Víti til varnaðar: Norsku vindorkuverin sem trufla hreindýrin

Zephyr Iceland vill reisa 500 MW vind­orku­ver á Fljóts­dals­heiði með 70-100 vind­myllum. Fyrir utan raf­línur er heiðin að mestu óröskuð og mik­il­vægt búsvæði hrein­dýra. Hvergi er minnst á hrein­dýr í mats­á­ætlun um verk­efnið.

Víti til varnaðar: Norsku vindorkuverin sem trufla hreindýrin
Við vind­orku­ver Hreindýr kljást í nágrenni vind­orku­vers­ins Storheia. Mynd: Fosen Vind

Augljós dæmi eru til um það erlendis að of hröð þróun og ákvörð­un­ar­taka í upp­bygg­ingu vind­orku geti leitt til ófyr­ir­séðra afleið­inga,“ segir í umsögn Orku­stofn­unar til starfs­hóps um vind­orku á umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráðu­neyt­is­ins. Hópurinn óskaði eftir umsögnum hag­að­ila í haust en verk­efni hans er m.a. að gera til­lögur til ráð­herra um hvort vind­orku­kostir eigi áfram að heyra undir lög um ramma­á­ætlun eða hvort setja eigi sér­lög um þá „með það að mark­miði að ein­falda upp­bygg­ingu vind­orku­vera til fram­leiðslu á grænni orku,“ líkt og stendur í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórnar Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks.

Nýlegur dómur Hæsta­réttar Noregs, þar sem virkj­un­ar­leyfi tveggja vind­orku­vera í Fosen í norð­ur­hluta lands­ins voru felld úr gildi, er að mati Orku­stofn­unar nær­tækt dæmi um ófyr­ir­séðar afleið­ingar hraðrar upp­bygg­ingar slíkra virkj­ana. Verin Roan og Storheia voru byggð á beit­ar­landi hrein­dýra á svæði Sama. Þau telja sam­tals 150 vind­myllur sem eru sam­an­lagt 544 MW að afli. Þar sem ekk­ert virkj­un­ar­leyfi er í gildi skal fjar­lægja öll mann­virki. Af því hefur ekki enn orðið því deilt er um túlkun nið­ur­stöð­unnar. Og enn snú­ast því spaðar vind­myll­anna í Fosen.

Hæsti­réttur taldi að bygg­ing vind­virkj­ana á þessum slóðum væri brot á mann­rétt­inda­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna sem og brot á lög­vörðum rétti Sama til að rækta sína menn­ingu sem hrein­dýra­rækt er hluti af.

Áhrifin skaðlegri en talið var

Í ljós kom, eftir að rekstur vind­orku­ver­anna hófst árin 2019 og 2020, að áhrifin á hrein­dýrin voru mun skað­legri en gert hafði verið ráð fyrir í upp­hafi. Í umhverf­is­mati verk­efn­anna var til að mynda ekki dregin fram umfangs­mikil skugga­myndun sem hefur bæði sjón­ræn áhrif og mögu­leg áhrif á gróð­ur­far, í ljósi norð­lægrar legu vind­orku­verk­efn­anna og þar með hversu lágt sól er á lofti á þessum slóðum stóran hluta árs­ins.

Á þetta bendir Orku­stofnun sér­stak­lega í umsögn sinni og minnir á að slíkar aðstæður skap­ist einnig hér á landi sem gæti haft ófyr­ir­séð áhrif á ræktar- og beit­ar­land.

Á hlaupumHjörð hrein­dýra á hlaupum á Fljóts­dals­heiði.

Og beiti­lönd og far­leiðir hrein­dýra á hálendi Aust­ur­lands, dýra sem þegar hafa fært sig um set vegna Kára­hnjúka­virkj­unar, gætu líka raskast ef á þeim yrðu byggð vind­orku­ver. Að einu slíku er stefnt á Fljóts­dals­heiði, svo­nefndri Klaust­ursels­virkjun.

Virkj­unin, sem Zephyr Iceland áformar, myndi saman standa af allt að 100 vind­myllum sem hver um sig yrði um 250 metrar á hæð. Í mats­á­ætlun Zephyr um verk­efnið, sem nýlega var lögð fram til kynn­ingar hjá Skipu­lags­stofnun, er ekki minnst einu orði á hrein­dýr. Mats­á­ætlun er eitt skrefið í end­an­legu mati á umhverf­is­á­hrifum fram­kvæmda.

Í miðju búsvæði hreindýra

Nátt­úru­fræði­stofnun gerir í umsögn sinni við áætl­un­ina alvar­lega athuga­semd við að ekki komi fram að meta eigi áhrif fram­kvæmd­ar­innar á spen­dýr, sér­stak­lega hrein­dýr. Fram­kvæmda­svæðið sé stað­sett um mið­bik heild­ar­út­breiðslu­svæðis hrein­dýra á Aust­ur­landi og hrein­dýr haldi sig mikið á svæð­inu, m.a. á við­kvæmum tímum eins og burð­ar­tíma. „Nauð­syn­legt er að leggja mat á hvaða áhrif fram­kvæmdin og rekstur vind­orku­garðs mun hafa á dvöl og ferðir hrein­dýra á svæð­inu og hvernig sú búsvæða­skerð­ing sem fram­kvæmdin mun valda hefur áhrif á hrein­dýra­stofn­inn í heild sinni.“

Zephyr ljóst hver áhrif á hreindýr gætu orðið

Georg Bergþór Frið­riks­son, líf­fræð­ingur og hrein­dýra­veiði­maður, er meðal þeirra fjöl­mörgu ein­stak­linga sem skil­uðu umsögn um mats­á­ætlun Klaust­ursels­virkj­unar. Hann segir þekkt ann­ars staðar frá að hjart­ar­dýr sýni streitu­við­brögð á svæðum með vind­orku­verum og reyna því að yfir­gefa þau. Hreindýr eru hjart­ar­dýr, bendir hann á, og þau eru áber­andi á Fljóts­dals­heiði þar sem til stendur að reisa vind­virkj­un­ina. Til standi að stuðla að fjölgun dýra á svæð­inu eftir mikið veiði­á­lag und­an­far­inna ára. „Verði af svona fram­kvæmdum er vand­séð að sú upp­bygg­ing geti átt sér stað, bæði vegna þeirrar gríð­ar­legu umferðar um svæðið sem fram­kvæmdin myndi hafa í för með sér auk áhrif­anna af sjálfum vind­myllu­garð­inum þegar hann væri kom­inn í rekstur.“

Hann minnir á að Zephyr sé norskt fyr­ir­tæki og for­svars­menn þess viti auð­vitað af stöðu mála í þessum efnum í Noregi.

Vísvitandi sleppt að fjalla um hreindýr?

„Það má heita sér­stakt rann­sókn­ar­efni hvernig höf­undum hefur yfir­sést að nefna hrein­dýr á nafn í þess­ari mats­á­ætlun,“ segir svo í umsögn Land­verndar. „Annað hvort eru skýrslu­höf­undar og fyr­ir­tækið Zephyr svo illa að sér um dýra­líf á hálendi Aust­ur­lands, að þeir vita ekki að það er eina búsvæði hrein­dýra á Íslandi, eða þá að vís­vit­andi hafa þeir sleppt því að skrifa sér­stak­lega um hrein­dýr á þessu svæði.“

Land­vernd segir „lág­marks­kröfu“ að hrein­dýrin verði tekin sér­stak­lega fyrir í mati á umhverf­is­á­hrifum. Í umsögn­inni er fjallað um norska hæsta­rétt­ar­dóm­inn og um nei­kvæð áhrif vind­orku­ver­anna tveggja á búsvæði hrein­dýra. „Þar end­uðu þó mál með sigri Sama í lang­vinnum mála­ferlum við vind­orku­fyr­ir­tækið sem hefur verið gert að rífa vind­orku­verið niður.“

„Vindmyllurnar verða að fara“

450 dögum eftir að Hæsti­réttur Noregs hvað upp sinn dóm hefur rík­is­stjórnin enn ekki tekið afstöðu til þýð­ingar hans. Hver ráð­herr­ann á fætur öðrum hefur síð­ustu vikur heim­sótt svæðið til að kynna sér málin. „Þetta er án efa mjög krefj­andi mál fyrir rík­is­stjórn­ina að fylgja eftir,“ hefur NRK eftir Söndru Borch, mat­væla­ráð­herra. Rík­is­stjórnin ákvað í haust að hefja rann­sókn á aðdrag­anda þess að verin voru reist og á hvaða rann­sóknum – eða einmitt skorti á rann­sóknum – þær ákvarð­anir voru teknar.

„Vind­myll­urnar verða að fara,“ segir Leif Arne Jåma, for­svars­maður hrein­dýra­rækt­enda í Fosen.

Orku­stofnun telur að ef upp­bygg­ing vind­orku hér á landi fari fram á yfir­veg­aðan máta, í skrefum í stað margra verk­efna sem raun­ger­ast sam­tímis, gæti slíkt orðið lyk­ill að auk­inni sam­fé­lags­sátt. Of mik­ill hraði á upp­bygg­ingu geti hins vegar valdið mót­stöðu og því að dýr­mæt tæki­færi til að læra af reynsl­unni tap­ist.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár