Launin duga skammt

Magda­lena Anna Reimus vinnur þrjár vinnur. Ef hún gerði það ekki ætti hún erfitt með að greiða mán­að­ar­lega reikn­inga með þeim 340.000 krónum sem hún fær útborgað mán­að­ar­lega. Kollegar hennar með svip­aða menntun og reynslu hafa í nokkra mán­uði fengið hærri laun en hún.

Launin duga skammt
Ræða Magda­lena Anna Reimus flutti erindi á bar­áttufundi BSRB nýverið. Hún seg­ist almennt lítið fyrir að tala fyrir framan fólk en að henni hafi þótt mik­il­vægt að láta í sér heyra. Mynd: BSRB

Verk­falls­að­gerðir BSRB hófust eftir árang­urs­lausan samn­inga­fund sem lauk aðfara­nótt mánu­dags. Þær hafa áhrif á starf­semi leik­skóla, sund­lauga, íþrótta­mann­virkja, þjón­ustu­mið­stöðva, bæj­ar­skrif­stofa, áhalda­húsa og hafna í 29 sveit­ar­fé­lögum. Verkfall í íþrótta­mann­virkjum og sund­laugum er ótíma­bundið en á öðrum stöðum mun það standa til 5. júlí, nema samn­ingar náist fyrir þann tíma. BSRB og Samtök íslenskra sveit­ar­fé­laga funda nú um deil­una.

Magda­lena Anna Reimus er ein af þeim 2.500 félags­mönnum BSRB sem lögðu niður störf í gær. Hún vinnur þrjár vinnur. Ef hún gerði það ekki ætti hún erfitt með að greiða mán­að­ar­lega reikn­inga með þeim 340.000 krónum sem hún fær útborgað mán­að­ar­lega fyrir fullt starf í leik­skóla á Selfossi. Kollegar hennar með svip­aða menntun og reynslu hafa í nokkra mán­uði fengið hærri laun en hún vegna þess að þeir eru í öðru stétt­ar­fé­lagi. 

Hún svaf illa á meðan fundað var aðfara­nótt mánu­dags og vakn­aði á klukku­tíma fresti til þess að kanna hvort ein­hverjar fréttir hefðu borist af fund­inum. Það var svo í gær­morgun sem hún fékk að vita að hún ætti ekki að mæta í vinn­una. Það voru von­brigði fyrir hana eins og fleiri félags­menn BSRB sem Heim­ildin hefur rætt við og eiga það sam­eig­in­legt að langa að mæta til vinnu. 

„Mér finnst mjög gaman í vinn­unni,“ segir Magda­lena um það. „Ég hef gaman af því að gera eitt­hvað nýtt og kenna börn­unum alls­konar hluti, sama hvort þau eru tveggja eða fimm ára.“

Formaður„Ef jafn­launa­vottun væri fram­kvæmd í dag þá vænt­an­lega gengi hún ekki í gegn vegna þess að það er verið að greiða mis­mun­andi laun fyrir sömu störfin,“ segir Sonja Ýr Þor­bergs­dóttir.

Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga gerði mis­langa samn­inga við félög BSRB ann­ars vegar og félög Starfs­greina­sam­bands­ins (SGS) hins vegar. Hafði það þau áhrif að frá upp­hafi árs hafa félagar í SGS fengið hærri laun en félagar í BSRB fyrir sam­bæri­leg störf. Er helsta krafa BSRB sú að þessi launa­munur verði jafn­aður út með 128.000 króna ein­greiðslu á hvern starfs­mann. Stjórn Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga vís­aði í gær­morgun allri ábyrgð á stöð­unni á for­ystu­fólk BSRB og sagð­ist hafa boðið félag­inu 50 til 60 þús­und króna launa­hækkun frá 1. apríl síð­ast­liðnum. 

Sonja Ýr Þor­bergs­dóttir, for­maður BSRB, segir ein­greiðsl­una meg­in­kröfu sem ekki sé hægt að falla frá. Spurð hvort BSRB beri ekki ein­hverja ábyrgð á því að ekki hafi verið samið um sömu kjör fyrir félaga BSRB og SGS segir Sonja að um algjör­lega nýja stöðu sé að ræða. Síð­ast­liðin 20 ár hafi samn­ingar félag­anna inni­falið sömu kjör og að það sé á ábyrgð atvinnu­rek­enda að tryggja jöfn laun fyrir jafn verð­mæt störf.

Starfs­krafturHaukur Erlings­son hlakkar til að mæta til vinnu á hverjum degi en hann vill sömu laun og aðrir í sömu stöðu.

Launahækkun og eingreiðsla gætu haft veruleg áhrif

Haukur Erlings­son, sem starfar í íþrótta­mið­stöð í Borg­ar­byggð, segir súrt að fá lægri laun en fólk sem sinni sama starfi. Munurinn getur hlaupið á 30 til 66 þús­und krónum mán­að­ar­lega. Haukur segir að slík launa­hækkun og sú ein­greiðsla sem BSRB hefur kraf­ist geti haft mikil áhrif fyrir fjöl­skyldu hans, sem sam­anstendur af Hauki, eig­in­konu hans og fjórum börnum. Fjöl­skyldan hefur þurft að draga saman seglin í mat­ar­inn­kaupum og fleiru vegna verð­bólg­unnar.

„Maður reynir að sneiða fram hjá vörum sem maður keypti áður og maður getur ekki leyft börn­unum sínum það sama og áður,“ segir Haukur um það hvernig er að lifa á þeim launum sem hann er með í dag. Hann vill ekki greina frá því hversu margar krónur hann fær mán­að­ar­lega, ein­fald­lega vegna þess að þær eru svo fáar. „Maður lætur reikn­ing­ana ganga fyrir og svo verður maður bara að lifa á rest­inni.“

Haukur vakn­aði klukkan 5:30 í gær­morgun þar sem hann hafði átt að mæta til vinnu klukkan sex. Það varð þó ekk­ert úr því vegna verk­falls­ins, en íþrótta­mið­stöð­inni var lokað vegna þess.  

„Við erum ómissandi,“ segir Haukur. „Það er fullt af fólki sem kemur þarna dag­lega, sér­stak­lega eldra fólkið sem er vant að koma í pott­ana og spjalla. Það er gott fyrir fólk þegar fólk er eitt og annað að geta farið í pott­ana og spjallað, haft gaman.“

„Ég elska vinnuna mína“

Haukur og Magda­lena eru á meðal þess fólks sem sinnir lægst laun­uð­ustu störfum lands­ins. Á meðan Haukur tekur á móti fólki sem ætlar í sund eða íþróttir, fylgist með því að eng­inn fari sér að voða og sinnir þrifum hittir Magda­lena börnin á leik­skól­anum, leikur við þau, kennir þeim og sinnir stuðn­ingi við barn sem á því þarf að halda. Eins og skýrt kemur fram með þeim áhrifum sem verða af því þegar fólk eins og Haukur og Magda­lena leggja niður störf, þá gæti sam­fé­lagið ekki gengið sinn vana­gang án þeirra. 

„Ég elska vinn­una mína og hlakka til á hverjum degi að mæta í hana og hitta sam­starfs­fé­laga mína og alla kúnn­ana,“ segir Haukur, sem eins og Magda­lena óskar þess að brátt nái BSRB og Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga að semja um kjör þeirra svo þau geti aftur mætt til vinnu og hitt allt fólkið sem þeim þykir vænt um. En þangað til þau hafa fengið jöfn kjör og fólk sem sinnir sömu störfum eru þau til­búin í að berj­ast fyrir því með því að leggja niður störf.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjarabaráttan

Kjaraviðræður stranda á forsenduákvæðum og breiðfylkingin fundar um mögulegar verkfallsaðgerðir
GreiningKjarabaráttan

Kjara­við­ræður stranda á for­sendu­á­kvæðum og breið­fylk­ingin fundar um mögu­legar verk­falls­að­gerðir

Formaður VR fékk í gær sam­þykkta heim­ild til þess að grípa til aðgerða og félög innan breið­fylk­ing­ar­innar hafa blásið til fundar í dag þar sem rætt verður um næstu skref. Um tals­verðan við­snún­ing er að ræða frá því að kjara­við­ræður hófust fyrst. Nú hafa við­ræð­urnar harðnað og er það fyrst og fremst vegna ósættis um for­sendu­á­kvæði í langa­tíma­kjara­samn­ingnum.
Af hverju dó hamingjan milli breiðfylkingarinnar og Samtaka atvinnulífsins?
GreiningKjarabaráttan

Af hverju dó ham­ingjan milli breið­fylk­ing­ar­innar og Samtaka atvinnu­lífs­ins?

Allt annar tónn hefur verið í kjara­bar­átt­unni nú en síð­ustu miss­eri. Við­semj­endur ætl­uðu að taka höndum saman og auka stöð­ug­leika í efna­hags­líf­inu. En svo heyrð­ist lítið af fram­gangi. Í þess­ari viku var við­ræðum slitið og deil­unni vísað til rík­is­sátta­semj­ara. Margir klór­uðu sér í hausnum og spurðu hvað hefði eig­in­lega gerst? Svarið við því er: ansi margt.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár