Ein og einmana á jólunum

Auður er ein þeirra sem leitað hefur á náðir Hjálp­ræð­is­hers­ins á aðfanga­dag. Auður hefur ekki efni á að kaupa jóla­mat fyrir sig og unga dóttur sína.

Ein og einmana á jólunum
Skammast sín fyrir fátækt Auður hefur ekki efni á að kaupa jóla­mat fyrir sig og unga dóttur sína. Mynd: Heiða Helgadóttir

Stundin ræddi við konu sem vegna fátæktar, verður ein með barni sínu um jólin. Konan, sem seg­ist skamm­ast sín fyrir að vera fátæk, verður hér eftir kölluð Auður. 

Hún situr við eld­hús­borðið heima hjá móður sinni, en hún heim­sækir hana reglu­lega og gefur henni mat og félags­skap. Í augum hennar má sjá þreytu og tár sem hún hefur sig alla við að halda aftur af.

Hún kvíðir jól­unum, en einna mest kvíðir hún því að á aðfanga­dag renni upp sú stund að sjö ára dóttir hennar átti sig á því að hún fái ekki jóla­gjöf frá henni. „Ég veit ekki hvernig ég á að útskýra fyrir henni að ég hafi ekki efni á jóla­gjöf,“ segir Auður og augu hennar fyll­ast af tárum sem fá ekki að leka niður kinnar hennar. Hún hefur lært í gegnum tíð­ina að halda aftur af þeim, halda and­liti.

Það er aug­ljóst að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sjá meira

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ein um jólin

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár