Skatturinn samþykktur: Eigandi Arnarlax mótmælir

Norska lax­eld­is­fyr­ir­tækið Salmar er ósátt við aukna skatt­lagn­ingu á grein­ina í Noregi. Fyr­ir­tækið hefur sagt að skatt­lagn­ingin dragi úr mögu­leikum á fjár­fest­ingum í Noregi en geti aukið þær á Íslandi.

Kominn í stjórn
Kominn í stjórn Stofn­andi Salmar og helsti eig­and­inn í gegnum tíð­ina, Gustav Witzoe, er kom­inn í stjórn Arnarlax á Íslandi í fyrsta skipti. Nú eru fjórir af fimm stjórn­ar­mönnum norskir en eini Íslend­ing­ur­inn er Kjartan Ólafsson.

Norska Stór­þingið sam­þykkti að rúm­lega tvö­falda skatt­lagn­ing­una á sjó­kvía­eldið í land­inu þann 31. maí. Eigandi Arnarlax á Bíldudal, norska lax­eld­is­fyr­ir­tækið Salmar, mót­mælir þess­ari auknu skatt­lagn­ingu harð­lega í til­kynn­ingu til norsku kaup­hall­ar­innar sem dag­sett er sama dag. Með ákvörð­un­inni mun auð­linda­skatt­ur­inn í norsku sjó­kvía­eldi hækka úr 22 pró­sent og upp í 47 og mun hann gilda aft­ur­virkt frá 1. jan­úar 2023. Mikið hefur verið fjallað um skatt­lagn­ing­una í norskum fjöl­miðlum síð­ast­liðna mán­uði en nú hefur hún loks­ins verið ákveðin með knöppum meiri­hluta atkvæða á norska þing­inu. 

Í til­kynn­ing­unni segir Salmar að for­sendur skatt­lagn­ing­ar­innar byggi á röngum for­sendum: „Salmar hefur alltaf gagn­rýnt nýju skatt­lagn­ing­una harð­lega þar sem hún byggir á þeim röngu for­sendum að mat­ar­fram­leiðsla sjó­kvía­eld­is­ins sé stað­bundin auð­linda­at­vinnu­grein sem skilar óeðli­lega mik­illi arð­semi sem er ekki í neinu sam­ræmi …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hlynur Vilhjálmsson skrifaði
    Spilltir Norðmenn leita í skjól til Sjálfstæðisflokksins.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár