Brugðust við þegar ásakanir urðu háværari

Ari Edwald, Hregg­viður Jónsson, Þórður Már Jóhann­es­son, Logi Bergmann og Arnar Grant hættu allir eða fóru í leyfi frá störfum sínum eftir við­tal við unga konu sem sak­aði þá um kyn­ferð­is­brot eða -áreitni. Ásak­an­irnar voru þó ekki nýjar og var það ekki fyrr en þær komu fram í vin­sælu hlað­varpi að brugð­ist var við þeim.

Brugðust við þegar ásakanir urðu háværari
Fjöl­miðlaum­fjöllun þurfti til Stjórnir félaga og fyr­ir­tækja mann­anna brugð­ust ekki við ásök­unum um kyn­ferð­is­brot fyrr en umfjöllun um málin hófust í fjöl­miðlum, þrátt fyrir að hafa vitað af ásök­un­unum um margra vikna skeið.

Fimm karlar sem hafa gegnt áber­andi stöðum í íslensku sam­fé­lagi fóru ýmist fyr­ir­vara­lítið í leyfi eða misstu vinn­una eftir að ung kona, Vítalía Lazareva, steig fram í hlað­varps­þætti og sagði frá ofbeldi og áreitni sem hún sagði sig hafa verið beitta. Ekkert nafn var nefnt í við­tal­inu en mán­uð­ina á undan höfðu nöfn þess­ara fimm manna komið fram á sam­fé­lags­miðlum í tengslum við Instagram-færslur sem inni­héldu ásak­anir gegn þeim. Það var því ekki þörf á því að nafn­greina menn­ina í við­tal­inu til að margir vissu um hverja væri verið að tala. 

Vítalía hafði nokkrum mán­uðum fyrr, undir lok októ­ber­mán­aðar á síð­asta ári, byrjað að birta færslur á Instagram þar sem hún lýsti kyn­ferð­is­of­beldi sem hún sagði að hún hefði verið beitt. Ofbeldið átti sér stað í heitum potti í sum­ar­bú­stað og einnig inni í sum­ar­bú­staðnum. Í færsl­unum nafn­greindi hún fjóra menn sem ger­endur í mál­inu. Það voru við­skipta­menn­irnir Ari …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Árni Guðnýar skrifaði
    Væri ekki rétt að kanna hvort einhver siðferðilegur samningur sé milli einkaþjálfara og Líkamsræktarstöðva már fynst þögn stöðvana vera orðin hávær.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár