Mynd: MANDEL NGAN / AFP

Stórskuldugur, landflótta og lögsóttur: Það sem gæti beðið Trumps eftir valdaskiptin

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti á yfir höfði sér fjölda lög­sókna og jafn­vel opin­berar ákærur sak­sókn­ara eftir að hann lætur af emb­ætti. Þá skuldar hann mörg hund­ruð millj­ónir doll­ara sem þarf að greiða til baka á næstu árum og gæti þurft að selja stóran hluta eigna sinna.

Það er ekki óvenju­legt að for­setar sæk­ist hart eftir end­ur­kjöri en í til­viki Donalds Trump átti hann per­sónu­lega meira undir í kosn­ing­unum en flestir for­verar hans. Trump hefur verið á laga­legu gráu svæði alla sína for­seta­tíð og raunar löngu áður. Má þar meðal ann­ars nefna afskipti hans af við­skiptum sam­hliða emb­ætt­is­verkum, skipun náinna ætt­ingja í mik­il­vægar stöður í Hvíta hús­inu, mútu­greiðslur til Stormy Daniels, Úkra­ínu­málið, sem hann var ákærður fyrir, rann­sóknir á tengslum fram­boðs­ins við Rússa og svo mætti lengi telja.

Hæsti­réttur Banda­ríkj­anna hefur aldrei úrskurðað um hvort hægt sé að ákæra sitj­andi Banda­ríkja­for­seta fyrir glæpi og ekki er fjallað um það með skýrum hætti í lögum eða stjórn­ar­skrá. Það hefur hins vegar skap­ast löng hefð fyrir því í banda­ríska dóms­mála­ráðu­neyt­inu að sitj­andi for­setar njóti frið­helgi og þótti það meðal ann­ars ófrá­víkj­an­leg regla í Watergate-hneyksl­inu.

„Ég held að það myndi hafa jákvæð áhrif á banda­rískt sam­fé­lag að sjá svo aug­ljós­lega spilltan mann enda í fang­elsi“

Richard Nixon hafði slíkar áhyggjur af því að verða ákærður eftir að hann léti af emb­ætti að hann sagði við aðstoð­ar­mann að hann óskaði þess að her­inn ein­fald­aði sér málið með því að skilja eftir skamm­byssu á skrif­borð­inu sínu. Læknir Nixons lét þá fjar­lægja öll hættu­leg lyf úr Hvíta hús­inu til að hann færi sér ekki að voða. Svo fór á end­anum að Gerald Ford tók við for­seta­emb­ætt­inu og náð­aði Nixon áður en kom til þess að hann yrði ákærður. Það er nokkuð sem Biden er síður lík­legur til að gera í til­viki Trumps.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakosningar í BNA 2020

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár