Blessuð þokan

Ári eftir stríðs­lok fædd­ist Kristín Steins­dóttir sem ólst upp á Seyð­is­firði þar sem lífið var litað af stríð­inu löngu eftir að því lauk. For­eldrar hennar og eldri systk­ini upp­lifðu það og sjálf lék hún stríðs­leiki í byrgi sem hafði verið byggt uppi á fjalli. Í bók­inni Yfir bænum heima segir hún sögu stór­fjöl­skyldu sem ger­ist í seinni heims­styrj­öld­inni.

Yfir bænum heima er þrí­tug­asta og þriðja skáld­saga Krist­ínar Steins­dóttur en í ár eru 33 ár síðan hún gaf út sína fyrstu bók, Fransk­brauð með sultu. Það var árið 1987 og fyrir hana hlaut Kristín Íslensku barna­bóka­verð­launin. Hún skrif­aði mikið fyrir börn og ung­linga en lang­aði þá að skrifa fyrir full­orðna og hefur nú gert það um ára­bil. 

Sagan sem kom út í lok októ­ber er fjöl­skyldu­saga sem ger­ist á Seyð­is­firði í seinni heims­styrj­öld­inni en sjálf er Kristín fædd þar og upp­alin.

For­eldrar mínir upp­lifðu stríðs­árin á Seyð­is­firði, eldri systk­ini, nágrannar, frændur og frænkur líka. Sjálf er ég fædd ári eftir að seinni heims­styrj­öld­inni lauk en samt fannst mér eins og stríð­inu hefði aldrei lokið. Það lifði með okkur í enda­lausum sögum og leikjum í gömlum loft­varna­byrgjum í hlíð­unum heima. Stundum var upp­lifunin svo sterk að ég heyrði hvin­inn frá flug­vélum og loft­varna­byssum. Og sprengj­urnar féllu allt í kringum mig. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jólabókaflóðið 2020

Nútímaafinn hlustar á Fræbbblana og Q4U
MenningJólabókaflóðið 2020

Nútíma­af­inn hlustar á Fræbbblana og Q4U

Gerður Kristný segir að það sé gaman að vera íslenskur rit­höf­undur vegna þess að við sitjum hér að bók­mennta­þjóð. Hún segir að sér hætti til að yrkja mjög dramat­íska ljóða­bálka og að það sé mikil hvíld í því að semja léttar, skemmti­legar en raun­sæjar barna­bækur eins og nýj­ustu bók­ina, Iðunn og afi pönk. Gerður segir að líta eigi á lestur barna eins og hvert annað frí­stunda­starf.
Konan sem elskaði fossinn
MenningJólabókaflóðið 2020

Konan sem elskaði foss­inn

Sigríður Tóm­as­dóttir frá Bratt­holti var mikið nátt­úru­barn og dýra­vinur en átti erfitt með mann­leg sam­skipti. Sigríður er þekkt­ust fyrir bar­áttu sína gegn áformum um að virkja Gullfoss og gekk svo langt að hóta að enda líf sitt með því að kasta sér í foss­inn ef hann fengi ekki að vera í friði. Konan sem elskaði foss­inn er sögu­leg skáld­saga eftir Eyrúnu Inga­dóttur sem skrif­aði fyrst um Siggu frá Bratt­holti fyrir þrjá­tíu árum. Hún segir mik­il­vægt að vekja athygli á bar­áttu­konum fyrri tíma.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár