Frekari rannsókn fór aldrei fram

Bergþóra Ein­ars­dóttir til­kynnti meint brot Megasar og Gunnars Arnar til lög­reglu strax árið 2004, en gögnin fund­ust ekki aftur í mála­skrá lög­reglu. Árið 2011 lagði hún fram form­lega kæru en frek­ari rann­sókn fór aldrei fram, þeir voru aldrei kall­aðir fyrir og málið fellt niður þar sem það var talið fyrnt, enda skil­greint sem blygð­un­ar­sem­is­brot. Nið­ur­staðan var kærð til rík­is­sak­sókn­ara sem taldi málið heyra undir nauðg­un­ar­á­kvæðið en felldi það einnig niður á grund­velli einnar setn­ingar.

Frekari rannsókn fór aldrei fram

Bergþóra leit­aði til lög­reglu árið 2004 þar sem hún til­kynnti að þeir Magnús og Gunnar Örn hefðu brotið gegn sér. Með henni var faðir hennar, sem stað­festir frá­sögn hennar. Vitn­is­burður hennar var hins vegar ekki skráður í mála­skrá lög­reglu, LÖKE, týnd­ist og hefur ekki fund­ist aftur síðan.

Það kom í ljós þegar Bergþóra leit­aði aftur til lög­reglu árið 2011 og óskaði eftir því að til­kynna málið enn á ný, vegna þess að hún taldi sig bera skyldu til þess. Henni fannst að þeir yrðu að horfast í augu við afleið­ingar gjörða sinna og átta sig á alvar­leika máls­ins, en fékk þau svör að lög­reglan myndi ekki kalla þá til nema fyrir lægi form­leg kæra.

Bergþóra fór því heim og hugs­aði sinn gang, með hvatn­ingu um að hafa aftur sam­band ef hún treysti sér til …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðrún Jóhannsdóttir skrifaði
    Ég veit ekki hvernig á að fá lestur á greinar sem merktar eru Fáðu áskrift til að lesa.
    0
  • Anna Óskarsdóttir skrifaði
    Þegar ég var 19 ára nefndi ég við rannsóknarlögreglumann sem tengdist fjölskyldunni, frétt frá liðinni helgi þar sem ung stúlka kærði nauðgun. Nei, nei. þetta er nú bara frumhlaup hjá blaðamanninum var svarið sem ég fékk, hún var full og þetta gerðist á stað þar sem margir einhleypir karlar leigja herbergi. Hún hefði ekkert átt að fara þarna í partí ef hún vildi þetta ekki.
    Það eru 50 ár siðan. Við erum enn á ótrúlega vondum stað með svona mál, en jafnvel þótt svona viðhorf finnist meðan lögreglunnar enn (vonandi sjaldgæf samt) hlýtur að vera refsivert að færa ekki kæru inn í málaskrá.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár