Mynd: Heiða Helgadóttir

Vill vera ein á aðfangadagskvöld

Nanna Rögn­vald­ar­dóttir er trú­laus en hélt upp á jólin í ára­tugi. Hún fór smátt og smátt að minnka að skreyta þar til hún hætti því alveg og svo ákvað hún að verja jól­unum ein erlendis og það gerði hún í mörg ár. Í ár vill hún vera ein heima á aðfanga­dags­kvöld.

Nanna Rögn­vald­ar­dóttir, rit­stjóri hjá For­lag­inu, er ekki trúuð. „Ég er ekki fermd til dæmis,“ segir hún en hún ólst upp við að haldið væri upp á jólin og það gerði hún í ára­tugi eftir að hún eign­að­ist sjálf börn. „Ég hef ekk­ert á móti jól­unum. Þegar ég hélt jól þá kveikti ég alltaf á útvarp­inu klukkan sex og lét jóla­mess­una vera undir elda­mennsk­unni þó ég væri ekki að hlusta á hana. Það var bara partur af stemn­ing­unni.“

 Nanna seg­ist hafa svo farið að draga smátt og smátt úr jóla­haldi. „Ég smá­hætti að skreyta og hætti svo að vera með jóla­tré.“ Börn hennar og barna­börn voru alltaf hjá henni á aðfanga­dags­kvöld. „Barna­börnin harð­neit­uðu að fara annað en til ömmu um kvöldið og vildu hafa alltaf allt í sömu skorðum en ég vildi sjálf breyta til, mér leið­ist að elda alltaf sama mat­inn, og mér fannst að fjöl­skyldur þeirra ættu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ein um jólin

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár