Máli Eflingar gegn Eldum rétt og Mönnum í vinnu lýkur

Ábyrgða­sjóður launa féllst á að borga van­greidd laun fjög­urra félags­manna Eflingar sem unnu fyrir Menn í vinnu og Eldum rétt. Fyr­ir­tækin unnu mál fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­víkur. Til stóð að áfrýja dómnum en ljóst er að ekk­ert verður af því.

Máli Eflingar gegn Eldum rétt og Mönnum í vinnu lýkur
Félags­mönnum bættur skaði Sólveig Anna, for­maður Eflingar, segir for­sendur til mál­sóknar ekki lengur þær sömu eftir að Ábyrgð­ar­sjóður launa borg­aði félags­mönnum van­greidd laun. Mynd: Heiða Helgadóttir

Efling hefur fallið frá fyrri ákvörðun um að áfrýja í máli gegn mat­sölu­fyr­ir­tæk­inu Eldum rétt og starfs­manna­leig­unni Menn í vinnu, eftir að Ábyrgða­sjóður launa ákvað að greiða van­goldin laun félags­manna stétt­ar­fé­lags­ins. Fyr­ir­tækj­unum var gefið að sök að hafa skuldað hverjum starfs­manni upp­hæðir á bil­inu 120 til 195 þús­und krónur, en sjóð­ur­inn hefur þegar greitt umræddar upp­hæðir. Með því lýkur einum áfanga í umfangs­miklum aðgerðum stétt­ar­fé­laga gegn launa­þjófn­aði. 

Í frétta­til­kynn­ingu frá Eflingu kemur fram að Ábyrgða­sjóður launa hafi  dag­ana 2. og 3. mars ákveðið að greiða áður­nefnd van­goldin laun félags­manna stétt­ar­fé­lags­ins. Formaður Eflingar, Sólveig Anna Jóns­dóttir, fagnar því að sjóð­ur­inn hafi geng­ist við ábyrgð í mál­inu en telur miður að kostn­aður falli á skatt­greið­endur.

„Það er sann­ar­lega ánægju­legt að Ábyrgða­sjóður launa hafi á síð­ustu stundu stigið inn og við­ur­kennt rétt­mæti þeirra krafna sem launa­greið­endur kusu að slást um við lág­launa­fólk fyrir dómi,“ segir hún. „Þannig er félags­mönnum okkar bættur skaði og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár