„Listamenn með fatlanir þurfa pláss“

Chiara Bersani fjallar um hinn póli­tíska lík­ama í verkum sínum, hug­tak sem hefur markað bæði líf hennar og starf en sjálf er hún lista­kona með fötlun og hefur bæði þurft að berj­ast fyrir því að vera á svið­inu og svo seinna að fara af því.

„Listamenn með fatlanir þurfa pláss“
Blíði ein­hyrn­ing­ur­inn Chiara hefur ákveðið að ljá ein­hyrn­ingnum lík­ama sinn, gefa honum rödd, ást og val. Mynd: Alice Brazzit

Við hvítt borð í ann­ars alveg svörtum sal Lista­há­skóla Íslands situr hin ítalska Chiara Bersani, marg­verð­laun­aður dans­höf­undur og dans­ari. Hún er komin til Íslands til að flytja verk sitt, Blíði ein­hyrn­ing­ur­inn, á Dans­há­tíð Reykja­víkur. Af því til­efni var boðað til mál­þings helgað rann­sóknum hennar og verkum. Þær snúa fyrst og fremst að hug­tak­inu um hinn póli­tíska lík­ama og verkið er afurð þeirra rann­sókna.

Bersani telur ein­hyrn­ing­inn full­komna veru til að skoða hug­takið út frá. „Hann er full­komið fórn­ar­lamb fyrir hvern þann sem vill setja á hann mein­ingu,“ segir hún. Rétt eins og fólk hefur sett sína mein­ingu á hennar lík­ama og lík­ama sam­bæri­legum hennar. Chiara er lista­kona með fötlun og með verk­inu vill hún ljá ein­hyrn­ingnum lík­ama sinn.

Ein­hyrn­ing­inn segir hún hvorki eiga sama­stað né sögu, hann hafa verið not­aðan og mis­not­aðan af mönnum og sviptur rétt­inum til að tjá og skil­greina sig sjálfur. „Þú munt ekki skil­greina …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár