Kona fer í stríð Í mynd­inni fremur Halla skemmd­ar­verk á háspennu­línum við álver.

Enginn fer í stríð

Mótmæli gegn ham­fara­hlýnun hafa ekki skilað rót­tækum breyt­ingum af hálfu stjórn­valda og atvinnu­lífs­ins. Hvenær æsast leikar?

„Ofbeldi? Þetta er ekki ofbeldi, þetta eru bara skemmd­ar­verk.“ Þetta segir Halla, aðal­per­sóna mynd­ar­innar Kona fer í stríð, í túlkun Halldóru Geir­harðs­dóttur. Hún ræðir við tví­bura­systur sína, sem einnig er leikin af Halldóru, um skemmd­ar­verk sem Halla hefur unnið á háspennu­línum við álverið í Straums­vík, en systirin veit ekki að þar hafi hún verið að verki.

„Þetta eru öfgar og öfgar ala af sér öfgar,“ svarar systirin. „Sá sem bregður sverði mun fyrir sverði falla.“

„En ég meina, það hefur eng­inn slasast, annar en landið okkar og jörðin,“ svarar Halla.

„Þetta er samt auð­vitað ekki leiðin til að leysa þessi mál, sko,“ segir systirin, sem er jóga­kenn­ari og nýald­ar­hug­s­uður.

„Heldur hvað, sitja í ein­hverju klaustri og íhuga? Hverju breytir það?“

„Það breytir alla­vega mér og þar með von­andi öllum heim­inum,“ segir systirin.

Myndin, í leik­stjórn Bene­dikts Erlings­sonar eftir hand­riti hans og Ólafs …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Loftslagsbreytingar

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár