Konan sem eltir stríð

Åsne Seier­stad er marg­verð­laun­aður norskur blaða­maður og rit­höf­undur, sem hefur varið hátt í þremur ára­tugum í að fjalla um líf á átaka­svæðum. Sem ung stúlka fór hún frá frið­sælu landi yfir til Téténíu þar sem hún horfð­ist í augu við ofbeldi og dauða og varð sjálf skot­mark. Nú á hún fund með Katrínu Jak­obs­dóttur.

Konan sem eltir stríð

Bókin Bók­sal­inn í Kabúl vakti heims­at­hygli en við und­ir­bún­ing hennar dvaldi Åsne á heim­ili hans í fjóra mán­uði. Í bók­inni Einn af okkur segir hún sög­una af norska hryðju­verka­mann­inum Breivik og fórn­ar­lömbum hans. Nýverið gaf hún út bók­ina Afganir. Þar fylgir hún ann­ars vegar eftir talí­bönskum leið­toga, ungum nem­anda sem missti alla von, og hins vegar femínískum aktí­vista, fyrsta árið eftir að talí­banar náðu aftur völdum þar í landi. 

„Áhuga­vert,“ er fyrsta orðið sem hún notar aðspurð um hvernig það hafi verið að fylgja eftir talí­bönskum leið­toga. „Ekki síst vegna þess að við eigum svo lítið sam­eig­in­legt. Hann er leið­togi talí­bana, á þrjár eig­in­konur og urmul af börnum sem fara ekki í skóla. „Ef þú hefðir komið hingað í fyrra hefði ég rænt þér til að fá pen­inga,“ sagði hann við mig og meinti það. Hann var mjög hrein­skil­inn og útskýrði vel hvernig hann vinnur fyrir talí­bana. En svo …

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Reynir Vilhjálmsson skrifaði
    Ég hef verið að hugsa hvað er það sem drífur þessa konu til fara aftur og aftur á þessa hættulegu og hörmulegu staði? Er það kanski spurningin hvers vegna gerist þetta og hvað drífur illskuna áfram sem verður stöðugt meira íþyngjandi með hverju stríði? Ég hef oft spurt mig hvers vegna ég hef ennþá sloppið við að vera í stríði. Hef ég nokkuð unnið til þess?
    0
  • Reynir Vilhjálmsson skrifaði
    Lærdómsrík grein. Ég hef oft verið í sambandi við fólk sem hefur upplifað stríð og veit að það er ómögulegt að setja sig fullkomlega í spor þess sem það hefur reynt. Greinin er stórkostleg vegna þess að hún gefur okkur pínulitla hugmynd um það sem er að gerast.
    0
  • JÍ
    Jón Ívarsson skrifaði
    Mögnuð frétt og geysilega vel skrifuð.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bókmenntahátíð 2023

Mósaík stórstjarna á bókmenntahátíð – og heyrt í einni stjörnu ...
ViðtalBókmenntahátíð 2023

Mósaík stór­stjarna á bók­mennta­há­tíð – og heyrt í einni stjörnu ...

Nú, þegar far­fuglar flykkj­ast til lands­ins, er að skella á Bók­mennta­há­tíðin í Reykja­vík en hún hefst 19. apríl með ævin­týra­lega til­komu­mik­illi dag­skrá – eins og alltaf. Þunga­vigt­ar­höf­undar á heims­mæli­kvarða streyma til lands­ins og land­anum gefst færi á að spyrja þá spjör­unum úr, plata þá til að skrifa á bækur og heyra þá fjalla um verk sín.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár