Að ljá táningsstúlkum rödd

Sara Gunn­ars­dóttir var til­nefnd fyrir bestu stuttu teikni­mynd­ina, fyrir My Year of Dicks, á Ósk­arsverð­laun­unum sem afhent voru síð­ustu helgi. Hún hlaut ekki stytt­una að þessu sinni en ætlar að halda áfram að ein­beita sér að því sem hún er góði í: „Mér finnst ógeðs­lega gaman að geta ljáð tán­ings­stúlkum rödd. Þannig að ég ætla bara að leyfa þessu að koma til mín.“

Að ljá táningsstúlkum rödd
Á Ósk­arsverð­launa­há­tíð­inni Sara Gunn­ars­dóttir vissi lítið um teikni­myndir þegar hún byrj­aði í masers­námi í California Institute of the Art en var til­nefnd til Ósk­arsverð­launa í ár fyrir bestu stuttu teikni­mynd­ina, My Year of Dicks. Í kvik­mynda­heim­inum er kvikun (e. animation) ljóð­list fyrir Söru og henni finnst skemmti­leg­ast að fjalla um til­finn­ingar. Mynd: afp

„Ég elska að nota kvikun (e. animation) til að tjá stórar til­finn­ingar. Sögulega hafa teikni­myndir verið barna­efni, en það er sem betur fer mikið að breyt­ast. Í gegnum tíð­ina hefur verið svo erfitt að gera teikni­myndir, því þarf svo mikla pen­inga og mann­afla til. En nú er fullt af kvik­un­ar­lista­mönnum sem þurfa ekk­ert leyfi eða pen­inga, og eru að gera ótrú­lega fal­lega list heima hjá sér, af því við erum með After Effects og öll þessi kvik­un­ar­for­rit. Nú er komin ný kvik­un­ar­list sem er mögnuð. Þetta hefur kannski mest verið í litlum hópum á net­inu, en þetta er hægt og rólega að brjót­ast í gegn,“ segir Sara Gunn­ars­dóttir og bætir við: „Í kvik­mynda­heim­inum er kvik­unin ljóð­listin fyrir mér. Mér finnst skemmti­leg­ast að fjalla um til­finn­ingar.“

Houston 1991„Ég elska að nota kvikun (e. animation) til að tjá stórar til­finn­ingar“
Sjó­ræn­ingi …
Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár