Eiga Rússar voða bágt?

Í síð­asta blaði hóf Illugi Jök­uls­son að kanna styrj­ald­ar­sögu Rúss­lands til að vita hvað sé hæft í þeirri trú margra Rússa að land þeirra hafi sífellt sætt grimmum árásum frá erlendum ríkjum, ekki síst Vest­ur­löndum. Því sé eðli­legt að þeir fái að hafa Úkraínu sem „stuð­púða“ gegn hinni mis­kunn­ar­lausu ásælni vest­rænna stór­velda. Í fyrri grein­inni höfðu ekki fund­ist slík dæmi, því oftar en ekki voru það Rússar sem sóttu fram en vörð­ust ei. En í frá­sögn­inni var komið fram á 19. öld.

Eiga Rússar voða bágt?
Hinn tví­höfða örn var tákn Romanov-ætt­ar­innar sem réði Rúss­landi. Og var hann ein­lægt á flótta undan vondum óvinum úr vestri?

Haustið 1853 braust Krím­stríðið út. Það sner­ist upp­haf­lega alls ekki um Krím­skag­ann – sem Rússar höfðu tekið frá Krím-Tötörum og inn­limað 1783 – heldur um sam­keppni Rússa og Tyrkja við Svarta­haf. Rússar hófu stríðið með því að ráð­ast inn í Bess­ar­abíu (Moldovu) og Wallachíu (suð­ur­hluta Rúmeníu) sem Tyrkir höfðu ráðið um aldir. Þeir héldu svo sókn sinni áfram og stefndu suður til Kon­stant­ínópel, höf­uð­borg Tyrkja­veldis. Jafn­framt rústaði rúss­neski flot­inn hinum tyrk­neska svo fátt virt­ist geta stöðvað Rússa.

Krímskaginn hertekinn

Það féll Bretum og Frökkum illa. Hinir fornu fjendur voru nú óðum að verða nánir banda­menn í sókn sinni eftir nýlendum úti í hinum stóra heimi og vildu síður að í bak­garði þeirra heima í Evrópu risi á meðan of öfl­ugt stór­veldi. Því ákváðu báðar þjóðir að styðja Tyrki í næsta örvænt­ing­ar­fullri vörn þeirra gegn vax­andi veldi Rússa.

Sam­ein­aður floti Breta og Frakka var sendur inn á Svarta­haf …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár