Stjórnarflokkarnir vilja hverfa frá beinum styrkjum til fjölmiðla og endurskoða rekstur RÚV

Ósætti er milli stjórn­ar­flokk­anna um hvernig eigi að haga stuðn­ingi við einka­rekna fjöl­miðla. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur aðra skoðun en hinir tveir. Nú hefur náðst mála­miðlun sem felur í sér að stjórn­ar­þing­menn í alls­herjar- og mennta­mála­nefnd gera meg­in­stefið í stefnu Sjálf­stæð­is­flokks­ins að sinni gegn því að fá fyr­ir­liggj­andi frum­varp um styrki til fjöl­miðla í gegn út árið 2024.

Stjórnarflokkarnir vilja hverfa frá beinum styrkjum til fjölmiðla og endurskoða rekstur RÚV
Formaður Bryndís Har­alds­dóttir, þing­maður Sjálff­stæð­is­flokks­ins, er for­maður alls­herjar- og mennta­mála­nefndar og einn þeirra fimm nefnd­ar­manna sem skrifa undir meiri­hluta­á­litið í styrkja­mál­inu. Mynd: Bára Huld Beck

Alls­herjar- og mennta­mála­nefnd hefur afgreitt frum­varp um stuðn­ing við einka­rekna fjöl­miðla til ann­arrar umræðu. Hún mun fara fram síðar í dag. Frum­varpið hefur setið fast í nefnd­inni í fimm mán­uði þrátt fyrir að í grunn­inn sé um fram­leng­ingu á lögum sem áður höfðu verið sam­þykkt að ræða. Samkvæmt breyt­ing­ar­til­lögum meiri­hlut­ans mun styrkja­kerfið verða fest í sessi út næsta ár og lands­byggð­ar­miðlar fá 20 pró­sent álag ofan á styrki til sín. Orða­lags­breyt­ingum um lýð­ræð­is­legt mik­il­vægi fjöl­miðla hefur einnig verið kastað út. 

Í áliti meiri­hluta alls­herjar- og mennta­mála­nefndar segir enn fremur að „til fram­búðar er mik­il­vægt að horfið verði frá beinum styrk­veit­ingum rík­is­ins til fjöl­miðla enda stang­ast það á við eitt af meg­in­hlut­verkum fjöl­miðla sem er að veita stjórn­völdum aðhald.“

Í álit­inu segir að meiri­hlut­inn telji mik­il­vægt að  styðja áfram við einka­rekna fjöl­miðla en að það verði gert með „óbeinum hætti“. Þar segir einnig að meiri­hlut­inn telji „að full ástæða sé til að end­ur­skoða rekstur Rík­is­út­varps­ins hvað aug­lýs­inga­deild­ina varðar og telur æski­legt að hún verði lögð niður og aug­lýsendur geti pantað aug­lýs­ingar í gegnum vef Rík­is­út­varps­ins, þar sem fyrir liggur verð­skrá sem ekki er veittur afsláttur af.“

Undir álitið skrifa Bryndís Har­alds­dóttir, for­maður nefnd­ar­innar, og Birgir Þór­ar­ins­son frá Sjálf­stæð­is­flokki, Lilja Rannveig Sig­urð­ar­dóttir og Jóhann Friðrik Frið­riks­son frá Fram­sókn­ar­flokki og Jódís Skúla­dóttir frá Vinstri grænum. 

Stanslaus átök milli stjórnarflokka

Ákveðið vanda­mál var samt sem áður til staðar. Þrátt fyrir að gert sé ráð fyrir fjár­munum í styrkja­kerfið á fjár­lögum og í fjár­mála­á­ætlun til næstu fimm ára runnu lögin um kerfið út um síð­ast­liðin ára­mót. Því þurfti að Lilja D. Alfreðs­dóttir, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra, að leggja fram frum­varp í des­em­ber sem í fólst að kerfið yrði fram­lengt til tveggja ára.

Það hafa verið mikið átök milli stjórn­ar­flokk­anna um þessi lög, þrátt fyrir að upp­hæðin sem verið er að veita í styrk­ina sé 0,02 pró­sent af áætl­uðum heild­ar­út­gjöldum rík­is­sjóðs á þessu ári. Þau átök hafa meira og minna staðið yfir síðan að nefnd til að móta til­­lögur um styrk­ingu rekstr­­ar­um­hverfis einka­rek­inna fjöl­miðla, undir for­ystu Björg­vins Guð­munds­sonar, skil­aði af sér skýrslu í byrjun árs 2018 þar sem fjöl­margar til­lögur voru lagðar fram. Ein þeirra var að setja upp styrkja­kerfi fyrir fjöl­miðla.

Það var Illugi Gunn­ars­son, þáver­andi mennta­mála­ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem skip­aði nefnd­ina síðla árs 2016. Þrátt fyrir það hefur sá flokkur barist hart gegn því að ýmsar til­lögur nefnd­ar­innar nái fram að ganga, sér­stak­lega styrkja­kerfið. Fyrstu til­raunir Lilju til að koma því á voru kæfðar af sam­starfs­flokknum. 

Björg­vins­nefndinBjörgvin Guð­munds­son afhenti Lilju D. Alfreðs­dóttur skýrslu nefnd­ar­innar sem hann stýrði í byrjun árs 2018.

Þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á náð­ist sátt innan stjórn­ar­innar um að taka þá fjár­­­­muni sem búið var að heita í styrk­ina og breyta þeim í ein­­­­skiptis neyð­­­­ar­­­­styrk vegna COVID-19. Lilju var falið að útfæra greiðslu þeirra í reglu­­­­gerð. Það gerði hún í byrjun júlí. Útfærslan sem þar var stuðst við færði rúm­lega fjórð­ung af styrkt­ar­pott­inum frá minni fjöl­miðlum til þeirra þriggja stærstu.

Stuðn­ings­kerfið var svo loks lög­fest 1. ágúst 2021 á for­sendum sem voru nær því sem upp­haf­lega var lagt upp með en ein­ungis með gild­is­tíma út árið 2022. 

N4-styrkurinn fer í pottinn

Í rekstr­ar­styrk til einka­rek­inna fjöl­miðla sem upp­fylla ákveðin skil­yrði felst að hlut­fall af rit­stjórn­ar­kostn­aði þeirra er end­ur­greidd­ur.

Samkvæmt fjár­lögum gild­andi árs eru 377 millj­ónir króna ætl­aðar í þessa rekstr­ar­styrki. Í síð­ustu útgreiðslu fóru alls 53 pró­sent upp­hæð­ar­innar til þriggja stærstu einka­reknu fjöl­miðla­­­­­fyr­ir­tæki lands­ins, Árvak­­­­­urs, Sýnar og Torgs, en hvert þeirra fékk 66,7 millj­­ónir króna.

Fjöl­miðla­fyr­ir­tækið N4, sem rekur ekki frétta­stofu en fram­leiðir ýmis konar efni, óskaði í des­em­ber eftir því að fá 100 milljón króna styrk úr rík­is­sjóði. Fjár­laga­nefnd sam­þykkti styrk­veit­ing­una en nefnd­ar­menn sögðu síðar að hún ætti að skipt­ast á fleiri sem fram­leiða sjón­varps­efni á lands­byggð­inni. N4 er eina sjón­varps­stöðin á lands­byggð­inn­i. 

Eftir að málið rataði í fjöl­miðla var ákveðið að breyta úthluta fjár­mun­unum með öðrum hætti. Í nefnd­ar­á­liti fjár­laga­nefndar fyrir þriðju umræðu fjár­laga­frum­varps­ins sagði að í ljósi „um­ræðu í fjöl­miðlum beinir meiri hlut­inn því til ráð­herra að end­­ur­­skoða þær reglur sem gilda um rekstr­­ar­­stuðn­­ing við einka­rekna fjöl­miðla á lands­­byggð­inni þannig að aukið til­­lit verði tekið til þeirra sem fram­­leiða efni fyrir sjón­­varp.“

Því var ákveðið að fjár­­fram­lagið myndi renna inn í styrkja­­kerfi fyrir einka­rekna fjöl­miðla og hækka þá upp­­hæð sem þar verður til úthlut­unar úr 377 millj­­ónum króna á næsta ári, í 477 millj­­ónir króna.

Andstaða eins stjórnarflokks 

Lilja gerði ýmsar breyt­ingar á lög­unum í frum­varp­inu sem hún lagði fram í des­em­ber. Til dæmis var orða­lagi um mark­mið lag­anna breytt þannig að í frum­varp­inu var mælt fyrir um að fjöl­miðlar séu horn­steinn lýð­ræðis og vísað til þess að stuðn­ings­kerfið væri fyr­ir­sjá­an­legt. Gild­is­tím­inn átti að vera út árið 2025 og eftir það ætti fram­tíð­ar­fyr­ir­komu­lag stuðn­ings við fjöl­miðla, sem tvær nefndir eiga að móta í sumar, að liggja fyrir. Þetta var í sam­ræmi við stjórn­ar­sátt­mála Fram­sókn­ar­flokks, Sjálf­stæð­is­flokks og Vinstri grænna þar sem segir að rík­is­stjórnin ætli sér að efla starf­semi einka­rek­inna fjöl­miðla og styrkja lýð­ræð­is­hlut­verk fjöl­miðla.

Þrátt fyrir að fimm mán­uðir séu síðan að lögin runnu út og örfáir mán­uðir fram að því að skila þarf inn umsókn vegna styrkja­kerf­is­ins þá hefur afgreiðsla frum­varps­ins setið föst í alls­herjar- og mennta­mála­nefnd af gam­al­kunnum ástæðum, and­stöðu Sjálf­stæð­is­flokks­ins. 

Þannig hafa mál staðið þrátt fyrir að einn stærsti og áhrifa­mesti einka­rekni fjöl­mið­ill lands­ins, Frétta­blaðið, hafi orðið gjald­þrota í lok mars. Með því hvarf annað af tveimur dag­blöðum lands­ins og fjöl­ræði á fjöl­miðla­mark­aði dróst veru­lega saman.

Nefnd­ar­menn hans greindu frá því snemma í maí­mán­uði að flokk­ur­inn vildi breyt­ingar á frum­varp­inu. Allskyns fyr­ir­varar voru settir við það að sam­þykkja frum­varpið. Samkvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar voru þar á meðal breyt­ingar á stöðu RÚV á aug­lýs­inga­mark­aði og aukið svig­rúm fyrir áfengis- og/eða veð­mála­aug­lýs­ingar hjá íslenskum fjöl­miðlum. Sú helsta var þó að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn vildi ekki að styrkja­kerfið myndi verða við lýði lengur en út þetta ár. Gild­is­tími lag­anna ætti að vera hálft ár. 

Vilja hverfa frá beinum styrkjum

Nú liggur fyrir mála­miðlun í formi breyt­ing­ar­til­lögu meiri­hlut­ans. Í henni felst að alls­herjar- og mennta­mála­nefnd hefur kastað þeim orða­lags­breyt­ingum Lilju um að fjöl­miðlar séu lýð­ræð­is­lega mik­il­vægir. Þess í stað er tekið upp það orða­lag sem var í lög­unum sem runnu út um síð­ustu ára­mót. Í stað­inn fær frum­varpið að gilda út árið 2024, eða til eins og hálfs árs. 

Í meiri­hluta­á­lit­inu, sem allir nefnd­ar­menn stjórn­ar­flokk­anna skrifa undir án fyr­ir­vara, segir meðal ann­ars að hann telji mik­il­vægt að stjórn­völd haldi áfram að styðja við einka­rekna fjöl­miðla, en leit­ist við að gera það með óbeinum hætti, svo sem með því að fjölga tekju­öfl­un­ar­mögu­leikum þeirra eða með skatta­legum íviln­unum. „Til fram­búðar er mik­il­vægt að horfið verði frá beinum styrk­veit­ingum rík­is­ins til fjöl­miðla enda stang­ast það á við eitt af meg­in­hlut­verkum fjöl­miðla sem er að veita stjórn­völdum aðhald.“

Nefnd­ar­mennJódís Skúla­dóttir og Jóhann Friðrik Frið­riks­son skrifa bæði undir álit meiri­hlut­ans.

Þar er einnig fjallað um RÚV þrátt fyrir að frum­varpið snúi með engum hætti að því opin­bera fyr­ir­tæki. Í álit­inu segir að meiri­hlut­inn telji „að full ástæða sé til að end­ur­skoða rekstur Rík­is­út­varps­ins hvað aug­lýs­inga­deild­ina varðar og telur æski­legt að hún verði lögð niður og aug­lýsendur geti pantað aug­lýs­ingar í gegnum vef Rík­is­út­varps­ins, þar sem fyrir liggur verð­skrá sem ekki er veittur afsláttur af.“

Á móti beinum styrkjum

Einn stjórn­ar­flokkur er með það á stefnu­skrá sinni að styrkja einka­rekna fjöl­miðla ekki með beinum hætti, Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn.

Í stjórn­mála­á­lyktun flokks­ráðs­fundar flokks­ins sem sam­þykkt var skömmu fyrir síð­ustu kosn­ingar kom fram að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn vilji frekar breyta skattaum­hverfi þeirra og tak­marka veru­lega umfang RÚV á mark­aði. „Um­fang RÚV á aug­lýs­inga­mark­aði og sam­keppni við stór erlend tækni­fyr­ir­tæki, sem búa við mun hag­stæð­ara skattaum­hverfi, hafa haft veru­lega nei­kvæð áhrif á rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla. Rekstur rík­is­ins á fjöl­miðlum má ekki hamla frjálsri sam­keppni og raska rekstr­ar­grund­velli ann­arra fjöl­miðla. Tak­marka á veru­lega umfang RÚV og bæta skattaum­hverfi fjöl­miðla.“

Allt aðrar stefnur

Í stjórn­mála­á­lyktun Vinstri grænna, sem er rétt rúm­lega tveggja mán­aða gömul, sagði meðal ann­ars: „Rík­is­út­varpið hefur mik­il­vægu hlut­verki að gegna við að tryggja upp­lýsta umræðu. Hins vegar er ástæða til að lýsa yfir áhyggjum af bágri rekstr­ar­stöðu einka­rek­inna fjöl­miðla og mik­il­vægt að sátt skap­ist um fram­tíð­ar­stuðn­ing hins opin­bera við þá.“

Í stefnu sem sam­þykkt var á sama fundi sagði að verja skuli sjálf­stæði fjöl­miðla og rit­stjórn­ar­legt frelsi. „Styðja skal fjöl­miðla sem sinna óháðri frétta­öflun, grein­andi blaða­mennsku og halda úti lýð­ræð­is­legri sam­fé­lags­um­ræðu. [...] Rík­is­út­varpið skal áfram vera öfl­ugur fjöl­mið­ill í almanna­þágu, rek­inn fyrir útvarps­gjald og sjálfsaflafé.“ Samkvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar hefur Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra stutt að frum­varpið um áfram­hald­andi beina styrki úr rík­is­sjóði til einka­rek­inna fjöl­miðla verði sam­þykkt. 

​​Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn fjallar ekk­ert um fjöl­miðla í sinni kosn­inga­stefnu­skrá en í almennri stefnu­skrá flokks­ins segir hins vegar að fjöl­miðlar séu mik­il­væg upp­lýs­inga­veita almenn­ings í lýð­ræð­is­legu sam­fé­lagi. Stefna flokks­ins birt­ist fyrst og fremst í því að vara­for­maður flokks­ins, ráð­herra fjöl­miðla­mála, hefur ítrekað talað fyrir því að styrkja­kerfið verði fest í sessi, ásamt öðrum leiðum til að styrkja fjöl­ræði á fjöl­miðla­mark­aði.

400 óskýrum milljónum bætt við

Í fimm ára fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar, sem lögð var fram í mars, kom fram að árlegur stuðn­ingur við einka­rekna fjöl­miðla verði auk­inn um 400 millj­ónir króna á næsta ári og verði þá um 777 millj­ónir króna. Við­bót­ar­fram­lagið, sem ætlað er „tryggja fjöl­breytni á fjöl­miðla­mark­aði“ mun verða tryggt til fimm ára, eða út árið 2028. Þar kom einnig fram að til stæði að festa gild­andi styrkja­kerfi í sessi út sama tíma­bil. Sú afstaða hefur, nú tveimur mán­uðum síðar, breyst. 

Samkvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar stendur til að miðla við­bót­ar­fjár­hæð­inni til fjöl­miðla í gegnum skattaí­vilnun og er aðgerð­inni ætlað að hvetja fjöl­miðla til að taka upp áskrift­ar­fyr­ir­komu­lag. Útfærsla á leið­inni er þó ekki til­greind í áætl­un­inni en verið er, meðal ann­ars, að horfa til þess að gefa skatta­af­slætti af því að vera áskrif­andi að fjöl­miðli á sama hátt og gert er með almanna­heilla­fé­lög.

Heim­ildin er einn þeirra fjöl­miðla sem upp­­­­­fyllir skil­yrði fyrir rekstr­­­ar­­­styrk úr rík­­­is­­­sjóði.

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Alveg með ólíkindum að fólk sem er í pólitík og á alls ekki að koma nálægt peningum okkar hinna, og ætlar að rústa RÚV bara út af sínum persónulegum skoðunum ?

    Framsóknarflokkurinn, sjálfstæðisflokkurinn og VG ætla að rústa öllum innviðum íslensks samfélags, RÚV er bara byrjunin ? Viltu láta það gerast ?
    0
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Látið þið Ríkisútvarpið í friði, hvað hefur það gert ykkur?
    1
    • Jón Ragnarsson skrifaði
      Er sammála þér. Látið RÚV okkar allra vera !
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár