Hver var böðull Bandera?

Illugi Jök­uls­son heldur áfram að segja frá morð­inu á Stepan Bandera sem sumir Úkra­ínu­menn töldu frels­is­hetju og bar­áttu­menn fyrir sjálf­stæði þjóð­ar­innar en aðrir fyr­ir­líta sem sam­verka­mann þýskra nas­ista. Óhætt er að segja að rann­sókn á morð­inu hafi tekið óvænta stefnu.

Hver var böðull Bandera?
Bohdan Stashyn­sky Fjöl­skylda hans studdi Bandera en hann fékk það hlut­verk að drepa hann.

Að morgni 13. ágúst 1961 gekk heil­mikið á á lít­illi lög­reglu­stöð nálægt Tempel­hof flug­stöð­inni í Berlín. Óljósar fréttir höfðu borist af því eldsnemma að aust­ur­þýskir landamæra­verðir hefðu byrjað um nótt­ina að leggja miklar gadda­vírs­girð­ingar yfir Berlín þvera og endi­langa og ætl­uðu greini­lega að króa Vestur-Berlín alveg af. Var þetta und­ir­bún­ingur að inn­rás Austur-Þjóð­verja og hinna sov­ésku herra þeirra inn í Vestur-Berlín og kannski Vestur-Þýska­land? Ættu lög­reglu­menn­irnir á stöð­inni að leggja á flótta? En hvert þá?

En einmitt þegar lög­reglu­menn­irnir við Tempel­hof voru að reyna að átta sig á þessum fréttum – sem í raun þýddu upp­haf Berlín­ar­múrs­ins og síðan víg­girð­ingar eftir öllum landa­mærum Austur- og Vestur-Þýska­lands – þá stigu þrjár mann­eskjur út úr leigu­bíl við stöð­ina og gengu inn á stöð­ina. Miðaldra karl, nokkuð flaust­urs­legur, var tals­maður hinna tveggja, ungs pars og virt­ust þau bæði miður sín og döpur í bragði.

Karl hefur sögu að segja

Karlinn …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Takk fyrir greinina. Saga Austur Evrópu er flókin og marglaga en alltaf mjög þrungin af tilfinningum og ástríðu. Ég hef verið mikið tengdur þessum heimshluta í 20 ár og dvalið þar oft ,reyndar mest í Póllandi en farið um og kynnst fleiri löndum í nágrenninu. Þetta er heillandi heimshluti ,þrunginn af sögu sem við í Vestur Evrópu þekkjum alltof lítið.Ef einhver hefur áhuga að lesa sig meira til þá bendi ég á höfunda eins og Timothy Snyder og Serhii Plokhy, þetta eru höfundar sem hafa skrifað um þessi lönd af dýpt og skilningi. Einnig hefur nýlega komið á hlaðvarpi heill fyrirlestrar áfangi í Yale háskóla þar sem Tymothy Snyder fór í gegnum sögu Úkraínu frá tímum forn Grikklands til dagsins í dag.
    2
    • Stefán Valdemar Snævarr skrifaði
      Hef líka lært margt af þeim Snyder og Plokhy en finnst Plokhy svo lítið í því að bera í bætifláka fyrir Bandera og fleiri úkraínska sjálfsstæðissinna.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið undanfarið ár