„Það dugar ekkert að tala hátt“

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra var gagn­rýndur á þing­inu í dag fyrir talsmáta gagn­vart Ingu Sæland. Hann sagði við hana að ekki dugði að tala hátt. Hún svar­aði: „Víst.“

„Það dugar ekkert að tala hátt“
Heild­ar­hags­munir Fjár­mála­ráð­herra segir að hann horfi til heild­ar­hags­muna þegar rætt sé um stöðu barna í sam­fé­lag­inu. Mynd: Bára Huld Beck

„Hátt­virtur þing­maður segir að það dugi ekk­ert að tala og þá segi ég bara á móti: „Það dugar ekk­ert að tala hátt.““

Þetta sagði Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag en Inga Sæland for­maður Flokks fólks­ins spurði hann út í vax­andi fátækt barna á Íslandi. 

Ráð­herr­ann var gagn­rýndur í fram­hald­inu fyrir að tala af óvirð­ingu við Ingu. 

Engin áætlun hjá ríkisstjórninni til að útrýma fátækt

Inga hóf fyr­ir­spurn sína á því að rifja upp að árið 2016 hefði UNICEF á Íslandi birt tölur um stöðu íslenskra barna hvað varðar efna­hag. „9,1 pró­sent íslenskra barna bjuggu þá við mis­mik­inn skort. Í dag er þessi tala 13,1 pró­sent.“

Hún sagði að fjár­mála­ráð­herra gæti aug­ljós­lega séð eftir alla hans reynslu í pen­inga­málum að þetta væri ansi öfl­ugur vöxtur. „Þetta er yfir 40 pró­sent vöxtur, ekki satt? Þannig að núna í öllu góð­ær­inu, öllum jöfn­uð­inum, met­hagn­aði, arð­greiðslna og annað slíkt, þá erum við líka að fara að slá met í fátækt íslenskra barna.“

Hvað ætlar ráð­herr­ann að gera?Inga spurði ráð­herr­ann á þingi í dag hvað hann ætl­aði að gera til að slá á fátækt í sam­fé­lag­inu.

Inga sagði jafn­framt að engin áætlun væri hjá rík­is­stjórn­inni eða stefna til að útrýma fátækt. Hún spurði ráð­herr­ann hvað hann væri að gera og ráðu­neyti hans til að slá á þessa óaf­sak­andi þjóð­ar­skömm vax­andi fátæktar sem Íslend­ingar væru að horfast í augu við í dag. Væri hann ánægður með þessa þróun og gæti hann staðið á þingi og talið fátæku fólki trú um það að það hefði það að með­al­tali alveg „svaka­lega fínt“ af því að allar tölur OECD slægju þann takt­inn. 

Horfir á heildarhagsmuni

Bjarni svar­aði og sagði að þarna væri sett á dag­skrá býsna við­kvæmt mál – staða barna í land­inu með til­liti til þess hvernig þau kom­ast af. „Við höfum ýmist verið að ræða um þennan mála­flokk út frá hlut­falls­legri fátækt eða raun­veru­legri fátækt. Það er nú mikið gleði­efni að börn á Íslandi almennt séð í sam­an­burði við börn ann­ars staðar í heim­inum eru miklu, miklu, miklu betur komin. Og nú eru tölur um það að staðan milli þess­ara tíma­bila sem hátt­virtur þing­maður er að vekja athygli á ekki að þró­ast á réttan hátt hjá okkur og við þurfum þá að greina það hvað það er sem er þar að baki vegna þess að við vitum að heim­ilin, sem sagt kaup­máttur heim­il­anna hefur verið að þró­ast á réttan hátt.“

Tók hann sem dæmi að þegar COVID-far­ald­ur­inn reið fyrir þá hefði rík­is­stjórn­inni tek­ist að búa til þannig skjól að kaup­máttur þeirra sem væru með minnstar tekjur á Íslandi hefði mest farið vax­andi. „Og nú geta menn sagt sem svo að það dugi engin með­al­töl og það gagn­ist ekki þeim sem eru neðst í tekju­stig­anum þó að aðrir hafi það ágætt og svo fram­vegis en þetta eru nú engu að síður upp­lýs­ingar sem segja til um það hvernig okkur er heilt yfir að ganga.“

Bjarni sagði að hann væri að horfa á þessa heild­ar­hags­muni. „Svo getum við rætt um það hvernig staðan kemur út fyrir ein­staka hópa og ég hef beitt mér fyrir því að við eigum aðgengi­legar upp­lýs­ingar um þessa stöðu til þess að geta gripið til aðgerða þegar þess ger­ist þörf. Síðasta aðgerð sem að ég beitti mér fyrir og flutti hér á þing­inu var einmitt að hækka barna­bætur.“

„Of mikið talað hér og malað“

Inga þakk­aði ráð­herr­anum fyrir „stórfurðu­legt svar“. „Ég veit ekki hvort ég eigi að hlæja eða gráta. Þetta er alveg með hreinum ólík­indum. Þó svo að börn séu til í heim­inum sem líða skort og deyja úr hungri og séu í mun fátæk­ari löndum og við, rétt­lætir það þá það, hæst­virtur ráð­herra, að börnin okkar og fátækt þeirra skuli fara vax­andi? Og á þinni vakt, hæst­virtur ráð­herra, um ríf­lega fjögur pró­sent á fimm árum? Þau eru núna rúm­lega 10.000 og hvað þýðir það að vera að velta vöngum yfir hinu og þessu og góna úr sér augun ef að aðgerð­irnar eru nán­ast engar?“ spurði hún. 

Telur hún að aðgerða sé þörf. „Það er of mikið talað hér og malað hér og hlut­irnir eru látnir drabb­ast hér of mikið niður án þess að það sé gripið til aðgerða til þess að bæta stöðu þeirra sem bág­ast hafa það í sam­fé­lag­inu.“

Spurði hún hvort það væri virki­lega svo að ráð­herr­ann væri aðal­lega að berj­ast fyrir hags­munum þeirra sem allt eiga á kostnað hinna „sem lepja hér dauð­ann úr skel“.

„Víst“ sagði Inga

Bjarni svar­aði í annað sinn og sagði að Inga segði að ekki dugði að tala og þá segði hann á móti: „Það dugar ekk­ert að tala hátt.“

Inga greip fram í ræð­una og sagði: „Víst.“

Ráð­herr­ann hélt áfram og sagði að það þýddi ekk­ert að æsa sig í ræðu­stól og „þykj­ast með þeirri fram­komu slá út af borð­inu grjót­harðar stað­reyndir sem ég er að tefla hér fram. Sem eru um það að það hefur tek­ist á und­an­förnum árum að bæta lífs­kjörin svo um munar. Síðasta breyt­ing sem sner­ist sér­stak­lega að barna­fólki, fjöl­skyldum með börn var sú að stór­bæta barna­bóta­kerfið, hækka bæt­urnar og gera kerfið sjálft rétt­lát­ara, til dæmis með því að barna­bæt­urnar skil­uðu sér miklu fyrr á árinu. 

Og það er algjör útúr­snún­ingur, algjör útúr­snún­ingur, og reyndar alveg ótrú­lega ómerki­legur mál­flutn­ingur að halda því fram með því að vekja athygli á því að við hér á Íslandi höfum byggt upp sam­fé­lag þar sem börn njóta lífs­gæða sem eru með því besta sem ger­ist í heim­inum að með því sé ég að reyna að rétt­læta þessa þróun sem hátt­virtur þing­maður er að reyna að setja hér á dag­skrá. Ég bara frá­bið mér svona mál­flutn­ingi.“

Árátta „virðist verða gripin um sig hjá körlum í ríkisstjórn“

Nokkrir þing­menn gagn­rýndu ráð­herr­ann fyrir það hvernig hann tal­aði til Ingu í svari sínu. Meðal þeirra var Andrés Ingi Jónsson þing­maður Pírata en hann sagði að þegar Ingi­björg H. Bjarna­son hætti þing­mennsku hefði hún litið bjart­sýn fram á veg­inn og sagt reikna með því að þegar konum fjölg­aði á Alþingi þá myndi það hverfa að ráð­ist yrði á þær sér­stak­lega af því að þær væru konur. 

„Ég nefni þetta vegna þeirri áráttu sem virð­ist verða gripin um sig hjá körlum í rík­is­stjórn. Sigurður Ingi Jóhanns­son sagð­ist í síð­ustu viku að hann vissi ekki hvort ákveð­inn þing­maður næði betri hljóm­grunni með því að koma alltaf með þessa sömu ræðu eða hækka rödd­ina. Hann bara vissi það ekki. Í dag sagði Bjarni Bene­dikts­son: „Það dugar ekki að tala hátt. Það dugar ekki að æsa sig hér í ræðu­stól.“ Hvað eiga þessir þing­menn sam­eig­in­legt annað en að vera for­menn stjórn­mála­flokka? Jú, þetta eru konur sem ráð­herr­unum finnst sér­stök ástæða til að minna á að nota inni­rödd­ina þegar þær eru að biðja þá góð­fús­lega að svara spurn­ingum. „Stelpur, notið´i inni­rödd­ina,“ segja ráð­herr­arnir hérna, viku eftir viku eftir viku.“

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár