Fyrstu tvær innrásir okkar í Evrópu mistókust

Hingað til hafa menn talið að Neand­er­dals­mað­ur­inn og Homo sapi­ens hafi búið hvorir innan um annan í Evrópu í 10–20 þús­und ár. Nýjar rann­sóknir í helli í Frakk­landi leika þá frið­sælu mynd illa.

Fyrstu tvær innrásir okkar í Evrópu mistókust
Neand­er­dals­maður og Sapiens Hinir hol­lensku Kennis-bræður sköp­uðu þessi líkön af frænd­unum Neand­er­dals­manni og Sapiens.

Barnið var veikt og þetta leit ekki vel út. Móðirin hafði það á brjósti eins mikið og hún gat en það virt­ist samt ekki nær­ast almenni­lega. Kannski var mjólkin ekki næg. Móðirin fékk oft sjálf ekki alveg nóg að borða. Þó kom veiði­fólkið yfir­leitt með þokka­lega bráð á nokk­urra daga fresti og þau liðu ekki bein­línis hungur þarna í skút­anum undir hlíð­inni.

Þar hafði fólkið búið síðan Afi og Amma komu með hóp­inn upp þennan dal fyrir fjöru­tíu sumrum og ráku Dala­fólkið úr hell­inum. Þá var dal­ur­inn grös­ugur. Nú voru Afi og Amma löngu dáin og það hafði fækkað í hópnum. Dala­fólkið sem fyrir var um allt hér­aðið hafði ekki tekið nýja fólk­inu vel og kannski ekki von. Stundum hafði verið barist og Dala­fólkið hafði drepið all­nokkra úr hópi Afa og Ömmu. Að vísu var langt síðan, síðan hafði friður ríkt en nú var eins og gróskan í dalnum …

Kjósa
26
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár