Hakkavél ritskoðunar – að ritskoða frekar en ræða Roald Dahl

Salvör Gullbrá & Jakob Bjarnar rýna í menn­ing­ar­á­tök.

Hakkavél ritskoðunar – að ritskoða frekar en ræða Roald Dahl

Nýlega mátti lesa í fréttum að verið sé að end­ur­út­gefa barna­bækur Roalds Dahl en búið væri að breyta text­anum; skipta út orðum, umbreyta setn­ingum og hreinsa bæk­urnar af því sem ekki þykir stand­ast gildi nútím­ans, já, til að gera hann aðgengi­legri nútímales­endum. Roald Dahl hefur skrifað margar frægar barna­bækur, eins og bók­ina Matt­hildi, sem fjallar um stelpu sem les svo mikið að hún er sterk­ari og klár­ari en allt full­orðna fólkið, sögu­hetja sem er fem­inísk sögu­hetja á borð við Línu Langsokk og hefur hvatt ófá börnin til að lesa. En í umræðu um þessar breyt­ingar voru ein­hverjir gagn­rýnir á end­ur­skrifin á verkum hans, frekar á því að leyfa bók­unum bara að hverfa af mark­aði, þeirra á meðal rit­höf­und­ur­inn frægi Philip Pullman. Aðrir vildu meina að hann væri bara orð­inn úreltur.

En getur höf­undur sem býr til sögu­hetju eins og Matt­hildi orðið úreltur?

Salman Rushdie
Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Reynir Vilhjálmsson skrifaði
    Mér er spurn: Eigum við að banna íslendingasögurnar? Þær eru fullar af vondum hlutum. Eiðilagði það líf mitt að ég las þegar ég var 10 ára Bósasögu og Herrauðs? Er Grettissaga hættuleg börnum?
    Umræðan um fölsun á bókmenntum er svo fáránleg að ég fæ ekki lokað munninum. En hvað er með alla krimmana sem eru sýndir í sjónvarpinu dag og nótt?
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár