Fékk and­litið á útsölu Andlitið á Svani fór því sem næst af honum þegar hann lenti í slysi og féll tug metra niður af þaki á stepn­steypt und­ir­lag. Hann seg­ist hafa pantað and­litið af Robert Redford en hafi setið uppi með þetta, sem lík­lega hafi verið á útsölu. Mynd: Davíð Þór

Féll tíu metra og varð fíkill

Svanur Heiðar Hauksson hefur síð­ustu fjöru­tíu ár verið kval­inn hvern ein­asta dag eftir að hann féll fram af hús­þaki. Flest sem gat brotnað í lík­ama hans brotn­aði og við tók ára­löng dvöl á sjúkra­húsum. Þegar hann komst á fætur leit­aði hann á náðir áfengis til að milda kval­irnar en eftir ára­langa drykkju tókst honum loks að losna undan áfeng­is­böl­inu. Hann veitir nú öldr­uðu fólki með vímu­efna­vanda aðstoð og seg­ist ætla að sinna því meðan hann „heldur heilsu“.

„Ég féll með höf­uðið á undan mér og ég man skýrt eftir því að ég hugs­aði: „Ég verð að lenda vel.“ Ég greip með hönd­unum fyrir höf­uðið og síðan slökkn­aði á öllu. Ég „lenti vel“, alla vega lifði ég af. En þetta var lífs­tíð­ar­dómur.“

Þannig lýsir Svanur Heiðar Hauksson því þegar hann, árið 1980, féll fram tíu metra fram af þaki húss á Rauð­ar­ár­stíg, niður á stein­steypt und­ir­lag. Meiðsli Svans voru með þeim hætti að þó hann hafi „lent vel“ að eigin sögn hefur ekki liðið sá dagur síðan að hann hafi ekki verið kval­inn. Þær kvalir hafa haft afleið­ingar á allt hans líf síðan, fyrst með því að Svanur varð að taka á honum stóra sínum til að losna undan áþján mor­fín­lyfja og síðan með því að áfengi tók líf hans yfir. En á sinni veg­ferð, sem orsak­að­ist af slys­inu, fann hann bæði sína köllun og sinn guð.

…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár