Tón­leika­ferða­lag Sigur Rósar hófst í lok apríl í Mexík­ó­borg og lýkur í Laug­ar­dals­höll eftir tæpar þrjár vikur. Þá verða þeir búnir að spila á um 70 tón­leikum víða um heim. Mynd: PATRICK GATELEY

„Sigur Rós kveikti ljósið í heiminum að nýju í kvöld“

Sigur Rós er alltaf að vinna með brot­hætta feg­urð í bland við aggressjón því að hið við­kvæma þarf líka að fá útrás, segja Georg Hólm bassa­leik­ari og Jónsi söngv­ari. Georg segir fyll­er­ís­rugl til­heyra for­tíð­inni enda séu þeir litlir rokk og ról-gæjar. Stundin hitti Sigur Rós í Amster­dam á dög­unum en tón­leika­ferða­lag þeirra hófst í Mexíkó í apríl. Einn gesta þar sagði að Sigur Rós hefði kveikt ljósið í heim­inum að nýju eftir dimm­viðri síð­ustu tveggja ára.

„Ég sá plakat í lyft­unni hérna frammi áðan þar sem kom fram að við hefðum spilað hér 2008 en ég mundi alls ekk­ert eftir því. Oft þekki ég ekki tón­leika­stað­ina fyrr en ég er kom­inn inn í bún­ings­her­bergið okkar. Þannig var það áðan,“ segir Georg Hólm, bassa­leik­ari Sigur Rósar, þar sem hann hefur komið sér vel fyrir í bún­ings­her­bergi sveit­ar­innar í AFAS LIVE höll­inni í Amster­dam síð­degis 1. nóv­em­ber. Það eru tæpir tveir tímar í tón­leika Sigur Rósar. Georg drekkur svart te, Jónsi er að leggja sig, Kjartan var á rölti um gang­ana, virt­ist afar afslapp­aður, en Óla trommara var hvergi að sjá fyrir tón­leik­ana. En allir voru þeir að und­ir­búa sig fyrir þriggja tíma gigg á svið­inu. Hver með sínum hætti. 

Að loknum tón­leikum í Amster­damGeorg, Jónsi og Kjartan voru ánægðir með tón­leik­ana í ASAF-LIVE höll­inni í Amster­dam
…
Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár