Að sigra eða sigra ekki heiminn

Í litlum bæ, um 50 kíló­metrum frá Berlín, er gömul mylla þar sem unnið hefur verið hörðum höndum við að ryðja út 13 tonnum af stáli til að breyta­henni í lista­stúdíó. Maðurinn á bak við verk­efnið er íslenski mynd­list­ar­mað­ur­inn, Egill Sæbjörns­son, sem hefur haslað sér völl í lista­sen­unni víða um heim. Hann segir að þrátt fyrir langa dvöl erlendis þá sé teng­ingin við Ísland mikil – enda séu ræt­urnar, þegar öllu er á botn­inn hvolft, þar.

Að sigra eða sigra ekki heiminn
Flakkar á milli Egill flutti til Berlínar fyrir slysni fyrir meira en tveimur ára­tugum síðan. Hann flakkar mikið á milli land­anna tveggja, Íslands og Þýska­lands. Mynd: Bára Huld Beck

„Ég hef aldrei gert neitt annað frá því ég man eftir mér. Maður var bara svona krakki sem var góður í að teikna sem gerir mann reyndar ekk­ert endi­lega að betri mynd­list­ar­manni. En þetta hefur alltaf verið það sem ég geri.“

Þetta segir Egill Sæbjörns­son mynd­list­ar­maður í sam­tali við Heim­ild­ina þegar hann býður blaða­manni í heim­sókn í sveit­ar­róna í Müncheberg, sem er í klukku­tíma fjar­lægð frá höf­uð­borg Þýska­lands, til að ræða list­ina og lífið eftir tæp 25 ár í Berlín. 

Hann seg­ist alltaf hafa ætlað að verða mynd­list­ar­maður, eða frá því hann var 3 ára gam­all en hann er alinn upp í Norð­ur­mýr­inni.

„Elstu minn­ing­arnar mínar eru frá því að vera með liti á gólf­inu heima hjá mér. Þegar ég var á leik­skóla þá var það eina sem ég gat gert að byggja legóhús, sem voru sett upp á hillu og þá fékk ég lof fyrir það. …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár