Mynd: Unsplash

Furðulegt ferðalag íslenskrar síldar til Úkraínu um Panama

Íslensk sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki seldu upp­sjáv­ar­fisk til Evr­ópu­lands­ins Úkraínu í gegnum ríki í öðrum heims­álfum. Eitt af þessum löndum var skatta­skjólið Panama sem varð alræmt eftir gagna­lek­ann frá Mossack Fonseca árið 2016. Fisk­sölu­fyr­ir­tækin vilja ekki svara spurn­ingum um við­skiptin en þrír sér­fræð­ingar segja þau líta út fyrir að vera gerð af skatta­legum ástæðum, gerð til þess eins að stýra því hvar hagn­aður mynd­ist.

Fyrir tíu árum síðan, fjórum árum áður en rík­is­stjórnin á Íslandi hrökkl­að­ist frá völdum eftir frétta­flutn­ing um við­skipti Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra í gegnum skatta­skjólið Panama, voru tæp 3.000 tonn af íslenskri síld flutt inn til Úkraínu frá þessu landi í Mið-Ameríku. Þetta kemur fram í gögnum yfir­valda í Úkraínu.

Panama var sam­kvæmt því stærsta við­skipta­land Úkraínu með íslenska síld árið 2012. Stærra en Ísland sjálft. Þetta sama ár seldu íslensk sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki tæp­lega 14.000 tonn af loðnu til Úkraínu í gegnum sex lönd í fjórum heims­álfum, meðal ann­ars til Panama.  

Árið eftir var Panama í þriðja sæti yfir stærstu útflutn­ings­lönd á íslenskri loðnu til Úkraínu. Þetta ár voru seld tæp­lega 9.000 tonn af íslenskri loðnu frá Panama til þessa stóra lands í Austur-Evrópu. Einungis tvö önnur ríki fluttu inn meira af íslenskri loðnu til Úkraínu þetta árið: Ísland og Bretland. 

Þrátt fyrir þetta hefur eng­inn fiskur farið …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kári Jónsson skrifaði
    Þetta er óslitna virðiskeðjan sem er svo verðmæt fyrir ríkistyrktu-einokunar-útgerðina, helsta afleiðingin er í raun landlægt fjársvelti velferðar og félagsþjónustu á Íslandi.
    4
  • Flosi Guðmundsson skrifaði
    Snyrtileg skattsvik, sérsvið Samherja.
    6
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár