Hópsýkingar kunna að brjótast út þrátt fyrir bólusetningu

Gríð­ar­lega mik­il­vægt er að mikil og almenn þátt­taka verði í bólu­setn­ingu gegn Covid-19. Þrátt fyrir að náist að bólu­setja á bil­inu 60-70 pró­sent þjóð­ar­innar gætu smáar hóp­sýk­ingar herjað á þá sem ekki eru bólu­settir, sagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir á upp­lýs­inga­fundi land­læknis og almanna­varna.

Gríð­ar­lega mik­il­vægt er að sem allra flestir láti bólu­setja sig við Covid-19 kór­óna­veirunni þegar bólu­setn­ingar hefj­ast. Þátttaka þarf að lág­marki að ná til á bil­inu 60-70 pró­sent þjóð­ar­innar og þrátt fyrir að það náist verður enn hætta á að litlar hóp­sýk­ingar komi upp. 

Þetta sagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir á upp­lýs­inga­fundi land­læknis og almanna­varna í dag. Þórólfur sagði jafn­framt að bólu­setn­ingar yrðu þó ekki skylda. Ekkert nýtt væri að frétta frá Lyfja­stofnun Evrópu um það hvenær bólu­efni yrðu aðgengi­leg.

Á fund­inum var nýtt lita­kóðað við­vör­un­ar­kerfi sem tekið hefur verið upp kynnt. Sem stendur er landið allt rautt, sem er hæsta við­vör­un­ar­stig. Það þýðir að fólk á að gæta fyllstu var­úðar, umgang­ast sem fæsta og tryggja per­sónu­legar smit­varnir af fyllsta öryggi. Með næsta minn­is­blaði Þórólfs um aðgerðir vegna far­ald­urs­ins til ráð­herra mun fylgja lita­kóði. Ekkert var gefið upp um hvernig sá kóði yrði á lit­inn, hvorki á lands­vísu né á ákveðnum svæðum. Jafn­framt gaf Þórólfur ekk­ert upp um hvað myndi fel­ast í til­lögum hans. Núgild­andi tak­mark­anir falla úr gildi á mið­viku­dag. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Upplýsingafundir um Covid-19

Enginn afsláttur af sóttkvíarreglum þó smit komi upp í skólum
StreymiUpplýsingafundir um Covid-19

Enginn afsláttur af sótt­kví­ar­reglum þó smit komi upp í skólum

Komi Covid smit upp í skólum munu þeir sem útsettir kunna að hafa verið fyrir veirunni að fara í sótt­kví líkt og verið hefur. Enginn afsláttur verður gef­inn þar á nú fremur en áður, segir Þórólfur Guðnason sótt­varn­ar­læknir. Mun meira er um að alvar­lega veikir ein­stak­lingar komi beint inn á spít­al­ann í inn­lögn en verið hefur en hafi ekki við­komu á Covid-göngu­deild fyrst. Það á við um þrjá af þeim níu sjúk­lingum sem lagst hafa inn á gjör­gæslu­deild í þess­ari bylgju far­ald­urs­ins.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár