Tveir forstöðumenn í röð hætta og kvarta undan einelti

Jóna Hlíf Hall­dórs­dóttir, for­stöðu­maður Gerð­ar­safns, hefur sagt upp vegna sam­skipta­örð­ug­leika við for­stöðu­mann menn­ing­ar­mála Kópa­vogs­bæjar, Soffíu Karls­dóttur. Jóna Hlíf segir að Soffía hafi ítrekað gert lítið úr sér, hunsað álit sitt og dreift um sig slúðri. Forveri Jónu Hlífar hrakt­ist einnig úr starfi vegna sam­skipta­örð­ug­leika við Soffíu.

Tveir forstöðumenn í röð hætta og kvarta undan einelti
Hrekst úr starfi Jóna Hlíf segir Soffíu Karls­dóttur, yfir­mann sinn, hafa lagt sig í ein­elti og komið af stað um sig slúðri. Mynd: Heiða Helgadóttir

Jóna Hlíf Hall­dórs­dóttir, for­stöðu­maður Gerð­ar­safns í Kópavogi, sagði í gær upp starfi sínu eftir aðeins þrettán mán­aða starf. Ástæðan fyrir upp­sögn Jónu Hlífar er upp­lifun hennar á sam­skipta­örð­ug­leikum við sinn nán­asta yfir­mann og emb­ætt­is­menn Kópa­vogs­bæjar, sam­skipta­örð­ug­leikum sem hún lítur á sem ein­elti í sinn garð. 

„Yfir­maður minn, Soffía Karls­dóttir, for­stöðu­maður menn­ing­ar­mála í Kópavogi, stóð ekki með mér í deilum við rekstr­ar­að­ila veit­inga­sölu í Gerð­ar­safni, sem komu fram af van­virð­ingu við mig og starfs­fólk mitt og sýndu af sér ógn­andi hegðun. Þvert á mót þá dró hún taum þess aðila. Þegar ég upp­lýsti um lög­brot sem verið væri að fremja við veit­inga­sölu í Gerð­ar­safni, sölu á áfengi án þess að vín­veit­inga­leyfi væri fyrir hendi, ýjaði hún að því að ég hefði brotið per­sónu­vernd­ar­lög. Hún hefur hunsað fag­legt álit mitt og sjón­ar­mið, haldið frá mér upp­lýs­ingum og tekið ákvarð­anir með geð­þótta­kenndum hætti og ekki í sam­ræmi við góða stjórn­sýslu­hætti. Soffía hefur gert lítið úr líðan minni og aðstæðum starfs­fólks Gerð­ar­safns og komið af stað um mig orðrómi og slúðri. Ég lít á þetta sem ein­elti í minn garð. Ég get ekki setið undir slíku lengur og mér blöskrar satt að segja þessi van­hæfni, sem leiðir nú til þess að ég er annar safn­stjór­inn á tveimur árum sem geng út úr Gerð­ar­safni.“ Þessum ásök­unum hafnar Soffía í yfir­lýs­ingu sem hún sendi Stund­inni.

Fyrri forstöðumaður segir starfsaðstæður hafa verið óbærilegar

Þetta segir Jóna Hlíf í við­tali við Stundina. Jóna Hlíf tók við störfum sem for­stöðu­maður Gerð­ar­safns 1. ágúst 2019. Forveri Jónu Hlífar í starfi hætti skyndi­lega, í jan­úar 2019, vegna ágrein­ings við yfir­mann sinn, Soffíu Karls­dóttur, for­stöðu­mann menn­ing­ar­mála í Kópavogi. 

Jóna Hlíf sótti um starfið þegar það var aug­lýst, og fékk. Hún seg­ist ekki hafa vitað af því að brott­hvarf for­vera hennar hafi verið vegna sam­skipta­örð­ug­leika. „Auðvitað er mynd­list­ar­heim­ur­inn lít­ill og ég var búin að heyra að hún hefði ekki verið sátt. Ég ákvað hins vegar að vera ekk­ert að graf­ast fyrir um hvað hefði legið þar á bak við og ákvað bara að hefja störf með opnum huga.“

Kristín Dagmar Jóhann­es­dóttir, for­veri Jónu Hlífar í starfi for­stöðu­manns Gerð­ar­safns, stað­festir í sam­tali við Stundina að hún hefði sagt upp starfi sínu í mars í kjöl­far langvar­andi sam­skipta- og sam­vinnu­örð­ug­leika og óyf­ir­stíg­an­legs ágrein­ings við Soffíu, for­stöðu­mann menn­ing­ar­mála í Kópavogi. „Við ráðn­ingu mína árið 2014 var lagt uppi með mikla upp­bygg­ingu Gerð­ar­safns. Lýsir það sér meðal ann­ars í auknum sýni­leika og aðsókn í safnið, sem fjór­fald­að­ist á tæp­lega 5 ára tíma­bili. Kalla slíkar breyt­ingar á fjölda áskor­anna en þótti mér sér­stak­lega dríf­andi að takast á við stofnun á slíkum umbeyt­inga­tímum. Tók ég þó þá ákvörðun að segja starfi mínu lausu þegar starfs­að­stæður urðu óbæri­legar vegna þess ágrein­ings og erf­ið­leika sem ein­kenndi starfs­um­verfið síðusta eitt og hálfa árið í sam­skiptum við þá nýráð­inn for­stöðu­mann menn­ing­ar­mála, Soffíu Karls­dóttur,“ segir Kristín.

Upplifði óvirðingu og ógnanir

Þegar Jóna Hlíf tók til starfa var rekstr­ar­að­ili fyrir í Gerð­ar­safni sem sinnti veit­inga­sölu þar, fyr­ir­tækið Pure Deli. Á fyrstu dögum í starfi hófust sam­skipti Jónu Hlífar við eig­endur Pure Deli. Hún lýsir því að þau sam­skipti hafi ekki byrjað vel. „Frá fyrsta degi sýndu þau mér óvirð­ingu. Sam­skiptin sner­ust um að setja þeim ákveðin mörk því þau voru búin að færa starf­sem­ina að hluta inn í rými safns­ins. Ég kom þarna inn með ákveðna list­ræna sýn, um hvernig ég vildi nýta rými safns­ins og hvernig ég vildi byggja upp starf­semi Gerð­ar­safns. Við fórum mjög fljótt að deila um afnot af rými sem er kallað gang­ur­inn. Umrætt rými, gang­ur­inn, er mjög mik­il­vægur í starf­semi safns­ins. Þaðan er aðgengi að lista­verka­geymslu safns­ins, lyftu og að flótta­leið, og það hefur um margra ára skeið hýst fræðslu­starf­semi. Ég vildi búa til enn betra  fræðslu­rými  sem myndi slá í gegn, þar sem fjöl­skyldur gætu komið saman og skapað, ég taldi það vera safn­inu í hag og rekstri þess.“

Jóna Hlíf lýsir því að í sam­tölum við starfs­fólk Gerð­ar­safns, þegar hún var nýtekin við stöðu safn­stjóra, hefði starfs­fólkið lýst því að sam­skipti við for­svars­fólk Pure Deli hefðu ekki gengið vel fram að því. „Tveir starfs­menn lýstu meðal ann­ars ógn­andi hegðun af hálfu eig­anda Pure Deli. Starfs­fólk lýsti því að þeim hefði verið sýndur dóna­skapur og óvirð­ing. Ég varð fljótt vör við sams­konar hegðun á eigin skinni.“ 

„Í þessu sam­tali sýndi eig­and­inn mér mjög ógn­andi hegðun og hót­aði mér“

Erf­ið­leikar í sam­skiptum við eig­endur Pure Deli undu upp á sig að sögn Jónu Hlífar og 8. nóv­em­ber 2019 varð atvik sem Jóna Hlíf lýsir sem alvar­legu. „Ég ræddi þá við eig­anda Pure Deli á veit­inga­staðnum þar sem ég fór fram á að ekki væri kveikt á kertum á veit­inga­staðnum, því sam­kvæmt örygg­is­reglum safns­ins er það ekki leyfi­legt. Ég óskaði eftir því að þau myndu passa upp á að aðgengi væri óhindrað að lyftu og lista­verka­geymslu, sem ítrekað hafði verið mis­brestur á. Í þessu sam­tali sýndi eig­and­inn mér mjög ógn­andi hegðun og hót­aði mér. Hann hót­aði því að hann myndi sjá til þess að ég fengi ekki mínu fram, hann væri með Ármann Kr. Ólafsson bæj­ar­stjóra með sér í liði og hann væri líka með Soffíu með sér í liði. Þetta gerð­ist fyrir framan hóp af leik­skóla­börnum og starfs­fólki leik­skól­ans sem var brugðið fyrir vikið, enda hækk­aði mað­ur­inn rödd­ina mjög mikið. Ég upp­lifði þetta sem algjört virð­ing­ar­leysi og and­legt ofbeldi af hans hálfu.“

Tveir starfs­menn Gerð­ar­safns stað­festa upp­lifun Jónu Hlífar af sam­skipt­unum. Þeir lýsa því að eig­andi Pure Deli hafi talað háum rómi og sýnt bæði Jónu Hlíf og öðrum við­stöddum virð­ing­ar­leysi og hefði þetta skapað mjög óþægi­legt and­rúms­loft, svo mjög að börnum og leik­skóla­kenn­urum hefði aug­ljós­lega verið mjög brugðið og hefðu viljað kom­ast út úr aðstæð­unum. 

Sat undir ásökunum

Eftir þetta atvik hafði Jóna Hlíf sam­band sím­leiðis við Soffíu Karls­dóttur, yfir­mann sinn, og lýsti sinni upp­lifun. „Hennar við­brögð voru fyrir mína parta von­brigði, mér fannst hún ekki styðja við mig og ekki taka málið alvar­lega. Ég heyrði síðan í henni aftur og þá fannst mér hún bara gera lítið úr upp­lifun minni.“

„Mér blöskr­aði að á þessum fundi var ég ekki beðin afsök­unar“

Jóna Hlíf skrif­aði eftir þetta yfir­lýs­ingu sem hún sendi yfir­manni sínum, Soffíu, ásamt yfir­lýs­ingum starfs­mann­anna tveggja sem nefndir eru hér að framan. Því hafi Soffíu, að mati Jónu Hlífar, vel átt að vera ljóst hver staða mála væri. Á fundi Jónu Hlífar með rekstra­að­il­unum og Soffíu skömmu síðar hafi verið reynt að leysa ýmis ágrein­ings­mál. „Mér blöskr­aði að á þessum fundi var ég ekki beðin afsök­unar. Ég bjóst við því að for­stöðu­maður menn­ing­ar­mála í Kópavogi, minn yfir­maður, myndi standa með mér og óska eftir því en það gerði hún ekki.“

Í nóv­em­ber á síð­asta ári kynnti Jóna Hlíf sýn sína á starf­semi Gerð­ar­safns fyrir lista- og menn­ing­ar­ráði Kópavogs, og þar á meðal hvernig hún hyggð­ist nýta rými safns­ins. Þá stefnu kynnti hún einnig rekstr­ar­að­ilum Pure Deli. Breyt­ingar sem því fylgdu áttu að taka gildi í jan­úar á þessu ári og fólu meðal ann­ars í sér end­ur­hönnun á fræðslu­rým­inu og aukið fræðslu­starf sem fara ætti fram í svoköll­uðum gangi sem áður hefur verið nefndur. „Nokkrum dögum fyrir opnun er ég skyndi­lega boðuð á fund með Soffíu þar sem hún til­kynnir mér að hún hafi verið boðuð á neyð­ar­fund milli jóla og nýárs með rekstr­ar­að­ilum Pure Deli og þau verði að fá meira rými fyrir hópa. Á fund­inum var ég meðal ann­ars sökuð um að hafa tekið rými af þeim. Ég var auð­vitað ekki sam­mála því, þetta rými hefur alltaf verið safns­ins. Ég benti henni á að ég hefði eytt miklum fjár­munum í að end­ur­hanna  fræðslu­rým­iðið, í sam­ræmi við áherslur sem voru sam­þykktar af lista- og menn­ing­ar­ráði Kópa­vogs­bæjar.“

Jóna Hlíf seg­ist hafa reynt að benda rekstr­ar­að­ilum Pure Deli á að aukin ásókn í safnið hlyti að vera rekstri þeirra til góða. Hún hafi þegar verið búin að sam­þykkja fjölgun á borðum svo veit­inga­stað­ur­inn gat þjón­u­stað um 60 manns í garð­skál­anum og með­fram stig­anum en krafa rekstr­ar­að­ila var að fá enn meira rými fyrir hópa. 

Var neitað um fundi

Eftir þetta seg­ist Jóna Hlíf hafa farið mark­visst að skoða hvernig sam­skiptin hafi verið eftir að hún tók við störfum. Hún hafi því sett saman minn­is­blað þar sem hún til­tók ýmsa þætti sem vert væri að skoða áður en Pure Deli fengi enn meira rými í Gerð­ar­safni, eins og farið hafði verið fram á. „Meðal þess voru örygg­is­mál. Það var búið að brjót­ast þrisvar sinnum inni safnið á þessum tíma. Ég tengi það við rekstur Pure Deli í hús­inu, meðal ann­ars læsti starfs­maður veit­inga­stað­ar­ins ekki hurð að safn­inu þegar hann fór heim að lok­inni vinnu og inn um þá hurð var farið. Þá höfðu rekstr­ar­að­ilar ítrekað brotið samn­ing um rekstur í safn­inu, með því að láta mig sem safn­stjóra ekki vita að haldnar væru veislur eftir lokun safns­ins. Með því var eng­inn á staðnum til að gæta saf­n­eignar safns­ins og ekki var hægt að tryggja að gestir veit­inga­stað­ar­ins færu ekki inn í sýn­ing­ar­sali Gerð­ar­safns.“

„Hvernig á ég að geta komið mik­il­vægum upp­lýs­ingum til minnar stjórnar ef ég má ekki eiga sam­skipti við hana?“

Jóna Hlíf óskaði þá eftir fundi með Ármanni Kr. Ólafs­syni bæj­ar­stjóra, Pálma Þór Mássyni, bæj­ar­lög­manni og bæj­ar­rit­ara, Karen Elísa­betu Hall­dórs­dóttur, for­manni lista- og menn­ing­ar­ráðs, og Soffíu Karls­dóttur, for­stöðu­manni menn­ing­ar­mála, til að fara yfir málin. „Minn yfir­maður, Soffía, neitar mér um þann fund. Ég hafði sam­band við hennar yfir­mann, Pálma, og óska skýr­inga. Hann segir mér að Soffía sé minn yfir­maður og hún sé búin að taka þessa ákvörðun og við hana verði staðið. Svo skamm­aði hann mig í tölvu­pósti fyrir að hafa haft sam­band við for­mann lista- og menn­ing­ar­ráðs, með því væri ég að brjóta sam­skipta­reglur. Mér brá veru­lega við þetta, mér höfðu aldrei verið kynntar slíkar sam­skipta­reglur. Samkvæmt stofn­skrá Gerð­ar­safns er mín stjórn, sem ég heyri undir, lista- og menn­ing­ar­ráð en hvergi kemur fram í stofn­skránni að for­stöðu­maður menn­ing­ar­mála sé minn yfir­maður. Hvernig á ég að geta komið mik­il­vægum upp­lýs­ingum til minnar stjórnar ef ég má ekki eiga sam­skipti við hana? Ég verð þá að treysta því að minn yfir­maður komi mínum athuga­semdum og umkvört­unum á fram­færi, sem ég tel að ekki hafi verið gert.“

Ráðgjafarnefnd sagt að henni kæmi málið ekki við

Jóna Hlíf fékk þá upp­lýs­ingar um að fall­ist hefði verið á kröfur Pure Deli um aukið rými þeim til handa, að henni for­spurðri. Taka ætti hluta af umræddu fræðslu­rými, sem nýbúið var að end­ur­hanna, og setja undir starf­semi veit­inga­stað­ar­ins. Var henni gerð grein fyrir að teikna ætti upp veggi til að hólfa það svæði af og taka undir veit­inga­rekstur. Eftir þetta fund­aði Jóna Hlíf með ráð­gjaf­ar­nefnd Gerð­ar­safns, sem á að vera leið­bein­andi um sýn­inga­hald og safn­kaup, enda taldi hún það eðli­legt þar eð breyt­ingar sem slíkar hefðu áhrif á sýn­ing­ar­hald safns­ins. Að hennar sögn var nefnd­ar­mönnum brugðið og ákváðu að senda sjálf erindi á lista- og menn­inga­ráð, þar sem óskað var eftir því að hið minnsta yrði þeim fram­kvæmdum frestað til hausts.

Stundin ræddi við nefnd­ar­menn í ráð­gjaf­ar­nefnd Gerð­ar­safns sem stað­festu frá­sögn Jónu Hlífar. Nefnd­ar­menn hafi fengið þau svör við erindi sínu að það yrði ekki tekið til greina þar eð rekstr­ar­leg mál­efni safns­ins kæmu nefnd­inni ekki við. Í sam­tölum lýstu nefnd­ar­menn áhyggjum af því að nú í annað skipti á stuttum tíma hafi safn­stjórar hrak­ist frá störfum í Gerð­ar­safni vegna sam­skipta­örð­ug­leika við for­stöðu­mann menn­ing­ar­mála. Þá báru þau Jónu Hlíf afar vel sög­una sem for­stöðu­manni Gerð­ar­safns.

Kom upp um ólöglega áfengissölu

Í fram­hald­inu fór Jóna Hlíf að kanna málið betur, meðal ann­ars að athuga hvort rekstr­ar­leyfi Pure Deli í Gerð­ar­safni heim­il­aði allan þann fjölda gesta sem rekstr­ar­að­il­arnir vildu koma þar fyrir. „Ég hringi í sýslu­mann sem til­kynnir mér að Pure Deli hafi ekki rekstr­ar­leyfi í Gerð­ar­safni.“

„Ég taldi þetta mjög alvar­legt, þarna var verið að fremja lög­brot undir merkjum Kópa­vogs­bæjar“

Í lögum og reglu­gerð um veit­inga­staði eru veit­inga­staðir flokk­aðir í þrjá flokka. Í fyrsta flokki telj­ast staðir án áfeng­is­veit­inga og slíkir staðir þurfa ekki rekstr­ar­leyfi, aðeins veit­inga­leyfi. Selji hins vegar veit­inga­staðir áfengi er þeim skylt að hafa gilt rekstr­ar­leyfi. „Allan tím­ann frá því að ég tók til starfa hafði Pure Deli selt áfengi í Gerð­ar­safni, og fyrir þann tíma einnig, það getur starfs­fólk Gerð­ar­safns stað­fest. Ég til­kynnti þetta til lög­reglu og síðan með tölvu­pósti til minna yfir­manna og til innri eft­ir­lits­að­ila í Kópavogi. Ég taldi þetta mjög alvar­legt, þarna var verið að fremja lög­brot undir merkjum Kópa­vogs­bæjar og í húsi sem ég ber ábyrgð á. Ég óskaði eftir því að samn­ingi við rekstr­ar­að­il­ana yrði rift sam­stundis.“ 

Lögregla mætti á svæðið degi síðar og eftir það linnti áfeng­is­sölu hjá Pure Deli. Jóna Hlíf segir að í fram­hald­inu hafi hún haft sam­band við bæði heil­brigð­is­eft­ir­lit og Slökkvi­lið til að kanna hvort rekstur Pure Deli í Gerð­ar­safni sam­ræmd­ist lögum og reglum. Raunin er sú að Pure Deli hefur hætt rekstri í Gerð­ar­safni, frá 12. ágúst síð­ast­liðnum, að sögn vegna ástands­ins sem skap­að­ist vegna Covid-19 far­ald­urs­ins.

Lítur á framkomu Soffíu sem einelti

En hafi Jóna Hlíf haldið að það yrði talið henni til tekna að benda á að verið væri að fremja lög­brot í Gerð­ar­safni var það öðru nær. „Við­brögðin sem ég fékk voru ótrú­leg. Ég fæ tölvu­póst frá mínum yfir­manni, Soffíu, þar sem hún fer fram á að ég skrifi grein­ar­gerð um við hverja ég hafi talað í sam­bandi við rekstur Pure Deli í Gerð­ar­safni. Tölvu­póst þar sem hún ýjar að eða hrein­lega sakar mig um að hafa brotið per­sónu­vernd­ar­lög. Í sama tölvu­pósti var mér og mínu starfs­fólki bannað að tala við rekstr­ar­að­ila og starfs­fólk Pure Deli, öll sam­skipti ættu að fara í gegnum Soffíu. Ég lít á þessa fram­komu, og ítrekuð sam­bæri­leg atvik sem hluta af ein­elti gegn mér.“

Jóna Hlíf segir að þessi fram­koma sé því grát­legri vegna þess að hún hafi verið mjög ánægð með starfið er lýtur að safna­starf­inu sjálfu. „Ég hef alltaf haft list­rænt frelsi við sýn­ing­ar­hald Gerð­ar­safns og er mjög þakk­lát fyrir það. Ég er líka mjög þakk­lát fyrir að ná flestum mínum mark­miðum, meðal ann­ars veru­lega aukna aðsókn að safn­inu, að hafa komið á nýrri safn­búð og þá hefur safnið aldrei fengið  jafn mikið af veg­legum styrkjum á einu ári, alls 17 millj­ónir króna. Starfs­fólk Gerð­ar­safns er  frá­bært og ég er þakk­lát fyrir að hafa kynnst því og vinna með því. En þegar ákveðið er að taka af safn­inu þetta rými er auð­vitað verið að vega að minni sýn á rekstri og starf­semi safns­ins. Ég er ekki bara að berj­ast um eitt­hvað rými, eitt­hvað her­bergi, þetta er lista­safn, fyrst og fremst. Ef Kópa­vogs­bær vill breyta Gerð­ar­safni, arf­leifð Gerðar Helga­dóttur, í veit­inga­stað þá skal hann bara gera það. En ég sem safn­stjóri lista­safns­ins Gerð­ar­safns ætla ekki að sitja hljóð undir því, eða taka þátt í því.“

Skömmu eftir þetta átti Jóna Hlíf starfs­manna­við­tal með Soffíu en undir lok fund­ar­ins kynnti Soffía fyrir henni að hún hyggð­ist gera breyt­ingu á starfs­lýs­ingu hennar, og að út úr henni ætti að taka setn­ingu þar sem til­tekið væri að for­stöðu­maður Gerð­ar­safns sinnti sam­skiptum við rekstr­ar­að­ila veit­inga­sölu. „Ég sam­þykkti það, en við­ur­kenni að það voru mis­tök, ég var bara svo kjaft­stopp yfir þessu. Eftir á að hyggja hefði ég átt að heyra í lög­fræð­ingi hjá BHM. En þegar þetta er orðið svona langt gengið þá er maður bara orð­inn van­mátt­ugur. Stuttu eftir starfs­manna­við­talið var und­ir­rit­aður nýr við­auki við samn­ing­inn við Pure Deli án minnar vit­undar og þar stendur eft­ir­far­andi: Þar sem er vísað er til for­stöðu­manns Gerð­ar­safns í aðal­samn­ingi mun með samn­ingi þessum vera vísað til for­stöðu­manns menn­ing­ar­mála. Hvernig á ég að geta borið ábyrgð á safn­kosti Gerð­ar­safns ef ég hef ekk­ert um það að segja hvaða rekstr­ar­að­ili er inn í safn­inu, svo og ég tali nú ekki um að ég megi ekki eiga sam­skipti við rekstr­ar­að­ila?“

Krafa um að sjónarmið Jónu Hlífar kæmu fram hunsuð í bæjarráði

Í lista- og menn­ing­ar­ráði Kópavogs var hald­inn fundur 12. mars síð­ast­lið­inn og kynnt til­laga að skipt­ingu á rými Gerð­ar­safns til að aðgreina rekstur veit­inga­staðar frá safn­inu. Í fund­ar­gerð kemur fram að Margrét Tryggva­dóttir nefnd­ar­maður í ráð­inu óski eftir því að sjón­ar­mið safn­stjóra Gerð­ar­safns kæmu fram. „Þrátt fyrir það fékk ég aldrei að koma mínum sjón­ar­miðum á fram­færi. Þessi ósk var ein­fald­lega hunsuð. Síðan var þetta tekið fyrir á fundi bæj­ar­ráðs í maí án þess að minn yfir­maður gerði mér grein fyrir því. Þar var upp­skipt­ingin sam­þykkt án þess að ég fengi neitt um það að segja og mér heldur ekki til­kynnt það eftir á.“

Margrét Tryggva­dóttir segir í sam­tali við Stundina að það sé rétt að aldrei hafi verið leitað eftir sjón­ar­miðum Jónu Hlífar varð­andi málið. Ein ástæða þess hafi verið að fyrri Covid-19 far­ald­ur­inn hafi þarna skollið á. „Þessu var ekki fylgt eftir. Mér hefði fund­ist eðli­legt að þessu hefði verið fylgt eftir áður en ákvörðun var tekin í bæj­ar­ráði, en málið hefur kannski verið í skilj­an­legri bið­stöðu vegna kór­ónu­veirunnar.“

Segir um alvarlega vanhæfni að ræða

Spurð hvers vegna hún hafi ekki leitað til BHM og kært ein­elti í sinn garð segir Jóna Hlíf að hún hafi leitað þangað og fengið álit. „Ferlið sem fer af stað þegar maður kærir ein­elti innan stjórn­sýsl­unnar er hins vegar langt og strembið, það er kvíða­vald­andi og yfir­leitt skilar það ekki þeim árangri sem maður óskar eftir, að sá sem beitir ofbeldi verði áminntur eða rek­inn. Ég gat því ekki séð á þeim tíma­punkti að það  væri far­sæl lausn.“

„Ég get bara ekki setið undir þessu lengur“

Eins og fyrr segir hefur Pure Deli hætt starf­semi í Gerð­ar­safni og aug­lýst hefur verið eftir nýjum rekstr­ar­að­ila. Jóna Hlíf fær ekki að fara yfir þær umsóknir heldur bæj­ar­lög­maður. Þá hefur Gerð­ar­safni verið bannað að nýta rými sem standa auð nú á meðan eng­inn veit­inga­rekstur er í þeim. „Ég finn ekki fyrir trausti og þar með er for­sendan fyrir  þessu starfi farin. Eftir að hafa setið undir þessu ástandi í heilt ár hef ég fengið nóg. Það er ekki starf­andi mannauðs­stjóri í Kópa­vogsbæ sem stendur og því hef ég ekki getað leitað til hans. Menn­ing­ar­húsin í Kópa­vogsbæ hafa engan trún­að­ar­mann og því er ekki hægt að leita til hans. Faglegt álit mitt og sjón­ar­mið hafa verið hunsuð. Yfir­maður minn, Soffía Karls­dóttir, hefur haldið frá mér upp­lýs­ingum, hún hefur svipt mig ábyrgð án þess að upp­lýsa mig um það og hún hefur komið af stað orðrómi og slúðri um mig. Hún hefur tekið geð­þótta­kenndar ákvarð­anir sem snúa meðal ann­ars að verk­sviði mínu og grafið undan trausti á fag­legri hæfni minni og frammi­stöðu. Þá hefur Soffía gert lítið úr líðan minni og aðstæðum starfs­fólks. Ég get bara ekki setið undir þessu lengur. Mér blöskrar líka að ég sé annar safn­stjór­inn á tveimur árum sem gengur út úr safn­inu vegna óyf­ir­stíg­an­legs ágrein­ing­ings við Soffíu. Mér finnst þetta allt vera alvar­leg van­hæfni og þess vegna segi ég upp störfum sem for­stöðu­maður Gerð­ar­safns.“

Neitar ásökunum um einelti

Soffía Karls­dóttir, for­stöðu­maður menn­ing­ar­mála svar­aði fyr­ir­spurn Stund­ar­innar um ásak­anir á hendur sér í skrif­legu svari. Þar sagði hún að engin ásökun um ein­elti af hennar hálfu væri til rann­sóknar hjá bænum og kæmi full­yrð­ing Jónu Hlífar þess efnis henni á óvart. 

„Hjá Kópa­vogsbæ eru ein­elt­is­mál unnin eftir við­ur­kenndu ferli og réttur hvers starfs­manns sem telur sig beittan ein­elti að virkja þann feril. For­stöðu­maður Gerð­ar­safns á að þekkja þann feril en hún mun  einnig fá upp­lýs­ingar um hann í dag.

Að öðru leyti tjái ég mig ekki um mál­efni ein­stakra starfs­manna.

Hvað varðar starf­semi Pure Deli í Gerð­ar­safni þá var samið við rekstr­ar­að­ila stað­ar­ins  um rekstur í hús­næði Gerð­ar­safns haustið 2018. Lista- og menn­ing­ar­ráð lagði svo til í mars 2020 að hús­næði undir rekstur veit­inga­stað­ar­ins yrði stækkað meðal ann­ars til að aðgreina betur rekstur veit­ing­ar­stað­ar­ins og safns­ins. Sú til­laga var sam­þykkt ein­róma í bæj­ar­ráði. Pure Deli hætti rekstri í safn­inu í ágúst og hefur rekst­ur­inn verið aug­lýstur laus til umsóknar.

Hvað varðar ásak­anir á mínar hendur um slæma stjórn­sýslu­hætti þá vísa ég þeim á bug. Ég hef langa reynslu af því að vinna í stjórn­un­ar­stöðu í menn­ing­ar­málum hjá hinu opin­bera, alls 20 ár. Í störfum mínum hef ég haft fag­mennsku og metnað að leið­ar­ljósi, auk þess fara eftir þeim lögum sem gilda um opin­bera stjórn­sýslu. Í góðri stjórn­sýslu felst meðal ann­ars að fara eftir við­ur­kenndum boð­leiðum og eftir því fer ég.“

 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár