Það er einhver að banka

Konan sem bankar kurt­eis­is­lega innan á kistu­lokið þegar hún vaknar upp í sinni eigin jarð­ar­för en vill ekki trufla athöfn­ina, er við­fangs­efnið í Guð­rún­ar­kviðu eftir Eyrúnu Ósk Jóns­dóttur.

Þú ert í kórnum og hefur sungið við ótal jarð­ar­farir. Þú býst ekki við öðru en að þessi verði tíð­inda­laus og hefð­bundin í form­inu. Bara enn ein ósköp venju­leg evang­el­ísk-lút­ersk þjóð­kirkju­jarð­ar­för.   

Svona hefst ljóða­sagan Guð­rún­ar­kviða eftir Eyrúnu Ósk Jóns­dóttur, skáld, leikkonu og leik­stjóra. Og nei, þetta er hvorki hefð­bundin né tíð­inda­laus jarð­ar­för. 

Þessi í kórnum sem býst við tíð­inda­lausri athöfn er ásamt félögum sínum í kórnum að syngja Ave Mariu Schuberts þegar henni finnst eitt­hvað skyndi­lega liggja í loft­inu, hún finnur eitt­hvað þungt og kalt eins og stein leggj­ast yfir brjóstið og verður órótt. Hún er nokkuð viss um að hljóðið komi frá kist­unni þar sem liggur kona sem er rétt skriðin yfir miðjan aldur. 
Kór­fé­lag­anum sem les­and­inn er með í jarð­ar­för­inni í byrjun Guð­rún­ar­kviðu finnst eins og verið sé að banka. Og hún er ekki að ímynda sér, „það er ein­hver að banka“. Á kistu­lokið inn­an­vert? Jú, …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jólabókaflóðið 2020

Nútímaafinn hlustar á Fræbbblana og Q4U
MenningJólabókaflóðið 2020

Nútíma­af­inn hlustar á Fræbbblana og Q4U

Gerður Kristný segir að það sé gaman að vera íslenskur rit­höf­undur vegna þess að við sitjum hér að bók­mennta­þjóð. Hún segir að sér hætti til að yrkja mjög dramat­íska ljóða­bálka og að það sé mikil hvíld í því að semja léttar, skemmti­legar en raun­sæjar barna­bækur eins og nýj­ustu bók­ina, Iðunn og afi pönk. Gerður segir að líta eigi á lestur barna eins og hvert annað frí­stunda­starf.
Konan sem elskaði fossinn
MenningJólabókaflóðið 2020

Konan sem elskaði foss­inn

Sigríður Tóm­as­dóttir frá Bratt­holti var mikið nátt­úru­barn og dýra­vinur en átti erfitt með mann­leg sam­skipti. Sigríður er þekkt­ust fyrir bar­áttu sína gegn áformum um að virkja Gullfoss og gekk svo langt að hóta að enda líf sitt með því að kasta sér í foss­inn ef hann fengi ekki að vera í friði. Konan sem elskaði foss­inn er sögu­leg skáld­saga eftir Eyrúnu Inga­dóttur sem skrif­aði fyrst um Siggu frá Bratt­holti fyrir þrjá­tíu árum. Hún segir mik­il­vægt að vekja athygli á bar­áttu­konum fyrri tíma.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár