Ofbeldi Karl­maður sem var að taka blóð­sýni úr stóði blóð­mera spark­aði í snoppu eina þeirra er hún sýndi aug­ljós hræðslu­merki. Annar karl­maður á sama bæ spark­aði í kvið ann­arrar merar. Mynd: AWF og TSB

Ný rannsókn: Sparkað í höfuð og kvið blóðmera

Þýsk og sviss­nesk dýra­vernd­un­ar­sam­tök, sem afhjúp­uðu illa með­ferð fyl­fullra hryssa í heim­ild­ar­mynd árið 2021, segja flest mál varð­andi vel­ferð dýr­anna enn til staðar í blóð­mera­haldi á Íslandi. Í nýrri rann­sókn varpa þau ljósi á ofbeldi gagn­vart mer­unum og aug­ljósa ang­ist þeirra við blóð­tök­una.

Þegar hún kemur inn í blóð­töku­bás­inn, einu leið­ina sem henni er fært að fara, er hurð á honum fram­an­verðum ólæst. Hún ýtir við henni og opnar. Kemst samt hvergi því spýta hindrar útgöngu. Hún fer að stappa niður fót­unum. Hrædd. Þá kemur hann að, mað­ur­inn sem er að taka blóð­sýnin, og sparkar í snopp­una á henni. Við höggið slær hún höfð­inu upp í timb­ur­bita sem er ofan við hana í básnum.

Hún er lík­lega fyl­full, í hópi svo­kall­aðra blóð­mera, og á þá vænt­an­lega einnig stálpað fol­ald sem lengir eftir móður sinni enda orðið við­skila við hana í aðgerð þeirri sem nú fer fram. Þetta er hennar hlut­skipti í líf­inu: Að vera rekin ásamt stóði ann­arra yfir­leitt ótam­inna mera og fol­alda inn í gerði og þaðan á þröngan bás. Að vera stungin í háls­inn, jafn­vel marg­sinnis, af ónær­gætni og lít­illi ef nokk­urri fag­mennsku. Stundum með lít­illi nál. Til að taka …

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SJ
    Svala Jónsdóttir skrifaði
    Af hverju er ekki löngu búið að banna þetta? Við vitum að Sjálfstæðisflokkurinn er siðlaus og Framsókn er í grunninn hagsmunasamtök bænda, en hvað um VG? Nær þetta "græna" hjá þeim ekki til dýra? Hvað með matvælaráðhera? Eru þau alveg gagnslaus?
    0
  • Þetta er ógeðslegt og til skammar fyrir þjóðina
    1
  • Ása Sverrisdóttir skrifaði
    Ég á fá orð til sem eru prentvæn. Vona að þetta lið sem stundar þetta helv rotni þar🤬
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Blóðmerahald

PMSG: „Hormón eymdar“ frá upphafi til enda
AfhjúpunBlóðmerahald

PMSG: „Hormón eymdar“ frá upp­hafi til enda

Lyf úr með­göngu­horm­óni fyl­fullra, íslenskra hryssa, hafa þær „óæski­legu auka­verk­anir“ að of margir grísir, stundum of stórir, oft smáir og veikl­aðir, fæð­ast gyltum á þýskum svína­búum. Blóð­takan hefur frá því í byrjun nóv­em­ber, eftir áminn­ingu frá ESA, verið felld undir reglu­gerð um vernd dýra sem notuð eru í vís­inda­skyni. Það gæti breytt öllu, segja þýsku og sviss­nesku dýra­vernd­un­ar­sam­tökin sem rann­sakað hafa iðn­að­inn í fjögur ár.
Átta fylfullar hryssur drápust í tengslum við blóðtöku
FréttirBlóðmerahald

Átta fyl­fullar hryssur drápust í tengslum við blóð­töku

Sér­greina­dýra­læknir hrossa hjá MAST segir það „enga kata­st­rófu“ þótt átta fyl­fullar hryssur hafi dáið eftir blóð­töku á vegum Ísteka síð­asta sumar. Staðfest þykir að að minnsta kosti ein hryssa dó vegna stung­unnar og blæddi út og telja bæði MAST og Ísteka reynslu­leysi dýra­lækn­is­ins mögu­lega um að kenna. Hinar fund­ust dauðar 2–3 dögum eftir blóð­tök­una.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár