Bókabræður – í minningu skapandi bókaútgefanda

Á ung­lings­árum fékk ég vinnu á bókala­ger Vöku-Helga­fells fyrir jólin. Þar var eldri maður í bláum vinnu­sloppi sem príl­aði eins og apa­köttur upp him­in­háa bók­a­rekka og tefldi þess á milli. Þarna voru líka tveir bræður, oft í eins fötum, sem aðstoð­uðu hann við að moka bókum út í jóla­bóka­flóðið: Kjartan Örn og Ragnar Helgi. For­eldrar þeirra ráku Vöku-Helga­fell; Ólafur Ragn­ars­son, fyrr­ver­andi frétta­maður, og Elín Bergs, sem var svo smart í buxna­dragt að mér fannst hún vera Marlene Dietrich.

Bókabræður – í minningu skapandi bókaútgefanda

Þau höfðu stofnað útgáf­una Vöku og síðar keypt gamla Helga­fell sem Ragnar í Smára stofn­aði – en hjónin voru á ýmsan hátt frum­kvöðlar í bóka­út­gáfu og fjár­mögn­uðu safn­út­gáfur stór­skálda með ýmiss konar bóka­klúbbum og jan­vel með aðstoð frá sjálfum Andrési önd.

Bræð­urnir störf­uðu við útgáf­una, í og með, fram yfir ung­lingsár. Síðar komu þeir að bóka­út­gáfu með ólíkum hætti. Ragnar Helgi er í dag einn dáð­asti bóka­kápu­hönn­uður lands­ins, auk þess að vera annar for­svars­maður bóka­út­gáf­unnar Tungls­ins og sjálfur rit­höf­undur. Kjartan Örn starf­aði um ára­bil hjá útgáfuris­anum Random House í New York en er í dag fram­kvæmda­stjóri Transition Labs. Þeir voru til í rabb um upp­haf nútím­ans í íslensku útgáfu­lands­lagi og við hitt­umst á Kaffi Rósen­berg.

Þegar ég minn­ist liðuga öld­ungs­ins grípur Kjartan orðið:

Kjartan: Böðvar Pét­urs­son var ald­urs­for­seti bóka­út­gáf­unnar. Hann var bæði umtals­vert eldri en sam­starfs­fólkið og hafði starfað hjá Helga­felli allt frá árinu 1949. Ég man …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár