Erum að komast út úr yfirstandandi bylgju Covid-19

Smit­stuð­ull Covid-19 hér á landi er kom­inn niður fyrir einn. Þórólfur Guðnason sótt­varn­ar­læknir segir að við séum að kom­ast út úr yfir­stand­andi byljgu en lítið megi út af bregða.

Smit­stuð­ull Covid-19 er kom­inn niður fyrir einn og segir Þórólfur Guðnason að Ísland sé að kom­ast út úr þeirri bylgju sem hefur staðið yfir í far­aldr­inum. Lítið megi þó út af bregða, áfram geti hópsmit komið upp sem muni færa far­ald­ur­inn inn í nýja bylgju. Hann hvetur fólk til að fara ákaf­lega var­lega nú á aðvent­unni og forð­ast hópa­mynd­anir, eng­inn vilji þurfa að eyða jól­unum í ein­angrun, veikur af veirunni. 

Á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna og emb­ættis land­læknis í dag um stöðu mála í kór­óna­veiru­far­aldr­inum voru kynnta frum­nið­ur­stöður á líðan þjóð­ar­innar í far­aldr­inum. Þær nið­ur­stöður eiga ein­ungis við um fyrstu bylgju far­ald­urs­ins. 

Nið­ur­stöð­urnar eru þær að þung­lynd­is­ein­kenni og áfallastreita jókst hjá þeim sem fengu Covid-19, hjá þeim sem fóru í sótt­kví, hjá þeim sem eiga ætt­ingja sem fengu sjúk­dóm­inn og hjá þeim sem urðu fyrir tekju­missi af hans völdum, miðað við sam­an­burð­ar­hópa. Slík ein­kenni er hins vegar ekki að finna hjá heil­brigð­is­starfs­fólki, þrátt fyrir gríð­ar­legt álag á það. Það er mikið ánægju­efni sagði Unnuf Anna Valdi­mars­dóttir, pró­fessor í far­alds­fræði, sem leitt hefur rann­sókn­ina sem um ræðir. Alma Möller land­læknir tók undir það og benti á að í löndum þar sem far­ald­ur­inn hefði farið úr bönd­unum hefðu mæl­ingar sýnt að geð­heil­brigði heil­brigð­is­starfs­fólks hefði orðið fyrir áhrifum. 

Þórólfur greindi frá því að stutt væri í að bólu­efni kæmi hingað til lands, þó ekki væri ljóst hvenær og í hversu miklu magni. Á næstu dögum yrði fyr­ir­komu­lag bólu­setn­inga kynnt og sömu­leiðis kostir þess og gallar að láta bólu­setja sig. Ekki væri búið að ákveða hver fyrstur yrði bólu­settur. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Upplýsingafundir um Covid-19

Enginn afsláttur af sóttkvíarreglum þó smit komi upp í skólum
StreymiUpplýsingafundir um Covid-19

Enginn afsláttur af sótt­kví­ar­reglum þó smit komi upp í skólum

Komi Covid smit upp í skólum munu þeir sem útsettir kunna að hafa verið fyrir veirunni að fara í sótt­kví líkt og verið hefur. Enginn afsláttur verður gef­inn þar á nú fremur en áður, segir Þórólfur Guðnason sótt­varn­ar­læknir. Mun meira er um að alvar­lega veikir ein­stak­lingar komi beint inn á spít­al­ann í inn­lögn en verið hefur en hafi ekki við­komu á Covid-göngu­deild fyrst. Það á við um þrjá af þeim níu sjúk­lingum sem lagst hafa inn á gjör­gæslu­deild í þess­ari bylgju far­ald­urs­ins.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár