Ráðherrar opna veskið á lokasprettinum

Á síð­ustu vikum í aðdrag­anda alþing­is­kosn­inga hafa ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar veitt veru­lega fjár­muni til aðgreindra verk­efna, komið umdeildum málum í ferli og lofað aðgerðum sem leggj­ast mis­vel í fólk. Á sama tíma er þing ekki að störfum og þing­menn hafa lítil færi á að sýna fram­kvæmd­ar­vald­inu virkt aðhald.

Ráðherrar opna veskið á lokasprettinum
Afkasta­mikil á loka­metr­unum Ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar hafa ekki verið verk­lausir síð­ustu vik­urnar fyrir kosn­ingar. Mynd: Stjórnarráðið

Ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar hafa und­an­farnar vikur gripið til fjöl­margra aðgerða sem fela í sér stuðn­ing við mál, sem sum hver eru ekki óum­deild, en hafa í för með sér fjár­út­lát fyrir rík­is­sjóð, oft og tíðum veru­leg. Þessar aðgerðir ráð­herr­anna hafa sumar hverjar farið öfugt ofan í fólk, bæði í stjórn­ar­and­stöðu en eins í stjórn­ar­flokk­unum.

Þannig hefur und­an­farna daga geisað deila milli þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Vil­hjálms Árna­sonar, og Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar umhverfis- og auð­linda­ráð­herra. Tilefnið er fjöldi frið­lýs­inga sem ráð­herr­ann hefur ráð­ist í und­an­farnar vikur. Hefur Vil­hjálmur lýst því að Guð­mundur Ingi fari um með „frið­lýs­ing­ar­sprot­ann í skjóli nætur“ en frá því að þing­fundum var frestað í júní hefur ráð­herr­ann und­ir­ritað frið­lýs­ingar á tíu svæðum, þar af sex síð­ast­lið­inn mánuð. Sam­flokks­maður Vil­hjálms, Jón Gunn­ars­son, lýsti því þá 10. sept­em­ber að ef ekki væri fyrir að svo stutt væri til kosn­inga sem raun ber vitni hefði hann látið af stuðn­ingi sínum við rík­is­stjórn­ina …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2021

FréttirAlþingiskosningar 2021

Inga Sæland vill ekki bregð­ast við ásök­unum á hendur fram­bjóð­anda Flokks fólks­ins

Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, seg­ist ekki vilja bregð­ast við tölvu­pósti þar sem fram­bjóð­andi flokks­ins er sak­aður um að hafa brotið ítrekað á konum í gegnum tíð­ina. Hún seg­ist ekki vita um hvað málið snýst og ætli því ekki að aðhaf­ast. Hún seg­ist þó hafa fengið ábend­ingu um sama mál nokkrum dögum fyrir kosn­ingar. Mis­mun­andi er eftir flokkum hvaða leiðir eru í boði til þess að koma á fram­færi ábend­ingu eða kvörtun um með­limi flokks­ins. Flokkur fólks­ins er til að mynda ekki með slíkar boð­leiðir.

14 mín. lestur

Fréttir

Meðlimur í kjör­stjórn kærir vegna „gruns um kosn­inga­svik“ í Suð­vest­ur­kjör­dæmi

Geir Guð­munds­son, með­limur í kjör­stjórn Kópavogs, hefur lagt fram kæru til lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vegna fram­kvæmd kosn­inga í Suð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann vill að lög­regla rann­saki kjör­gögn áður en þeim er eytt, vegna full­yrð­inga umboðs­manns Sós­í­alista­flokks­ins um mis­mun­andi stærð kjör­seðla.
Fréttir

Þrír starfs­menn Hótels Borg­ar­ness tóku myndir í tómum taln­inga­sal

Starfs­menn Hótel Borg­ar­nes höfðu óheftan aðgang að óinn­sigl­uðum atkvæðum í auðum sal hót­els­ins meðan yfir­kjör­stjórn var ekki á staðnum eftir að fyrstu taln­ingu lauk. Lög­reglan getur ekki stað­fest hvort að starfs­menn­irnir hafi farið að svæð­inu sem kjör­gögnin voru geymd vegna þess að starfs­menn­irnir hverfa úr sjón­ar­sviði eft­ir­lits­mynda­véla. Þrír starfs­menn tóku myndir af salnum og þá atkvæðum.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
6
Erlent

Olíu­risarnir græða stórfé á stríð­inu í Mið-Aust­ur­löndum

Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum Banda­ríkja­dala á þriðja árs­fjórð­ungi. Stríðið í Mið-Aust­ur­löndum hefur leitt til hækk­andi orku­verðs og auk­innar fram­legðar í olíu­hreinsun. Fyr­ir­tækin hagn­ast á sama tíma og hærra elds­neyt­is­verð og aukin verð­bólga þrengja að heim­ilum og fyr­ir­tækjum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár