Myndi ekki taka húsnæðislán hjá Íslandsbanka í dag

„Smá sið­blinda,“ sagði ung kona í mið­bænum aðspurð um skoð­anir sínar á söl­unni á Íslands­banka. Gangandi veg­far­endur höfðu fylgst mis­vel með umræð­unni um sölu­ferlið, en áttu það öll sam­eig­in­legt að vilja ekki taka hús­næð­is­lán hjá Íslands­banka.

Sala Íslands­banka á 22,5% hlut rík­is­ins í bank­anum hefur verið áber­andi í sam­fé­lags­um­ræð­unni síð­ustu daga í kjöl­far sáttar sem bank­inn gerði við Fjár­mála­eft­ir­litið. Meðal þess sem fólk hefur velt fyrir sér eru þær miklu fjár­hæðir sem tengj­ast mál­inu. Á síð­asta ári fékk þáver­andi banka­stjóri Birna Ein­ars­dóttir alls 68,9 millj­ónir króna í laun fyrir störf sín. Hún hefur nú sagt starfi sínu lausu.

Heim­ildin spurði gang­andi veg­far­endur í miðbæ Reykja­víkur hvað þeir myndu gera við 68 millj­ónir og hver afstaða þeirra væri í Íslands­banka­mál­inu. Enginn af við­mæl­end­unum myndi taka hús­næð­is­lán hjá Íslands­banka að svo stöddu og var Arion banki tal­inn heppi­legri kostur í flestum til­vikum. 

Stjórnvöld bera ekki ábyrgð

Jóhanna Kristín Hjart­ar­dóttir hefur fylgst svo­lítið með Íslands­banka­mál­inu og finnst það fárán­legt. Bankinn mun greiða sögu­lega háa sekt: 1,2 millj­arða króna vegna lög­brota sem framin voru innan hans í útboð­inu.

Jóhanna KristínÆtlar að færa hús­næð­is­lánið sitt úr Íslands­banka í mót­mæla­skyni.

Hvað myndir þú gera við 68 millj­ónir? 

Fjár­festa. Helst kaupa íbúð eða eitt­hvað svo­leiðis en ekki það að lánin séu góð akkurat núna. 

Ertu búin að vera að fylgj­ast eitt­hvað með Íslands­banka­mál­inu? 

Já, svo­lítið. 

Og hvað finnst þér? 

Bara eig­in­lega fár­an­legt. Manni finnst ein­hvern vegin eins og að stjórn­völd séu ekki að taka neina ábyrgð, færa þetta allt yfir á ein­hverja sem að þau geta bara svona skúbbað út. Og já, bara smá svona sið­blinda í gangi finnst manni. 

Og fjár­mála­ráð­herra, finnst þér hann þá ekki búinn að standa undir ábyrgð heldur?

Nei, bara alls ekki. Ég meina, mað­ur­inn á ekk­ert að vera í þess­ari stöðu lengur. 

Ef þú værir að kaupa íbúð í dag, mynd­iru taka hús­næð­is­lán hjá Íslands­banka?

Nei. Ég er hjá Íslands­banka en ég er að fara að skipta. 

Veistu hvert þú ætlar að fara? 

Það eru ekk­ert margir betri kostir en jú ætli það sé ekki bara Arion eða Lands­bank­inn, það er alla­veg­ana skárra akkurat núna til þess að sýna eitt­hvað að maður sé á móti þessu. 

Leika sér

Bræð­urnir Arnar Kári og Birgir Steinn Styrmis­synir myndu leggja háa upp­hæð inn á banka­bók og fjár­festa fyrir 68 millj­ónir. 

Arnar Kári og Birgir SteinnHafa ekki fylgst með söl­unni á Íslands­banka.

Hvað mynduð þið gera ef þið fengjuð 68 millj­ónir?

Birgir Steinn: Ég myndi leggja háa upp­hæð inn á banka og síðan líka leika mér með rest­ina. 

Hvað þýðir að leika sér með pen­inga?

Birgir Steinn: Kaupa mér hluti eins og föt og kannski bíl. 

Hvað myndir þú gera?

Arnar Kári: Eins og hann þá myndi ég byrja á að leggja mikið til hliðar, eins mikið og mögu­legt væri. Svo myndi ég kaupa mér íbúð og leigja eina út og svo myndi ég reyna að jafn­vel kaupa tvær. Búa í einni, leigja hina út. Hafa eins lítið eftir til að leika sér með. 

Frábært, og eru þið eitt­hvað búnir að fylgj­ast með söl­unni á Íslands­banka?

Báðir: Nei. 

En eruð þið með ein­hverja skoðun á fjár­mála­ráð­herra?

Báðir: Nei. 

Ein spurn­ing að lokum, ef þið væruð að kaupa ykkur íbúð í dag, hald­iði að þið mynduð taka lán hjá Íslands­banka?

Arnar Kári: Nei, ég held ég myndi ekki gera það. 

Hvert myndir þú fara?

Arnar Kári segir: „Ég myndi fara í Arion,“ og Birgir tekur undir. 

Bjarni Ben ágætur

Líkt og bræð­urnir myndi Ingi­björg Aðal­heiður Gylfa­dóttir frekar taka hús­næð­is­lán hjá Arion banka.

Ingi­björg Aðal­heiðurMyndi kaupa sér sum­ar­hús og íbúð fyrir 68 millj­ónir.

Hvað myndir þú gera við 68 millj­ónir?

Ég myndi kaupa mér sum­ar­hús og íbúð.

Hvar myndir þú kaupa þér sum­ar­hús?

Í Grafn­ingi. 

Ertu búin að vera að fylgj­ast eitt­hvað með Íslands­banka­mál­inu?

Voða lítið. 

Ertu með ein­hverja skoðun á því?

Nei, enga sér­staka. 

Hvað finnst þér um Bjarna Ben fjár­mála­ráð­herra?

Hann er ágætur. Jájá. 

Ein spurn­ing að lokum, mynd­iru taka hús­næð­is­lán hjá Íslands­banka í dag?

Ég er í Arion banka, ég myndi fara í Arion banka. 

Myndi kaupa fasteign

Breki Þórð­ar­son seg­ist ekki hafa fylgst nógu vel með Íslands­banka­mál­inu. 

BrekiSegir Íslands­banka ekki vera sinn banka.

Hvað myndir þú gera við 68 millj­ónir?

Bara kaupa fast­eign. 

Hvar myndir þú kaupa?

Ég veit það ekki, bara ein­hvers staðar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Ertu búinn að vera að fylgj­ast eitt­hvað með þessu Íslands­banka­máli?

Ekki nógu mikið nei en aðeins bara. 

Myndiru samt taka hús­næð­is­lán hjá Íslands­banka í dag?

Örugg­lega ekki nei. 

Af hverju?

Bara af því að það er bara ekki minn banki held ég. 

Fylgist aðeins með

Hrafn­kell Hákon­ar­son myndi láta sig hverfa frá Íslandi fengi hann 68 millj­ónir króna. 

Hrafn­kell Hákon­ar­sonMyndi ekki taka lán hjá Íslands­banka.

Hvert mynd­iru fara?

Fil­ipps­eyjar. 

Af hverju? 

Af því að konan mín er þaðan. Mér líkar vel við Fil­ipps­eyjar.

Ertu búinn að fylgj­ast eitt­hvað með Íslands­banka­söl­unni?

Ja, svona bara í gegnum útvarpið bara. 

Og hvað finnst þér?

Maður átti svosem alveg von á þessu. Mér leist aldrei á þessa konu þarna. 

Myndir þú taka hús­næð­is­lán hjá Íslands­banka í dag?

Nei. Aldrei. 

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Erlent

Olíu­risarnir græða stórfé á stríð­inu í Mið-Aust­ur­löndum

Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum Banda­ríkja­dala á þriðja árs­fjórð­ungi. Stríðið í Mið-Aust­ur­löndum hefur leitt til hækk­andi orku­verðs og auk­innar fram­legðar í olíu­hreinsun. Fyr­ir­tækin hagn­ast á sama tíma og hærra elds­neyt­is­verð og aukin verð­bólga þrengja að heim­ilum og fyr­ir­tækjum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár