Mæður ljóssins

Ljós og myrkur er við­fangs­efni Auðar Övu Ólafs­dóttur í Dýralífi, sem ger­ist á þremur dögum í vetr­ar­myrkri rétt fyrir jól, þegar áður óþekkt lægð er í aðsigi. Hún fjallar um yfir­gang manns­ins við jörð­ina, mýkt­ina þar sem konur eru í aðal­hlut­verki og allt það sem er brot­hætt, sak­leysi og feg­urð.

Til þess að geta dáið þarf mað­ur­inn fyrst að fæð­ast.

Það er komið undir hádegi þegar loks rofar til í heim­skauta­nótt­inni og eld­hnött­ur­inn rúllar upp fyrir sjón­deild­ar­hring­inn, eða rétt svo, og bleik rák þrengir sér í gegnum rifu á glugga­tjöld­unum á fæð­ing­ar­stof­unni, varla breið­ari en greiða í vasa, og lendir á kon­unni sem liggur í rúm­inu og þjá­ist, hún lyftir upp hand­leggnum, opnar lófann og grípur ljósið, lætur hann svo síga aftur. Hún er með hálfan kíví, fullan af fræjum, flúraðan á stríðs­þan­inn kvið­inn, líkt og ávöxt­ur­inn hafi verið klof­inn í tvennt með flug­beittum hnífi, það eru komnar sprungur í blekið og áletr­unin undir mynd­inni er sömu­leiðis gisin, Þ í n a ð e i l í f u. Þegar barnið er fætt skreppur loð­inn ávöxt­ur­inn aftur saman. 

Ég set á mig grímu og klæði mig í hlífð­arslopp­inn.
Það er komið að því.
Erf­ið­ustu reynslu manns­ins.
Að fæð­ast.

…

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jólabókaflóðið 2020

Nútímaafinn hlustar á Fræbbblana og Q4U
MenningJólabókaflóðið 2020

Nútíma­af­inn hlustar á Fræbbblana og Q4U

Gerður Kristný segir að það sé gaman að vera íslenskur rit­höf­undur vegna þess að við sitjum hér að bók­mennta­þjóð. Hún segir að sér hætti til að yrkja mjög dramat­íska ljóða­bálka og að það sé mikil hvíld í því að semja léttar, skemmti­legar en raun­sæjar barna­bækur eins og nýj­ustu bók­ina, Iðunn og afi pönk. Gerður segir að líta eigi á lestur barna eins og hvert annað frí­stunda­starf.
Konan sem elskaði fossinn
MenningJólabókaflóðið 2020

Konan sem elskaði foss­inn

Sigríður Tóm­as­dóttir frá Bratt­holti var mikið nátt­úru­barn og dýra­vinur en átti erfitt með mann­leg sam­skipti. Sigríður er þekkt­ust fyrir bar­áttu sína gegn áformum um að virkja Gullfoss og gekk svo langt að hóta að enda líf sitt með því að kasta sér í foss­inn ef hann fengi ekki að vera í friði. Konan sem elskaði foss­inn er sögu­leg skáld­saga eftir Eyrúnu Inga­dóttur sem skrif­aði fyrst um Siggu frá Bratt­holti fyrir þrjá­tíu árum. Hún segir mik­il­vægt að vekja athygli á bar­áttu­konum fyrri tíma.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár