Sorgardúett skáldkonu sem kom úr felum

Ragn­heiður Lár­us­dóttir hefur skrifað ljóð frá því hún var lítil stelpa en faldi öll sín verk í meira en hálfa öld. Fyrir rúmu ári sagði hún skilið við hikið og sendi frá sér sína fyrstu bók, fékk Bók­mennta­verð­laun Tómasar Guð­munds­sonar og var til­nefnd til Maí­stjörn­unnar. Nýjasta bók hennar, Gler­flísakliður, er afar per­sónu­leg en hún fjallar um tvær sorgir sem blönd­uð­ust saman og héldu henni fang­inni í sjö ár.

Sorgardúett skáldkonu sem kom úr felum
Ragn­heiður Lár­us­dóttir, kenn­ari og ljóð­skáld Mynd: Heiða Helgadóttir

Í þess­ari bók eru tvær konur, ég er önnur þeirra og er í sorg vegna skiln­aðar og veik­inda móður minnar. Hin konan er mamma. Hún er með Alzheimer. Mín sorg dvínar og mér batnar en sjúk­dóm­ur­inn áger­ist hjá mömmu og hún deyr að lokum,“ segir Ragn­heiður Lár­us­dóttir, ljóð­skáld og kenn­ari, um ljóða­bók­ina Gler­flísakliður sem kom út nýverið. Þetta er önnur bók Ragn­heiðar en fyrir sína fyrstu bók, 1900 og eitt­hvað, sem kom út í fyrra, hlaut hún Bók­mennta­verð­laun Tómasar Guð­munds­sonar og var til­nefnd til Maí­stjörn­unnar sem eru ljóða­bóka­verð­laun. „Ég var skáld­kona í felum. Skúff­urnar mínar voru og eru fullar af ljóðum og sögum enda byrj­aði ég að skrifa ljóð þegar ég lærði að draga til stafs. En ég var alla tíð hik­andi við að senda þau frá mér og svo þegar ég loks gerði það, þegar ég var að nálg­ast sex­tugt, fékk ég verð­laun og til­nefn­ingu. Það var …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ágústa Jóhannsdóttir skrifaði
    hvílík bók og algjör snilld hvernig henni tekst að setja orð á sorgina
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár