91. spurningaþraut: Ástargyðjan, mamma Kim Kardashian, og fleira

91. spurningaþraut: Ástargyðjan, mamma Kim Kardashian, og fleira

Hérna er þrautin frá í gær.

Auka­spurn­ingar eru:

Hvað er að ger­ast á efri mynd­inni, býsna nákvæm­lega?

Hvað kvik­myndaplakat sést (að hluta) á neðri mynd­inni?

Aðal­spurn­ingar tíu:

E1.   Hvað eiga þessir staðir sam­eig­in­legt: Vaivara, Hinzert, Kaiserwald, Mittel­bau-Dora og Gross-Rosen?

2.   Geim­farið Von lagði nýlega af stað til Mars. Á ensku er geim­farið kallað Hope en á arab­ísku مسبار الأمل‎, og það skiptir máli því geim­farið er hið fyrsta sem gert er út af Arabaríki. Hvaða ríki er það?

3.   Hvítá í Árnes­sýslu á upp­tök sín í stöðu­vatni upp undir Langjökli, þar sem Norð­ur­jök­ull skríður fram. Hvað heitir stöðu­vatnið?

4.   Hvað nefnd­ist ást­ar­gyðja Forn-Grikkja?

5.   Það er ógleym­an­legt höf­undi þess­ara spurn­inga að einn af stór­köllum Sturl­unga­aldar átti son sem bar það sér­kenni­lega nafn Órækja. Muna fleiri eftir því hver sá stór­kall var?

6.   Kim Kar­dashian er fræg amer­ísk sjón­varps­stjarna. Hvað heitir móðir hennar?

7.   En til hvaða þjóðar gat ætt­fað­ir­inn Robert Kar­dashian (faðir Kim) rakið upp­runa sinn?

8.   Gwyneth Paltrow heitir amer­ísk leik­kona. Hún fékk einu sinni Ósk­arsverð­laun fyrir leik í aðal­hlut­verki eftir að hafa slegið í gegn árið 1998 í mynd­inni ... tja, hvaða mynd?

9.   Kiri Te Kanawa er óperu­söng­kona og var í allra fremstu röð fyrir ekki svo löngu. Frá hvaða landi er hún?

10.   Sveinn Ólafur Gunn­ars­son fékk Grímu­verð­laun fyrir bestan leik í aðal­hlut­verki karla nú fyrir skemmstu. Hann lék í sýn­ingu sem leik­hóp­ur­inn Óskabörn ógæf­unnar setti upp í Tjarn­ar­bíó. Hvað hét leik­ritið?

1.   Þetta voru allt fanga­búðir á vegum þýskra nas­ista í síð­ari heims­styrj­öld, þótt smærri væru í sniðum en stóru útrým­ing­ar­búð­irnar.

2.   Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­dæmin.

3.   Hvít­ár­vatn.

4.   Afródíta.

5.   Snorri Sturlu­son.

6.   Kris eða Kristen Jenner.

7.   Armena.

8.   Shakespe­are in Love.

9.   Nýja-Sjálandi.

10.  Rocky. 

En þá eru það auka­spurn­ing­arnar.

Efri myndin er úr teikni­mynda­sögu sem gerð var eftir sög­unni um Moby Dick. Það dugar ekki að segja „hval­veiðar“ heldur verður að nefna Moby Dick, enda er hval­ur­inn auð­sjá­an­lega hvítur, sjá hér:

Og plakatið, sem sést brot af á neðri mynd­inni, var gert til að aug­lýsa mynd­ina Rocky. Sjá hér:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár