Mynd: Jón Trausti Reynisson

Fleiri stórframkvæmdir til skoðunar við eldgosið

Hraunið dælist niður í Nátthaga og eru hraun­foss­arnir sýni­legir frá þjóð­veg­inum. Stór­virkar vinnu­vélar eru á svæð­inu og til skoð­unar er að fara í frek­ari fram­kvæmdir eftir að varn­ar­garðar kaf­færð­ust.

Stór­virkar vinnu­vélar eru á eld­gosa­svæð­inu við Geld­inga­dali á sama tíma og hraun rennur í fossum niður hlíð­ina niður í Nátthaga. Hraun­foss­arnir eru sýni­legir frá Suð­ur­strand­ar­vegi og flæðir hraunið í átt að veg­inum. Hraunið hefur kaf­fært stíflu sem reist var við aust­urjaðar til að hindra að það rynni niður í Nátthaga, þangað sem það fossar nú. 

Rík­is­stjórnin ákvað að 20 millj­ónir króna yrðu lagðir í að reisa varn­ar­garða ofan við Nátthaga, en jarð­fræð­ingur sagði í kjöl­farið að það væri „út í hött“. 

Nú er í skoðun að reisa fleiri stíflur.

Í sam­tali við RÚV segir Hörn Hrafns­dóttir umhverfis- og bygg­inga­verk­fræð­ingur hjá Verkís, sem stóð að því að reisa fyrri garð­ana, að vinna verði hratt til að klára aðgerðir til að verja inn­viði. „Hvort það verði nýjar stíflur, eða betri ein­angrun við Mílu-streng­inn“ segir hún ekki ljóst. „Þetta er að ger­ast sæmi­lega rólega þannig að við höfum alveg vikur til stefnu,“ segir hún. 

„Til þess að stöðva hraun að fullu þyrftum við heilt fjall. Þannig að það þarf aðeins að skoða þetta betur og meta betur hve langt eigi að ganga og hvort skoða eigi ein­hverjar aðgerðir við Suð­ur­strand­ar­veg­inn. Það er líka í umræð­unni.“ 

Valtari við hraun­foss­anaHraunið sést flæða niður í Nátthaga.
Jarðýtur á vett­vangiFram­kvæmda­sjóður ferða­manna­staða lagði 10 millj­ónir króna til lagn­ingar á stíg og ann­arra verk­efna á eld­gosa­svæð­inu. Hér eru jarð­ýtur skammt frá vest­ari varn­ar­garð­inum við foss­ana sem renna úr Nafn­lausa­dal í Nátthaga.
Eystri varn­ar­garð­arnirTilkynnt var um helg­ina að hraun hefði runnið yfir varn­ar­garð­ana. Hægra megin á mynd­inni sést glitta í það sem enn stendur upp úr af þeim.
Vestari varn­ar­garðarÞótt garð­arnir hefðu verið hækk­aðir í 8 metra hefur hraun­flæðið náð yfir þá.

Eftir að Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra til­kynnti að 20 millj­ónir króna yrðu lagðar í að reisa varn­ar­garða eftir ráð­gjöf verk­fræð­inga til að freista þess að hindra flæði í Nátthaga sagði Páll Ein­ars­son jarð­fræð­ingur í sam­tali við Stöð 2 að það væri sóun. 

„Eins og málið lítur út í dag þá virð­ist þessi fram­kvæmd vera út í hött. Það hraun sem er að renna þarna það ætlar ekk­ert að fara þá leið sem menn vilja að það fari,“ sagði hann og taldi lít­inn skaða af hraun­rennsli yfir veg­inn. „Þetta er kannski spurn­ing um hvort það verður teppt umferð um Suð­ur­strand­ar­veg í ein­hverjar vikur.“

Þá hefur komið fram í máli verk­fræð­inga og almanna­varna að um sé að ræða dýr­mæta þekk­ing­ar­sköpun. Hins vegar kom fram í til­kynn­ingu almanna­varna á föstu­dag að reynsla væri af gerð slíkra garða á Hawaii og Ítalíu. 

Flæðið ofan í NátthagaHér sést hraun­flæðið. Lengst til vinstri er vest­ari varn­ar­garð­ur­inn en hrun­rennslið liggur yfir þann aust­ari og niður dal­inn.
Foss­brúninHraunið rennur hér úr Nafn­lausa­dal niður bratta hlíð. Í gær svifu þar krummar yfir krunk­andi svo berg­mál­aði milli fjall­anna yfir hraun­streym­inu.
Foss­arnirHraunið rennur á auknum hraða niður hlíð­ina í átt til sjávar.
Hraunið í NátthagaSýn ofan af Langa­hrygg.
Skríður inn í NátthagaHrauntungan teygir sig langt inn í Nátthaga og virð­ist ekki hafa lokið sér af ef marka má stöðugt flæði niður hlíð­ina úr Nafn­lausa dalnum.
Nálgast veg­innUm tveir kíló­metrar eru frá hrauntung­unni að Suð­ur­strand­ar­veg­inum.
Leiðin til sjávarUm kvöld­mat­ar­leytið í gær hafði hraunið teygt sig langt inn í Nátt­hag­ann og í átt til Suð­ur­strand­ar­vegar og sjávar.

Stór hrauntjörn teygir sig frá gígnum

Risastór hraun­tjörn hefur mynd­ast austan við stóra gos­gíg­inn, sem fræði­menn kalla gíg 5a. Með þessu hefur hraunið myndað sitt eigið miðl­un­ar­lón.

Þessu er lýst í færslu frá Eld­fjalla­fræði- og nátt­úru­vá­r­hópi Háskóla Íslands: „Stað­setn­ing tjarn­ar­innar er slík að hún getur veitt hrauni, í opnum sem og lok­uðum flutn­ings­rásum, niður í Meradali, inn í Geld­inga­dali og niður í Nafn­lausa­dal. Jafn­framt, þá vellur gjarnan yfir barmana tjarn­ar­inna í mestu kviku­stróka­hrin­unum.“

Slík hraun­tjörn er for­sendan fyrir því að hraun­skjöldur, eða dyngja, mynd­ist.

Þor­valdur Þórð­ar­son, pró­fessor í eld­fjalla­fræði við Háskóla Íslands, segir þetta ein­kenni um að hraunið gæti varað lengur, að því leyt­inu til að hrauntjörnin hindri varmatap. „Ég býst nú við því að þetta fari þannig að lónið byggi sig upp og hækki og þannig myndi það smátt og smátt kæfa gíg­inn og þá minnk­ar hita­tapið jafn­vel ennþá meira,“ segir hann í sam­tali við mbl.is í dag, þar sem hann spáir því að kviku­stróka­virkni minnki í kjöl­farið.

Séð af „pall­inum“Hraunið vellur úr risa­stórri tjörn.
And­ar­dráttur gígs­insUm átta mín­útur biðu á milli stróka í gígnum 5a í gær.
HrauntjörninHrauntraðir hafa byggst upp og halda hraun­tjörn sem flæðir jafnt og þétt til aust­urs, þaðan sem hraunið rennur síðan niður Nátthaga til suð­urs. Hér rofn­aði skarð eftir kröft­uga skvettu úr gígnum.
Margt um mann­innStöðugt flæði fólks er á gos­s­töðv­arnar. Hér er útsýnið af svoköll­uðum palli, hæð sem liggur nán­ast umvafin hrauni milli Geld­inga­dala og Mer­ar­dala.
Flæðið jókstEðl­is­breyt­ing varð á eld­gos­inu í Geld­inga­dölum þegar virknin færð­ist yfir í lotu­bundna stróka, sem eru mun mik­il­feng­legri en gos­virknin var í upp­hafi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Eldgos við Fagradalsfjall

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár