mál­inu.

Þvinganir og barsmíðar

Heim­ild­ar­mynd þýskra og sviss­neskra dýra­vernd­un­ar­sam­taka um íslenska blóð­mer­ar­iðn­að­inn vakti …

Kjósa
35
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristín Guðnadóttir skrifaði
    Að stofnun sem heitir Matvælastofnun sé svo falið að fylgjast með velferð dýra er súrrealískt.
    0
  • HÓ
    Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Þeir átta sig ekki á því að xD mafían á íslensku lögregluna.
    2
    • Siggi Rey skrifaði
      Kórrétt! Og þar af leiðandi spilling innan lögreglunnar!
      1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Blóðmerahald

PMSG: „Hormón eymdar“ frá upphafi til enda
AfhjúpunBlóðmerahald

PMSG: „Hormón eymdar“ frá upp­hafi til enda

Lyf úr með­göngu­horm­óni fyl­fullra, íslenskra hryssa, hafa þær „óæski­legu auka­verk­anir“ að of margir grísir, stundum of stórir, oft smáir og veikl­aðir, fæð­ast gyltum á þýskum svína­búum. Blóð­takan hefur frá því í byrjun nóv­em­ber, eftir áminn­ingu frá ESA, verið felld undir reglu­gerð um vernd dýra sem notuð eru í vís­inda­skyni. Það gæti breytt öllu, segja þýsku og sviss­nesku dýra­vernd­un­ar­sam­tökin sem rann­sakað hafa iðn­að­inn í fjögur ár.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár