„Ég þráði framtíð með þeim“

Guðný Ragn­ars­dóttir hjúkr­un­ar­fræð­ingur segir líf sitt og lífs­vilja mót­ast af fæð­ingu sona sinna.

„Ég þráði framtíð með þeim“

„Fæðing sona minna mót­aði líf mitt til hins betra,“ segir Guðný Ragn­ars­dóttir hjúkr­un­ar­fræð­ingur. „Þeir kenndu mér skil­yrð­is­lausa ást. Bæði elska ég þá skil­yrð­is­laust og svo í seinni tíð finn ég sterkt að þeir elska mig skil­yrð­is­laust til baka. Mér finnst þeir skemmti­legir og ég upp­lifi mig skemmti­lega, hug­rakka og góða með þeim.

Þegar frum­burð­ur­inn kom í heim­inn fann ég til­gang lífs­ins og jafn­framt sterkar þegar seinni dreng­ur­inn kom í heim­inn. Fæðing þeirra jafn­ast ekki á við nokkurn annan skap­aðan hlut í ver­öld­inni því þær voru svo magn­aðar. Að finna styrk minn og ást um leið og ég fékk þá í fangið er það magn­að­asta sem ég hef upp­lifað. Ég finn að ég er sköpuð til að vera móðir og það er minn æðsti til­gangur í líf­inu.

Ég fann skil­yrð­is­lausa ást mína til þeirra svo sterkt þegar ég lá fyrir dauð­anum í krabba­meins­með­ferð fyrir nokkrum árum; það varð svo áþreif­an­legt þegar ég horfð­ist í augu við það að missa þá og að þeir gætu misst mig. Ég fann að ég hafði svo margt að gefa og að ég vildi vera til staðar fyrir þá, styðja og styrkja í þeirra lífi. Ég þráði fram­tíð með þeim.

Fyrir mér er nóg að þeir dragi and­ann og séu ham­ingju­samir í hvers­dags­leik­anum, sama hvað þeir taka sér fyrir hendur. Þannig lýsi ég best ást minni til þeirra.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár