Leikið með arfinn

Maður er ekk­ert að svíkja draum­inn þótt maður taki aðeins úr og bæti í, segir Ófeigur Sig­urðs­son, sem sendi frá sér fjórtán smá­sögur í Váboðum. Ein þeirra fjallar um starfs­manna­leigu og birt­ist honum í draumi.

Ófeigur Sig­urðs­son hefur sent frá sér fimm skáld­sögur og sjö ljóða­bækur. Í nýj­ustu bók­inni, Váboðar, eru fjórtán smá­sögur þar sem meðal ann­ars er fjallað um drauma og raun­vís­indi, skáld og vís­inda­menn, úti­gangs­hross og þýfða móa, dyntótt land og ráð­villta þjóð, apa og máfa, fylgjur og fyr­ir­boða. Ófeigur segir að um helm­ingur sagn­anna séu til­tölu­lega hefð­bundnar smá­sögur, ef það sé þá til af því að þetta sé afar lif­andi form og breyti­legt.

„Ég er líka að leika mér með arf­inn, hina svoköll­uðu íslensku sagna­þætti sem voru vin­sælir hér svona fram að miðri síð­ustu öld. Þeir hafa kannski þótt svo­lítið gam­al­dags, næstum því eins og nef­tó­baks­fræði og næstum því bók­mennta­grein en er í raun­inni alþýðu­list. Ég er mjög mik­ill aðdá­andi sagna­þátta og þjóð­legs fróð­leiks vegna þess að íslenskir sagna­þættir eru sannar sögur. Í þeim er mikið um per­sónu­lýs­ingar og ferða­lög. Svo er það hið dul­ræna, draumar og aft­ur­göngur en samt er …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jólabókaflóðið 2020

Nútímaafinn hlustar á Fræbbblana og Q4U
MenningJólabókaflóðið 2020

Nútíma­af­inn hlustar á Fræbbblana og Q4U

Gerður Kristný segir að það sé gaman að vera íslenskur rit­höf­undur vegna þess að við sitjum hér að bók­mennta­þjóð. Hún segir að sér hætti til að yrkja mjög dramat­íska ljóða­bálka og að það sé mikil hvíld í því að semja léttar, skemmti­legar en raun­sæjar barna­bækur eins og nýj­ustu bók­ina, Iðunn og afi pönk. Gerður segir að líta eigi á lestur barna eins og hvert annað frí­stunda­starf.
Konan sem elskaði fossinn
MenningJólabókaflóðið 2020

Konan sem elskaði foss­inn

Sigríður Tóm­as­dóttir frá Bratt­holti var mikið nátt­úru­barn og dýra­vinur en átti erfitt með mann­leg sam­skipti. Sigríður er þekkt­ust fyrir bar­áttu sína gegn áformum um að virkja Gullfoss og gekk svo langt að hóta að enda líf sitt með því að kasta sér í foss­inn ef hann fengi ekki að vera í friði. Konan sem elskaði foss­inn er sögu­leg skáld­saga eftir Eyrúnu Inga­dóttur sem skrif­aði fyrst um Siggu frá Bratt­holti fyrir þrjá­tíu árum. Hún segir mik­il­vægt að vekja athygli á bar­áttu­konum fyrri tíma.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár