Uppskrift að stórkostlegu mómenti

„Þetta er svo mögnuð hátíð, stofnuð af lista­mönnum, rekin af lista­mönnum,” segir Helga Björg Kjerúlf fram­kvæmd­ar­stýra Sequences X. „Það er svo mikil gróska í mynd­list á íslandi og alltaf sam­vinna,” segir hún enn­fremur um hátíð­ina sem fram fer 15. októ­ber - 24. októ­ber.

Uppskrift að stórkostlegu mómenti

Sequences real time art festi­val er lista­há­tíð sem hefur sann­ar­lega fest sig í sessi og fangað athygli list­unn­enda útí heimi og heima. Hátíðin hófst árið 2006 og var haldið ár hvert í þrjú ár, en varð að tví­ær­ingi árið 2009. Semsagt, haldið annað hvert ár síðan. Tíunda Sequences hátíðin gengur í garð um helg­ina, og því­lík veisla, því­líkt lista­fólk og því­lík dag­skrá. Hill­billy ræddi við Helgu Björg Kjerúlf, fram­kvæmd­ar­stýru hátíð­ar­innar um við­burð­ina sem í boði verða þetta árið. Upp­lýs­ingar um alla lista­menn­ina, við­burði og þétta dag­skrá má finna á sequences.is

Kominn tími til

Kominn tími til er yfir­skrift hátíð­ar­innar í ár, en afhverju er tími til kom­inn?. „Yfir­skriftin vísar í mómentið. Hvernig hug­myndir kvikna innan ákveð­ins sam­fé­lags og hefur áhrif á breyt­ingar. Með tím­anum hvernig hlutir þró­ast. Tíminn breyt­ist og menn­irnir með, en samt í ein­hvers­konar spíral. Með hug­myndum getum við hreyft við tím­anum,“ segir Helga Björg.

…

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár