Kínverjar aldrei aftur niðurlægðir

Kín­verjar munu aldrei aftur sætta sig við að vera nið­ur­lægðir af útlend­ingum að sögn þar­lendra ráða­manna. Stjórn­mála­fræð­ingar segja að kín­verski komm­ún­ista­flokk­ur­inn, sem nýlega fagn­aði 100 ára afmæli sínu, byggi til­kall sitt til valda meðal ann­ars á þjóð­ern­is­hyggju og stolti auk mik­ils hag­vaxtar.

Kínverjar aldrei aftur niðurlægðir
Kína fagnar Dansarar túlka 100 ára afmæli Kín­verska komm­ún­ista­flokks­ins í Hreiðinu, leik­vangi í Beijing, 28. júní síð­ast­lið­inn. Á þessum 100 árum hefur Kína þró­ast úr stríðs­hrjáðu landi yfir í vax­andi heims­veldi sem nú vill hnykla vöðvana. Mynd: NOEL CELIS / AFP

Öld nið­ur­læg­ing­ar­innar er hug­tak sem er nauð­syn­legt að skilja til að átta sig á þeirri stöðu sem kín­verski komm­ún­ista­flokk­ur­inn hefur í hugum almenn­ings. Um er að ræða rúm­lega hund­rað ára tíma­bil frá miðri 19. öld þegar vest­ur­veldin og Japanir her­sátu og tvístr­uðu landi Kínverja sem hafði verið helsta menn­ing­ar­þjóð og stór­veldi Austur-Asíu í þús­undir ára. 

Þessu tíma­bili nið­ur­læg­ingar kín­versku þjóð­ar­innar lauk form­lega árið 1949 þegar landið var á ný sam­einað en í þetta sinn undir stjórn Komm­ún­ista­flokks­ins. Ind­verski stjórn­mála­fræð­ing­ur­inn Pratap Bhanu Mehta, sem hefur sér­hæft sig í sam­an­burði á ris­unum tveimur í Asíu, segir slá­andi hversu mikil áhersla sé lögð á þessa nið­ur­læg­ingu á öllum stigum kín­versks sam­fé­lags í dag. 

„Hún er algjör þunga­miðja í allri sögu­skoðun Kínverja. Mennta­kerfið er byggt í kringum hana,“ segir Mehta í nýlegri grein í blað­inu Indian Express. „Meira að segja ef við lítum á minn­is­merki má sjá að þau eru öll vilj­andi hönnuð af …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár